Lög Krabbameinsfélagsins Sigurvonar

Samþykkt á stofnfundi 4. nóvember 2001, breytt 2003 (6. gr.).

 

1. gr.

Félagið heitir Krabbameinsfélagið Sigurvon. Félagsssvæðið er norðanverðir Vestfirðir. Heimili þess og varnarþing er á Ísafirði. Félagið er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands.

 

2. gr.

Tilgangur félagsins er að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini.

Þessum tilgangi hyggst félagið einkum ná með því:

Að fræða almenning um krabbamein og krabbameinsvarnir.

Að stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð krabbameins.

Að veita krabbameinssjúklingum stuðning.

Að stuðla að krabbameinsrannsóknum hér á landi.

 

3. gr.

Félagi getur hver sá einstaklingur verið sem aðhyllist tilgang félagsins og greiðir því tilskilin gjöld. Félög eða stofnanir geta verið styrktarmeðlimir gegn árlegu gjaldi. Árgjald skal ákveðið á aðalfundi.

 

4. gr.

Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins. Hann skal halda fyrir marslok ár hvert. Skal hann boðaður með að minnsta kosti viku fyrirvara. Tilkynna skal dagskrá í fundarboði. Fundurinn er lögmætur ef löglega er til hans boðað.

 

5. gr.

Á aðalfundi skulu jafnan tekin fyrir þessi mál: Skýrsla félagsstjórnar fyrir síðastliðið starfsár. Endurskoðaðir reikningar fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til samþykktar. Ákveðin árgjöld og ævifélagagjald. Kosin stjórn og varastjórn (sbr. 6. gr.). Kosnir tveir endurskoðendur til eins árs, og ein til vara. Kosnir fulltrúar á aðalfund Krabbameinsfélags Íslands.

 

6. gr.

Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum. Formaður skal kjörinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Árlega skulu kosnir tveir meðstjórnendur til tveggja ára og tveir varamenn til eins árs. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Stjórnin skipar nefndir til starfa fyrir félagið eins og þurfa þykir.

 

7. gr.

Stjórn félagsins getur ráðið starfsmann til að sjá um rekstur skrifstofu fyrir félagið.

 

8. gr.

Stjórnarfundi skal halda eigi sjaldnar en sex sinnum á ári. Skylt er að boða stjórnarfund ef tveir stjórnarmenn óska þess. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef minnst þrír stjórnarmenn eða varamenn þeirra sækja fundinn.

 

9. gr.

Stjórnin efnir til fræðslufunda að minnsta kosti tvisvar á ári.

 

10. gr.

Reikningsár félagsins er almanaksárið.

 

11. gr.

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi. Til þess þarf tvo þriðju greiddra atkvæða. Skal þess getið í fundarboði ef tillögur til lagabreytinga verða lagðar fram á fundinum. Aldrei má breyta lögunum þannig að raskað sé megintilgangi félagsins, sbr. 2. gr.

 

12. gr.

Til þess að leggja félagið niður þarf samþykki þriggja fjórðu fundarmanna á aðalfundi, enda hafi áforms um félagsslit verið getið sérstaklega í fundarboði. Verði félagið lagt niður skulu eignir þess renna til Krabbameinsfélags Íslands. Því ákvæði má aldrei breyta.