Blámi og Lukku Láki bralla ýmislegt saman og eru hinir bestu vinir. Þeir sofa í sömu körfunni og geta ekki séð af hvor öðrum. Sannir bræður.

Þeir eru miklar félagsverur og eru alltaf hjá okkur mannfólkinu að spá og spökulera og fylgast með. Það er varla hægt að gera nokkuð í eldhúsinu án þess að þeir félagar fylgjast ekki með og þá helst að fá að smakka allt!! Baðkarið er þeirra drykkjarstöð þar sem þeir drekka helst ekkert vatn nema beint úr krananum.

Lukku Láki reddar þeim svo út úr hinu ýmsum klípum með því að opna hurðir og hann reddar líka spennandi hlutum til að skoða með að opna skúffur og skápa.

Þeir skemmta sér alveg konuglega við að leika sér í eltingarleik um allt hús. Einnig er gaman að eltast við litlar leikmýs og borðtennisbolta. Síðan er alltaf gott að fá sér smá blund og kúra hjá félaga sínum.

Myndir af Bláma of Lukku Láka

Heim

Blámi

Lukku Láki

Blámi og Lukku Láki

Skrifa í gestabók

Skoða gestabók

Blámablogg