Skýrsla starfsmanns fyrir árið 2006

 

Sigurvon bárust margar veglegar gjafir á árinu í formi styrkja frá ýmsum aðilum, hópum og fyrirtækjum

 

Í upphafi árs er gert upp vegna jólakortasölu og er salan síðustu jól mjög góð, en hún er meiri en síðasta ár þegar varð tvöföldun

 

Skrifstofa Sigurvonar var opin í vetur og fram í lok júní, en lokað var í júlí og ágúst


Síðasti aðalfundur félagsins var haldinn á Hótel Ísafirði fimmtudaginn 6. apríl í fyrra,  en kaffi og meðlæti var þá eins og nú í boði Sparisjóðs Vestfirðinga. Gestur fundarins var
Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi og verkefnisstjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands og flutti hún fróðlegt og skemmtilegt erindi. Einnig bauð Gunnjóna Una upp á einkasamtöl varðandi félagsleg réttindi og fleira, en því miður var eftirspurn ekki næg og fella þurfti niður þessa tíma.

 

Ný stjórn var kosin á aðalfundi:
Formaður: Sigurður Ólafsson, Seljalandsvegi 75, 400 Ísafirði  893 1753 bii@simnet.is
Gjaldkeri: Ólafía Aradóttir 864 6580 ritari@isafjordur.is
Ritari: Oddný Birgisdóttir  ob@ov.is
Meðstjórnandi: Auður H. Ólafsdóttir audur@fsi.is
Meðstjórnandi: Jóhanna Ása Einarsdóttir, 510 Hólmavík stebbij@simnet.is

Varamaður: Sigríður Ragnarsdóttir sigga-ti@snerpa.is

Varamaður: Heiðrún Björnsdóttir heidrunbjorns@simnet.is

Lóa og Dúddi (mynd tekin á síma)

 

 

Á aðalfundi barst félaginu stórkostleg peningagjöf frá Halldóri Magnússyni (Dúdda Magg) og frú, eiga þau hjónin bestu þakkir skildar fyrir

 

 

 

 

 

Samverustundir hafa verið í boði síðasta ár og haldnar reglulega, 1. og 3. hvern laugardag hvers mánaðar. Tengiliður þessara stunda er og hefur verið Heiðrún Björnsdóttir og hefur hún unnið mjög óeigingjarnt starf í þágu félagsins.

 

 

 

 

5. júní s.l. hélt karlakórinn Ernir tónleika í Hafnarfjarðarkirkju til styrktar Sigurvon og var afrakstur tónleikanna um 200 þúsund krónur. Sendir félagið þeim bestu kveðjur og þakkir

 

Karlakórinn ErnirKarlakórinn Ernir í Hafnarfjarðarkirkju



pennasalaPennasala gekk vel í ár og sáu krakkar í MÍ um söluna með mjög góðum árangri. Pennarnir fengust einnig á skrifstofu félagsins, sími: 456-5650 og var hægt að hringja og fá þá senda til sín í búntum !! Krakkarnir gengu í hús víða um Vestfirði og voru mjög dugleg að vera til staðar þar sem fjöldinn var, eins og í Bónus og á landsþingi Kiwanis sem haldið var á Ísafirði í fyrra og gekk sala á lyklakippum og pennum ótrúlega vel.

 

 

Kirkjan á Flateyri í bleiku ljósiÍ tilefni þess að október mánuður er helgaður baráttu gegn brjóstakrabbameini voru ýmsar byggingar lýstar upp með bleiku ljósi um allan heim. Á Vestfjörðum var það Hótel Ísafjörður og hluti gamla kaupfélagshússins. Á Hólmavík, Bolungarvík, Suðureyri, Þingeyri og Flateyri voru kirkjur staðanna baðaðar bleiku ljósi og vakti mikla athygli. Bleika slaufan var til sölu á sama tíma á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði og í Ísafjarðarapóteki og svo auðvitað hjá snyrtivöruversluninni Silfurtorgi.

 

 

Jólakort 2006 komin í sölu í október !!

Jólakort 2006 teiknuð af Ómari Smára Kristinssyni                        Jólakort 2006 teiknuð af Ómari Smára Kristinssyni

Þessar myndir eru teiknaðar af Ómari Smára Kristinssyni og hefur hann gefið Sigurvon leyfi til að nota þær félaginu að kostnaðarlausu. Kortin eru til sölu víða á Vestfjörðum og má yfirleitt nálgast þau á sömu stöðum og minningarkort félagsins eru seld. Kostar stykkið 100 kr. og eru þau líka seld í búntum, 10 saman. Helstu sölustaðir á Ísafirði eru, Húsasmiðjan, Birkir ehf., Hlíf II, Blómaturninn og Heilsugæslan. Sú breyting varð á sölu korta í ár að fyrirtækið Bókhlaðan/Penninn datt út. Penninn fór fram á 20 % sölulaun auk vasks og fannst okkur ekki forsvaranlegt að borga einu fyrirtæki fyrir sölu á jólakortum okkar á meðan öll önnur fyrirtæki í bænum seldu kortin án nokkurs gjalds. Ný fyrirtæki komu þó inn og er gaman að segja frá því að nýir sölustaðir voru t.d. Office one á Ísafirði og Blómaval í Skeifunni Reykjavík. Töluvert meiri sala var í jólakortum í ár, þrátt fyrir mikla aukningu í fyrra.

 

 

.

Merki Krabbameinsfélagsins Sigurvonar eftir Hallvarð Aspelund

Heimasíða félagsins hefur verið virk og uppfærð um leið og fréttir berast, einnig hefur vefur BB (Bæjarins Besta, bæjarblaðið) styrkt félagið mjög vel og auglýst starf þess og alla viðburði félaginu að kostnaðarlausu. Ekkert hefur heyrst af fyrirhuguðum breytingum á heimasíðum KÍ. En starfsmaður Sigurvonar tók sér bessaleyfi fyrir ca. ári síðan og setti upp síðu sem verið hefur uppfærð reglulega síðan, slóðin er http://svon.blogspot.com  

 

 

Sigurvon fagnar 5 ára afmæli !

Sigurður Björnsson yfirlæknir flytur erindiSigurvon hélt upp á 5 ára afmæli sitt 4. nóvember með afmælisfundi á Hótel Ísafirði. Flutt voru erindi, Guðrún Jónsdóttir söng við undirleik Margrétar Gunnarsdóttur og loks var kaffi og tertur í boði Sparisjóðs Vestfirðinga. Auður H Ólafsdóttir flutti ávarp f.h. félagsins og gestafyrirlesari var Sigurður Björnsson yfirlæknir og formaður stjórnar KÍ, flutti hann erindið "Stiklur um krabbamein". Hér má sjá frétt BB af afmælisfundinum og hér er hægt að hlusta á viðtal við starfsmann Sigurvonar, sem flutt var í þættinum "Samfélagið í nærmynd" 6. nóv. á Rás I. Félagið þakkar velvild í sinn garð og góðar undirtektir og óskir

 

Krabbameinsfélagið Sigurvon flytur, jafnvel enn og aftur

Krabbameinsfélagið Sigurvon á norðanverðum Vestfjörðum hefur flutt og er nú til húsa að Suðurgötu 9 á Ísafirði. „Þetta er mun betri aðstaða og við erum mjög ánægð með flutninginn“, segir Ingibjörg Snorradóttir Hagalín starfsmaður félagsins. Opnunartími skrifstofu félagsins og sími er enn sá sami. Skrifstofan er opin á þriðjudögum og miðvikudögum kl. 10.00–12.00 og á fimmtudögum kl. 11:00-13:00. Símanúmer skrifstofunnar er 456-5650. Til stendur að félagið fari í samstarf við önnur félög og flytji í nýtt húsnæði á nýju ári, þetta skýrist fljótlega


Blettadagur föstudaginn 15. desember n.k.!

Blettaskoðun 15. des.Krabbameinsfélagið Sigurvon var með Blettadag föstudaginn 15. desember n.k. í samvinnu við Heilsugæslustöðina og Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. Blettaskoðun var í boði fyrir alla sem þess óska og voru læknarnir Fjölnir Guðmundsson og Þorsteinn Jóhannesson við þennan dag, milli kl. 13:00 og 16:00. Fólk var hvatt til að notfæra sér þessa þjónustu og láta lækna ákveða hvort ástæða væri til að láta fjarlægja fæðingarbletti eða aðra bletti. Ekki þurfti neinar tímapantanir og var fólk eindregið hvatt til að mæta og notfæra sér þessa fríu þjónustu, sem gekk mjög vel

 

Veittir voru nokkrir fjárhagslegir styrkir til einstaklinga á árinu og komu þeir sér vel. Sigurvon hefur undanfarin ár greitt að fullu dvalarkostnað sjúklinga sem dvelja þurfa að heiman vegna lyfjagjafa. Í ár hefur félagið greitt dvalarkostanð fyrir nokkra  einstaklinga og hafa þeir allir verið félagar í Sigurvon og með lögheimili á Ísafirði, en það eru skillyrðin fyrir að kostnaður sé greiddur.

 


reyk05 008Samráðsfundir eru haldnir þrisvar á ári innan Krabbameinsfélags Íslands og sótti ég einn slíkan nú í janúar og var mjög gaman og fróðlegt að hitta allt það fólk sem maður er annars í tölvusambandi við eða símasambandi. Næsti samráðsfundur var í maí n.k. og sá þriðji í nóvember, en þann fund gat ég ekki sótt vegna anna. Þessir fundir eru nauðsynlegir til að stilla saman strengi og sjá hvað aðrir eru að gera og vinna og hvernig í sömu málum

 

 

Stjórnarfundir eru haldnir mánaðarlega og oftar ef þörf þykir og eru þeir allir ritaðir í dag til upplýsinga fyrir þá er á eftir koma og eru fundargerðir sendar öllum stjórnarmönnum

 

 

Félagið stefnir á að funda bæði á Ísafirði og á Hólmavík á næstu mánuðum og eru hugmyndir að fá 2 fyrirlesara á fundina, annan sem færi yfir félagsleg réttindi og annan sem fjalla myndi um Læknaskop.

 

 

Félagið stefnir í samstarf við Geðhjálp, Sjálfsbjörg, Rauða Krossinn og jafnvel fleiri um að opna og reka miðstöð fyrir einstaklinga þessara félaga, en fleiri félög eiga eftir að bætast í hópinn og hafa sýnt áhuga. Miðstöðin verður ekki opin fyrir almenning. Ýmis aðstoð verður í boði, sem og starfsendurhæfing. Markaðssvæði miðstöðvarinnar er Ísafjarðarbær, Súðavík og Bolungarvík og ætluð til hjálpar og stuðnings, öryrkjum, geðfötluðum, krabbameinssjúklingum og fleiri sjúklingum, sem missa vinnu tímabundið/varanlega vegna sjúkdóms og þurfa aðstoð við að fóta sig á ný í lífinu. Forsvarsmenn ýmissa hópa telja líklegra að fólk nýti sér frekar þjónustu miðstöðvarinnar sé hún fyrir marga mismundani hópa og markaður hér vestra er of lítill til að vera með of sérhæfða miðstöð. Verið er að leggja lokahönd á þá vinnu sem undirbúningur svona miðstöðvar krefst og er óskandi að opnað verði sem fyrst