Guðfinna
Guðlaugsdóttir, Marta E.
Sigurðardóttir og Þórunn
B. Sigurðardóttir hafa gefið
út námsefni í tónheyrn
sem ætlað er til kennslu í
tónlistarskólum. Þær
starfa allar sem tónfræðakennarar
við Tónlistarskóla
Kópavogs.
Námsefnið hefur verið
kennt í mörgum tónlistarskólum
með góðum árangri
og er sniðið að nýrri
námskrá í tónfræðagreinum.
Það er heildstætt og
spannar allt grunn- og miðnám
í skriflegri og munnlegri tónheyrn.
Námsefnið
samanstendur af tveimur kennaraheftum,
vinnubók í skriflegri
tónheyrn og sjö nemendaheftum
í munnlegri tónheyrn.