Blámi er hreinræktaður Abyssinian köttur og heitir fullu nafni Blámi Úr Geysi. Hann kom til okkar í mars 2003. Hann er blár á litinn. Óttalegt krútt, þæfir og malar mikið.
Hann er líka algjört átvagl og borðar hratt og örugglega. Eins gott að skilja ekkert ætt eftir á borðunum. Hann fékk leikfélaga og fóstbróðir, hann Lukku Láka sem kom til okkar í apríl 2003. Þeir eru auðvitað bestu vinir.
Blámi er sannur hefðarköttur og er yfirleitt mjög stilltur og hlýðir eins og besti hundur! Hann skilur alveg "nei" og kemur auðvitað hlaupandi þegar nafnið hans er kallað. Hann þekkir líka orðið "mús" og verður þá mjög spenntur því þá veit hann að músarleikur er í vændum. Músinni er kastað fyrir hann eftir gólfinu og hann sækir hana og kemur með hana til baka.
Hann getur reyndar tekið sig til og hamast í Lukku Láka og urrrrað yfir girnilegum kjötbita en það er allt í góðu. Blámi varð 2.ára þann 18.nóvember 2004.