
Ég
stikla á stóru síðasta ár, en Sigurvon bárust margar veglegar gjafir í janúar í
formi styrkja frá ýmsum aðilum og fyrirtækjum
Í
upphafi árs er gert upp vegna jólakortasölu og er sala síðustu jól, tvöföld
miðað við fyrra ár og stefnir í aukningu næstu jól
Skrifstofa Sigurvonar var opin í vetur og fram í
lok júní, en lokað var í júlí og ágúst
Síðasti aðalfundur félagsins var haldinn á Hótel Ísafirði miðvikudaginn 16.
mars í fyrra, en kaffi og meðlæti var þá eins og nú í boði Sparisjóðs
Vestfirðinga
Ný stjórn var kosin á aðalfundi:
Formaður: Sigurður Ólafsson, Seljalandsvegi 75, 400 Ísafirði 893
1753 bii@simnet.is
Gjaldkeri: Ólafía Aradóttir 864 6580 ritari@isafjordur.is
Ritari: Oddný Birgisdóttir ob@ov.is
Meðstjórnandi: Auður H. Ólafsdóttir audur@fsi.is
Meðstjórnandi: Jóhanna Ása Einarsdóttir, 510 Hólmavík stebbij@simnet.is
Varamaður: Sigríður Ragnarsdóttir sigga-ti@snerpa.is
Varamaður: Heiðrún Björnsdóttir heidrunbjorns@simnet.is
Á aðalfundi var stofnaður sérstakur styrktarsjóður Styrktarsjóður
Krabbameinsfélagsins Sigurvonar. Tilgangur og markmið sjóðsins er að styrkja og
efla hverja þá starfsemi sem lýtur að málefnum krabbameinssjúklinga á
starfssvæði Krabbameinsfélagsins Sigurvonar og auka lífsgæði þeirra.
Tilgangi og markmiðum sínum skal sjóðurinn m.a. ná með eftirfarandi hætti:
a). Styrkja með einum eða öðrum hætti við hvers
konar fræðslustarfsemi sem
kemur krabbameinssjúklingum til góða.
b). Veita styrki til annarra verkefna samkv.
ákvörðun sjóðsstjórnar í þágu
umönnunar, meðferðar og lækninga
krabbameinssjúklinga og til að auka
lífsgæði þeirra.
Um styrk úr
sjóðnum geta sótt allir félagsmenn í Sigurvon svo og þeir sem starfa með einum eða öðrum hætti að
málefnum krabbameinssjúklinga.
Samverustundir hafa verið í boði síðasta ár og haldnar
reglulega, 1. og 3. hvern fimmtudag hvers mánaðar. Tengiliður þessara stunda er
og hefur verið Heiðrún Björnsdóttir og hefur hún unnið mjög óeigingjarnt starf
í þágu félagsins. Mæting hefur verið mjög léleg og er í skoðun hvernig hægt er
að breyta samveru til betri vegar.
Á tónleikunum sem
haldnir voru í Íþróttahúsinu á Ísafirði hinn 27. ágúst s.l. til styrktar
Sigurvon söfnuðust 442.059.00 kr.
Skipuleggjandi var Gunnar Atli Gunnarsson, 16 ára Ísfirðingur, og voru þeir
honum og öllum þeim sem komu að tónleikunum til mikilla sóma. Stjórn Sigurvonar
vill koma þakklæti til allra þeirra sem að tónleikunum stóðu og gerðu þá svo
eftirminnilega, allt það tónlistarfólk sem sótti okkur heim og heimamenn eiga
miklar þakkir skilið og ekki síður þeir sem unnu við undirbúning að
tónleikunum, en þess má geta að allir sem komu að tónleikunum gáfu sína vinnu
og verður þessu fólki seint þakkað. Einnig ber að þakka öllum þeim fyrirtækjum
sem styrktu tónleikana, þó ber sérstaklega að þakka Gunnari Atla og hans
fjölskyldu fyrir stórkostlegt framtak og alla þá hlýju til Sigurvonar, en þetta
er í þriðja sinn sem Gunnar heldur tónleika til styrktar Sigurvon. Fyrir tveimur árum söfnuðust um 60 þúsund krónur og
var ágóðinn yfir 100 þúsund krónur í fyrra.
Í byrjun október var Safnahúsið á Ísafirði sveipað bleiku ljósi ásamt
Hólmavíkurkirkju. Tilgangurinn með þessu var að minna á baráttuna gegn
brjóstakrabbameini.
Sigurvon
boðaði nokkrum sinnum til almenns fundar um blöðruhálskirtilskrabbamein á
Hólmavík, en vegna veðurs, veikinda og aðstæðna var fundinum alltaf frestað.
Til stendur að
Hin árlega jólakortasala
félagsins hófst í byrjun nóvember og seldust öll kortin upp ásamt smá lager frá
fyrra ári. Prenta þurfti nýjan skammt og seldist meiri hlutinn af honum fyrir
jól. Bæði voru prentuð kort með texta og án. Textalausu kortin verða í sölu
allt árið, enda þannig hönnuð útlitslega að þau henta öllum tímum og tækifærum.
Stærstu söluaðilar félagsins báðu okkur að vera fyrr á ferðinni næsta ár og
stefnum við því á að byrja jólakortasölu í október 2006. Félagið gaf út tvö ný jólakort og myndirnar í ár málaði Reynir
Traustason. Heita myndirnar “Síðdegissól í Skutulsfirði” og “Vetur og máni”. Tíu kort voru í pakka og var kortið selt á 100
kr., en pakkinn á 1000 kr.
Heimasíða
félagsins hefur verið virk og uppfærð um leið og fréttir berast, einnig hefur
vefur BB (Bæjarins Besta, bæjarblaðið) styrkt félagið mjög vel og auglýst starf
þess og alla viðburði félaginu að kostnaðarlausu. Sambandsleysi var á
skrifstofunni í júní og datt út bæði símasamband og tölvusamband. Samband komst
á að nýju í maí. Heimasíðan lá niðri um tíma í haust og hefur staðið til að
uppfæra hana og
Tæpar tíu milljónir hafa safnast
|
|
|
Frá kynningarfundi þegar söfnunin hófst
í september. |
Tæpar 10
milljónir hafa safnast til kaupa á sneiðmyndatæki fyrir Fjórðungssjúkrahússins
á Ísafirði og er vitað að fleiri framlög eru á leiðinni. Söfnunin er á
lokasprettinum og hafa viðtökur Vestfirðinga farið fram úr björtustu vonum.
Ýmis stór framlög hafa borist upp á síðkastið og má þar nefna 500 þúsund krónur
frá Lionsklúbbi Ísafjarðar, 500 þúsund kr. frá Sparisjóði Bolungarvíkur og 500
þúsund frá Sparisjóði Vestfirðinga, 500 þúsund kr. frá KNH, 500 þúsund kr. frá
Finnboga Jakobssyni í Bolungarvík, 500 þúsund kr. frá Vigni Jónssyni og Láru
Helgadóttur, 500 þúsund kr. frá Guðmundi Guðmundssyni, 500 þúsund kr. frá
Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, 250.000 kr. frá 3X-Stáli og Rennex, 200 þúsund
kr. frá Útgerðarfélaginu Ós, 300 þúsund kr. frá félagi járniðnaðarmanna, 230
þúsund kr. frá félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, 300 þúsund kr. frá FOSVest,
300 þúsund kr. frá kvenfélaginu Brautinni og 250 þúsund kr. frá
krabbameinsfélaginu Sigurvon. Þá eru ótalin framlög ótalmargra einstaklinga, fyrirtækja,
kvenfélaga, stofnana og sveitarfélaga sem nema samtals ríflega 2 milljónum
króna og eru afar mikilvæg fyrir söfnunina.
Í október fékk Sigurvon nemendur 10 bekkjar GÍ til að
ganga í hús og selja penna.
Selja penna og lyklakippur til styrktar Sigurvon
Krabbameinsfélagið
Sigurvon stendur fyrir fjáröflun um helgina og nýtur við hana liðsinni nemenda
10. bekkja Grunnskólans á Ísafirði. Gengið verður í hús og mönnum boðið að
kaupa penna og lyklakippur til styrktar félaginu. „Það má búast við krökkunum í
hús í Ísafjarðarbæ, Súðavík og Bolungarvík um helgina. Hugmyndin er að salan
hefjist seinni partinn á föstudag. Við vonum að fólk taki vel á móti
sölubörnunum“, segir Sigurður Ólafsson, formaður Sigurvonar.
Í nóvember flutti Sigurvon
í nýtt og mun betra húsnæði og er nú staðsett að
Suðurgötu 9, 2. hæð,
Ísafirði.
Krabbameinsfélagið Sigurvon flytur
Krabbameinsfélagið
Sigurvon á norðanverðum Vestfjörðum hefur verið flutt og er nú til húsa að
Suðurgötu 9 á Ísafirði. „Þetta er mun betri aðstaða og við erum mjög ánægð með
flutninginn“, segir Ingibjörg Snorradóttir Hagalín starfsmaður félagsins.
Opnunartími skrifstofu félagsins og sími er enn sá sami. Skrifstofan er opin á
þriðjudögum og miðvikudögum kl. 10.00–12.00 og á fimmtudögum kl. 11:00-13:00.
Símanúmer skrifstofunnar er 456-5650.
Hólmvíkingar
eru nú formlega gengnir til liðs við krabbameinsfélagið Sigurvon og eiga
fulltrúa í stjórn ásamt því að selja ýmsan varning á Hólmavík til styrktar
félaginu, svo sem jólakort, penna og minningarkort.

Samráðsfundir
eru haldnir þrisvar á ári innan Krabbameinsfélags Íslands og sótti ég einn
slíkan nú í janúar og var mjög gaman og fróðlegt að hitta allt það fólk sem
maður er annars í tölvusambandi við eða símasambandi. Næsti samráðsfundur var í
maí n.k. og sá þriðji í nóvember. Þessir fundir eru nauðsynlegir til að stilla
saman strengi og sjá hvað aðrir eru að
Stjórnarfundir
eru haldnir mánaðarlega og oftar ef þörf þykir og eru þeir allir ritaðir í dag
til upplýsinga fyrir þá er á eftir koma og eru fundargerðir sendar öllum
stjórnarmönnum
Félagið
ætlar að halda fundi bæði á Ísafirði og á Hólmavík á næstu mánuðum og eru
hugmyndir að fá 2 fyrirlesara á fundina, annan sem færi yfir félagsleg réttindi
og annan sem fjalla myndi um Læknaskop.
Einnig
er verið að vinna að því að fá sálfræðing vestur reglulega í samvinnu við
sjúkrahúsið og gengur sú vinna vel.
Mikið
hefur verið rætt um samverustundir og verður þeim breytt á næstunni, fluttar á
t.d. laugardagsmorgna og auglýstar í blöðum og útvarpi.