Nú styttist í útgáfu FS2002, talað er um daga frekar
en vikur. Fyrir tilstillan góðra manna höfum við
fengið tækifæri til að prófa FS2002. Í skemmstu
máli (við leyfum öðrum að greina hann frekar) þá hafa
ummæli um hraða o.þ.h. átt rétt á sér því hraðaaukningin
er bylting. Rammahraði uppá 70 er
ekki óeðlilegt með þokkalega vél.
 |
| Skjámynd frá Reykjavík. Smellið á
myndina til að fá hana
strærri |
Hvað Ísland 2000 varðar þá gengur
hann beint inní FS2002. Engar
breytingar þarf að gera og nú geta menn leyft sér að
velja hæstu mögulega upplausn og það hefur lítil áhrif á
rammahraðann. Það eina sem þarf að gera er að
velja FS2002 folder í stað FS2000 þegar
uppsetningarforritið biður um staðsetningu FS2000.
Sem sagt menn verða að láta öll tilmæli um FS2000 í
uppsetningarforritinu sem vind um eyru fljóta og velja
hiklaust FS2002 í staðinn. Voulia!
Það eina sem er hægt að setja útá leikinn er hin
mikla skógrækt Microsoft manna. Það eru tré á
hverju strái (eða þannig) upp flestar hlíðar og uppá
mörgum heiðum. En við hjá IceSim ehf. lítum á
þetta sem tækifæri fyrir okkur til þess að vinna að
frekari endurbótum. Jafnframt er strandlínan og
vegakerfið jafn ófullkomið og í FS2000 en við höfum nú
um nokkurt skeið verið að vinna að endurbótum á því
sviði sem hraðaaukningin í FS2002 leyfir okkur kannski
að hleypa af stokkunum. Meira um það seinna.
Á eftirfarandi síðu munum við setja skjámyndir úr FS2002
MEÐ ÍSLAND 2000.