Lukku Láki er hálfur Abyssinan, hálfur heimilisköttur. Hann er óttalegur snúlli og mjög skemmtilegur köttur. Hann kom til okkar í apríl 2003, þá rúmlega 2 mánaða. Hann er góður félagi fyrir Bláma. Hann er mjög uppátækjasamur en jafnframt mikill kúrari og kelirófa.

Honum þykir rosalega vænt um Bláma og hefur gaman af því að leika við hann. Lukku Láki er mjög uppátækjasamur og hefur tekið uppá ýmsu sem hefur kitlað hláturtaugarnar. Aldrei leiðinlegt í kringum hann. Hann er aftur á móti mjög feiminn við ókunnuga og þá sérstaklega þegar litlir gestir eru í heimsókn. Þá lætur hann sig hverfa og sést ekki fyrr en allir eru farnir.

Hann var í nóvember 2003 orðinn stærri en Bámi þótt hann sé rúmum 2 mánuðum yngri. Lukku Láki varð 2.ára 1. febrúar 2005.

Lukkuláki ryksugaður - Vídeo (4.1mb)

Myndir af Lukku Láka

Heim

Blámi

Lukku Láki

Blámi og Lukku Láki

Skrifa í gestabók

Skoða gestabók

Blámablogg