Styrktarsjóður Krabbameinsfélagsins Sigurvonar

 

 

1.      1.      gr.  Nafn sjóðsins.

 

1.1.  1.1.  Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Krabbameinsfélagsins Sigurvonar. Heimili og varnarþing sjóðsins er á Ísafirði.

1.2.  1.2.  Sjóðurinn er í eigu og umsjón Krabbameinsfélagsins Sigurvonar.

 

2.      2.      gr.  Stofnfé og tekjur sjóðsins.

 

2.1.  2.1.  Stofnfé sjóðsins er kr. 1.000.000.- sem er gjöf frá Bónus og var gjöfin gefin í tilefni af 15 ára afmæli Bónus þann 8. apríl 2004.  Aðrar tekjur sjóðsins skulu vera andvirði seldra minningarkorta svo og frjáls framlög og gjafir  félagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga, auk fjármagnstekna af eignum sjóðsins. Óheimilt er að skerða stofnfé sjóðins meira en svo að a.m.k. helmingur þess sá ávallt til staðar sem eign sjóðsins.

 

3.      3.      gr.  Markmið og verkefni sjóðsins.

 

3.1.  3.1.  Tilgangur og markmið sjóðsins er að styrkja og efla hverja þá starfsemi sem lýtur að málefnum krabbameinssjúklinga á starfssvæði Krabbameinsfélagsins Sigurvonar og auka lífsgæði þeirra.

3.2.  3.2.  Tilgangi og markmiðum sínum skal sjóðurinn  m.a. ná með eftirfarandi hætti:

 

a).  Styrkja með einum eða öðrum hætti við hvers konar  fræðslustarfsemi sem

      kemur krabbameinssjúklingum  til góða.

b).  Veita styrki til annarra verkefna samkv. ákvörðun sjóðsstjórnar í þágu

      umönnunar, meðferðar og lækninga krabbameinssjúklinga og til að auka

      lífsgæði þeirra.

 

Um styrk úr sjóðnum geta sótt allir félagsmenn í Sigurvon svo og  þeir sem starfa með einum eða öðrum hætti að málefnum krabbameinssjúklinga.

    

3.3.  3.3.  Til þess að  sjóðurinn  geti náð megintilgangi  sínum er stjórn sjóðsins heimilt að

       eiga samstarf  við aðra  aðila og gerast í  því skyni aðili að samstarfi við aðra um

       lengri eða skemmri tíma.

 

4.      4.      gr. Stjórn og rekstur.

 

4.1.  4.1.  Stjórn Krabbameinsfélagsins Sigurvonar fer með stjórn sjóðsins. Gjaldkeri félagsins skal annast vörslu sjóðsins og skal gæta þess að fé sjóðsins sé ávaxtað með bestu fáanlegum inneignarvöxtum í banka eða sparisjóði hverju sinni. Einfaldur meirihluti gildir á stjórnarfundum. Fundargerð skal rituð vegna stjórnarfunda sjóðsins.

4.2.  4.2.  Stjórn sjóðsins ber að vinna að markmiðum sjóðsins. Stjórn ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum sjóðsins. Stjórn sjóðsins skal auglýsa sjóðinn vel á öllum starfssvæði Krabbameinsfélagsins Sigurvonar. Stjórnin ákveður meginþætti í stefnu og starfstilhögun sjóðsins. Stjórnarfundi skal boða með tryggilegum hætti. Stjórnarmaður má ekki taka þátt í meðferð einstakra mála ef málefnið varðar hann persónulega. Stjórn sjóðsins skal halda fundi a.m.k. tvisvar á ári. Umsóknum um styrk úr sjóðnum skal beint til stjórnar sjóðsins og skal stjórnin meta umsóknir eftir að hafa kynnt sér mál viðkomandi umsækjanda.

 

5.      5.      gr. Ársreikningur og endurskoðun:

 

5.1.  5.1.  Reikningsár sjóðsins er almanaksárið.  Ársreikningur sjóðsins skal endurskoðaður af skoðunarmönnum Krabbameinsfélagsins Sigurvonar. Ársreikningur skal lagður fram eigi síðan en viku fyrir boðaðan aðalfund félagins þar sem reikningar sjóðsins skulu kynntir og bornir upp.

 

6.      6.      gr. Slit sjóðsins.

 

6.1.  6.1.  Verði tekin ákvörðun um það á aðalfundi Krabbameinsfélags Sigurvonar að leggja sjóðinn niður skal eignum sjóðsins ráðstafað eftir ákvörðun aðalfundar félagsins. 

 

7.      7.      gr. Breytingar á samþykktum sjóðsins

 

7.1.  7.1.  Breytingar á samþykktum sjóðsins öðlast ekki gildi nema þær hafi hlotið samþykki meirihluta fundarmanna á aðalfundi Krabbameinsfélagsins Sigurvonar.

 

 

Þannig samþykkt á stofnfundi sjóðsins á Ísafirði, 16. mars 2005.