Hjálp
Yfirfærsla úr FS2000 yfir í
FS2002
Eftirfarandi leiðbeiningar hafa
verði gerðar svo menn geti uppfært ÍSLAND 2000 fyrir
FS2002:
INNSETNING Venjulegt
innsetningarferli er sett af stað eins og þegar ÍSLAND
2000 var sett upp fyrir FS2000. Hér er því lýst hvað þarf að
gera þegar eftirfarandi spurningar/óskir koma í
innsetningarferlinu: ------------------------------------------------------------------------------ SPURNING:
Enginn Flight Simulator 2000 virðist vera á þessari tölvu, viltu
halda áfram? Yes/No LAUSN: Hér skal valið
Yes. ------------------------------------------------------------------------------ ÓSK:
Veldu þá möppu sem Flight Simulator 2000 er
í. LAUSN: Hér skal valinn Flight Simulator 2002
mappan í stað Flight Simulator 2000
möppunnar.
EFTIR
INNSETNINGU
Hægt er að sækja forrit hér sem lagfærir
flugþrautirnar eftir innsetningarferlið. <SÆKJA> Ef menn vilja
gera þetta sjálfir er hægt að fylgja eftirfarandi
leiðbeiningum:
Til þess að fá flugþrautirnar til
þess að virka verður að færa möppuna "pilots" sem er í "FS2002"
möppunni yfir í "flights" möppuna á sama stað. Einnig væri
gott að endurskýra möppuna t.d. "Island".
þ.e. "/Microsoft
Games/FS2002/pilots" yfir í "/Microsoft
Games/FS2002/flights/pilots"
Hvernig má auka hraðann enn
meira
Hjá Microsoft er að finna síðu sem með ráðum til að auka hraðan. Það
sem kom mest á óvart var að breyta hljóð stillingunum í FS2000.cfg
skránni. Við það jókst uppfærslu hraðinn á skjánum um 5-10 ramma á
sekúndu. Aðrar stillingar eins og að breyta því hversu langt
maður sér (visibility) hefur mikil áhrif á uppfærslu hraðan,
ótakmarkað útsýni dregur verulega úr hraðanum. Þessar
stillingar eru að finna í World->Weather. Skjá upplausnin
hefur einnig mikið að segja, lægri upplausn meiri hraði (Stillt í
Options->Setting->Display->Resolution). Fleiri
ábendingar um hvernig auka megi hraða enn meira eru vel þegnar!
Sendið endilega póst á icesim@simnet.is með ykkar ráðleggingum.
Hvernig má auka
hraðann
Einhverjir hafa verið ekki
verið sáttir við hraðann á Flight Simulator eftir að hafa sett
viðbótina inn. Hún var prófuð á mörgum vélum án vandræða og
niðurstaðan var sú að ef það væri hægt að keyra FS2000 á annað borð
þá væri hægt að nota landslagið. Eftirfarandi atriði er vert
að skoða í þessu samhengi:
- Slökktu á öllum
forritum sem Flight Simulator þarf ekki að nota.
Það
eru mörg forrit sem eru í gangi í bakgrunni og gagnast FS2000 á
engan hátt. Þessi forrit taka vinnsluminni og reiknigetu frá
örgjörva og hægja þannig á vinnslunni. Þú getur séð þessi forrit í
"System Tray" en hann er hliðiná klukkunni, neðst til hægri á
skjánum.
- Feldu eða losaðu
þig við allar auka flugvélar.
Ef þú ert með
viðbótarflugvélar skaltu færa þær á stað þar sem FS2000 "sér" þær
ekki eða losa þig við þær (eyða þeim). Það er þekkt vandamál að
mikið af aukavélum hægir á vinnslunni.
Ef þessi atriði bæta ekki
vinnsluna samkvæmt þínum kröfum gæti verið gott að bæta vélbúnaðinn.
Aukið innra minni er tiltölulega ódýr fjárfesting en bætir alla
vinnslu umtalsvert.
Þá stendur til að gefa út
uppfærslu fyrir vélar sem ráða ekki við viðbótina og eru notendur
beðnir um að senda póst á icesim@simnet.is og biðja um þessa uppfærslu. Ef menn eru ekki skráðir verða
þeir að senda raðnúmerið sem fylgir pakkanum með í
póstinum.
Ef þú ert með einhverjar
spurningar hikaðu ekki við að hafa samband við okkur með tölvupósti.
Uppsetning
- Keyrðu upp Windows
- Settu Ísland 2000 í geisladrif
tölvunnar.
- Innsetning forritsins hefst
sjálfkrafa. Ef ekki veldu þá Start hnappinn á stikunni og veldu
RUN á valblaði. Sláðu in d:\startup.exe Þar sem d: er stafur
geisladrifsins. Ef ekki þá verður þú að velja réttan staf þess.
Veldu OK.
- Fylgdu leiðbeiningum sem birtast á
skjánum.
Notkun
ÍSLANDS 2000 í Flight SimulatorTM
2000.
Þegar þú hefur sett upp Ísland 2000 í Flight
SimulatorTM Getur þú gert annað af tvennu:
Valið einn af þeim 18 flugvöllum á
Íslandi sem Flight Simulator 2000 býður upp á og hafið flugið þaðan.
Þetta er gert með því að velja World > Go to
Airport…Þar er hægt að velja Global region sem Europe,
Country/Region sem Iceland og síðan velja flugvöll.
Valið flugþraut fyrir ÍSLAND 2000 í
Flight SimulatorTM 2000 og tekist á við, að vera
íslenskur flugmaður. Hér er gott að hafa landakort til hliðsjónar.
Flugþrautir eru valdar með því að velja Flights > Select
Flight… og síðan þrautina sjálfa. Allar flugþrautir fyrir
ÍSLAND 2000 eru merktar með ISL fyrir framan nafn
þrautanna.
Stillingar
Til þess að auka hraðann í
í Flight SimulatorTM 2000 er hægt að stilla eftirfarandi
atriði:
Í Options >
Settings > Display er hægt að stilla skjástærðina
undir <Hardware> flipanum. Eftir því sem hún er stærri
er erfiðara fyrir tölvuna að vinna. Á sama
stað undir flipanum <Image Quality> er hægt að ráða
upplausninni á landslaginu. Rétt er að prófa sig áfram og finna
þannig út hvaða stilling hentar best þinni tölvu.
Tillögur
Með því að slökkva á íslenska
landslaginu sem er fyrir í Flight SimulatorTM 2000 gæti
hraðinn batnað. Þetta er gert í World > Scenery
Library. Þar er afhakað Iceland. Ath. við þessa breytingu
detta upplýsingar frá Microsoft® út t.d. flugbrautir.
Hraðann má auka með því að hækka
s.k. Cache Size í World > Scenery Library. Þess
skal þó gæta að nægjanlegt diskapláss sé fyrir á
tölvunni.
Skuggar af flugvélum og í landslagi
auka reikniþörfina er bæta litlu við gæði landslagsins.
Úttekt
- Við úttekt Ísland 2000 skaltu
tvísmella á My Computer og velja Control Panel. Smelltu á
Add/Remove Programs, sem kallar upp Add/Remove Programs Properties
valmyndina.
- Veldu Install/Uninstall flipann.
- Í glugganum finnur þú Ísland 2000
með rennistikunni.Sláðu á Add/Remove… hnappinn.
- Þú velur já þegar þú ert spurð(ur)
hvort þú viljir taka Ísland 2000 úr tölvunni. Næst er boðið upp á
að taka út Ísland sjálfvirkt eða sérstakt. Veldu sjálfvirkt og
byrja. Þá hefst úttekt á Ísland 2000
|