Ísland
2000
Viðbót
fyrir Microsoft®
Flight SimulatorTM
2000IceSim
ehf. hefur gefið út Ísland 2000, viðbótarlandslag
fyrir Microsoft® Flight SimulatorTM
2000. Landslagið er unnið upp úr raungögnum
frá Landmælingingum Íslands sem
samanstanda af hæðarpunktum gefnum á
90 metra millibili (norður/suður,austur/vestur),
en í upprunalegu útgáfunni er
upplausnin 900mx900m.
|

Umslagið utan um viðbótina
|
Þannig má segja að þetta
landslag Íslands 2000 sé 100-falt nákvæmara (10x10).
Þessar upplýsingar eru útbúnar með því að
vinna úr gögnum frá gervitunglum þar sem
fleiri en ein mynd af sama landsvæðinu er notuð
til þess að reikna út hæð þess og ná þau
yfir ALLT landið.
| ............... |

Flugleiðavél yfir Snæfellsnesi.
Vélin var teiknuð af:
Ólafi
Erni Guðmundssyni |

Skjámynd af gögnum sem
landslagið er
unnið uppúr. Myndin er af landsvæðinu
norðan Hornafjarðar. |
Svo nákvæm eru gögnin að
það er hægt að nota þau við kortagerð. Þetta
skapar áður óþekkt gæði í flughermum með
íslensku landslagi. Nú er auðveldlega hægt að
fljúga sjónflug um landið með gott landakort
og þekkja út helstu staðhætti.
Þessu til viðbótar
fylgja pakkanum 20 flugþrautir sem hafa verið
unnar af íslenskum einka- og atvinnuflugmönnum
og hafa verið settar upp í Ísland 2000 á
hinum ýmsu stöðum á landinu. Þær gefa mönnum
kost á að hefja flug í íslensku landslagi á
ýmsum flugvélum með uppsett raunveruleg veðurskilyrði.
Hverri þraut fylgir lesning þar sem stungið er
upp á flugleið eða þraut sem hægt er að
framkvæma. Þrautirnar sýna á raunsæan hátt
íslenskt landslag og veðurskilyrði og þar með
þær aðstæður sem íslenskir flugmenn búa við.
Þá fylgja pakkanum 40 aðflugs-,
lendingar- og blindflugskort frá Flugmálastjórn
Íslands.

Viðbótin
fæst í BT verslunum um allt land. http://www.bt.is
|