Umsagnir um Garđar Harđar

 

Djasshátíđ Egilsstđa 1997

 

Djasshátíđ Egilsstđa lauk međ djammsessjón  ţar sem Garđar Harđar blúsari frá Stöđvarfirđi söng Stormy Monday af LIST og blés í munnhörpu viđ undirleik Guđmundar “Papa Jazz”Steigrímssonar á trommur, Ingva Ţórs Kormákssonar á píanó, Önnu Lilju Karlsdóttur á trompet og Einars Sćvarssonar á bassa

 

Morgunblađiđ IŢK

 

Tónleikar á Hótel Sögu 1997

Til heiđurs Árna Ísleifs sjötugum

 

.........Garđar Harđar flutti afmćlisbarninu svohljóđandi vísu:

 

Eftir mikiđ djamm og djús

Dreng fanst gaman kárna

Helgar sig nú hćgum blús

Međ hetju sinni Árna

 

Garđar söng einnig nokkra blúsa, en hann er í fremstu röđ blússöngvara hér á landi

 

Morgunblađiđ Vernharđur Linnet.

 

02.06.2007 - Ekki versnar ţađ .......

 

Jćja, ţá hélt Hammond hátíđin á Djúpavogi áfram föstudagskvöldiđ 1. júní.

 
Garđar Harđar var mćttur á svćđiđ međ Blúsbrot sitt, skipađ hljóđfćraleikurum úr Fjarđabyggđ. Slagverksleikarinn Otto Meier, sem segir frá í umfjöllun um 1. kvöldiđ borđađi ekkert fyrir tónleikana, ţar sem hann skildi máliđ ţannig ađ Garđar ćtlađi ađ útdeila Blúsbrauđi líkt og frelsarinn forđum (orđiđ “brot” á ţýzku ţýđir “bauđ”). Ţetta leiđréttist ţó fljótt og Garđar og félagar útdeildu ţess í stađ firna góđri tónlist og náđu hörku tökum á salnum.

Međ Garđari í för voru Ágúst Ármann Ţorláksson á Hammond, Jóhannes M. Pétursson (Jói á Gili) á bassa, Pétur Hallgrímsson á trommur, Jón Hilmar Kárason á gítar og Guđjón Steinţórsson, einnig á gítar. Auk ţess ađ syngja, ţandi Garđar sjálfur svo ţriđja gítarinn.

Skemmst er frá ţví ađ segja ađ Blúsbrotiđ á fullt erindi á hvađa hátíđ sem er af ţessu tagi. Jón Hilmar er jú bezti gítarleikari á Austurlandi og Garđar, sem gefur honum lítiđ eftir í snilld á hljóđfćriđ, er óumdeilanlega snjallasti blússöngvari í fjórđungnum og réttnefndur BLÚSKÓNGUR. Pétur er viđurkenndur trommari og stendur ćtíđ vel fyrir sínu og Jói, sem líklega hefur spilađ minnst ţeirra í seinni tíđ gerđi ţađ sem góđur bassaleikari á ađ gera, fylla upp í bítiđ en halda sér passlega til hlés. Ţađ ţarf ekki ađ fara orđum um fćrni Ágústar Ármanns, ţegar hljómlist er annars vegar og ţótt hann vćri ađ spila á Hammond í fyrsta sinn í 31 ár, virtist ţađ ekki há honum. Guđjón er líka fanta góđur á gítarinn en hafđi sig of lítiđ í frammi.

 

Myndir og texti: BHG

 

Jasshátíđ Egilsstađa á Austurlandi 2007

 

Blúsbrot Garđars Harđar

 Garđar Harđar hefur oftast komiđ ađ Jasshátíđ Egilsstađa á Austurlandi á einhvern hátt og ekki margir sem hafa spilađ jafn oft á hátíđinni nema ţá kanski Árni sjálfur.  Nú sem oft áđur kemur Blúsbrotiđ hans Garđars fram og leikur blús eins og Garđari einum er lagiđ.  Blúsbrotiđ hefur spilađ víđa undanfariđ og er í fínu formi.  Ţeir félagar munu segja ykkur frá raunum sínum og mćđast á Afmćlistónleikum JEA 2007 í tjaldinu laugardaginn 30. júní.

Blúsbrotiđ er skipađ valinkunnum tónlistarmönnum sem búsettir eru á Austurlandi:

Garđar Harđar
gítar og tregafull söngrödd
Ţorleifur Guđjónsson
bassi
Pjétur Sćvar Hallgrímsson
trommur
Jón Hilmar Kárason
gítar
Einar Bragi Bragason
Saxófón



 

 

 

 

Norđurljósablús Höfn Hornafirđi 2008

Blúsbrot Garđars Harđar
 

Á Víkinni var drulluţétt Blúsbrot Garđars.  Garđar Harđar hefur komiđ á allar blúshátíđirnar okkar og stjórnađ blúsdjamminu en núna mćtti kallinn međ stórskotaliđ af austfjörđum.  Pétur í Tónspil á trommur, ég hef aldrei séđ hann spila fyrr og helvíti er hann flottur kallinn.  Á bassa var Ţorleifur Guđjónsson, ekki orđ um ţađ meir, hann er auđvitađ snillingur.  Ágúst Ármann, organisti Norđfjarđarkirkju lék á hljómborđ og Jón Hilmar Kárason á gítar.  Flottir kallar og ţeir komu mér skemmtilega á óvart.

 

02.05.2008 - Hammondhátíđin 2008 fer vel af stađ

 

Ađalnúmer kvöldsins átti ađ vera Blúsbrot Garđars Harđar og ţađ gekk svo sannarlega eftir. Međ Garđari í för í ţetta sinn voru „prófessor“ Ágúst Ármann Ţorláksson á Hammond, Ţorleifur (sjálfur) Guđjónsson á bassa, Pétur (sankti) Hallgrímsson á trommur og (heilagur) Jón Hilmar Kárason á gítar. Auk ţess ađ ţenja raddböndin sló (meistari) Garđar fagmannlega strengi á gítar sínum. Ţeir piltar koma allir úr Fjarđabyggđ. Óţarfi er ađ orđlengja ţađ ađ ţeir félagar eru allir afburđa hljóđfćraleikarar. Ágúst Ármann er mjög yfirvegađur á orgeliđ en fylgir ţeim félögum vel eftir og tekur sólóin sín af kostgćfni, ţegar honum er uppálagt, áreynslulaust en samt međ „fílingi“. Pétur er mjög ţéttur trommuleikari og enginn aukvisi ţar á ferđ, enda hefur mađurinn haldiđ takti hjá ýmsum ţekktustu hljómsveitum sem hafa vaxiđ upp úr norđfirzku tónlistarlífi og gert ţađ gott. Um hćfni Ţorleifs á bassann efast enginn, enda eftirsóttur á landsvísu og auk ţess er hann mjög lifandi á sviđi. Ţess utan blandar hann sér í sönginn og raddar áheyrilega í völdum köflum. Jón Hilmar hefur veriđ eitt bezt varđveitta leyndarmáliđ í hljómlistinni fram til ţessa, en ljóst ađ hann er kominn á landsmćlikvarđa í gítarleik og er ţví frambćrilegur á hvađa sviđi sem er. Garđar er lítill eftirbátur hans á gítarinn og blús söngvari er hann af guđs náđ og ađ mati annálsritara á hann ţar heima í landsliđshópi. Ekki var ţó flutningur ţeirra félaga gallalaus, enda ekki atvinnumenn í ţeim skilningi á ferđ. Ţeir vissu ţó yfirleitt upp á hár, hvađ ţeir voru ađ gera í lögunum en gleymdu ţví stundum ađ í upphafi skyldi endinn skođa ţví í einstaka tilvikum bar á óöryggi ţegar klára átti lögin. Hlé, sem ţeir félagar tóku á flutningi sínum, virtist gera ţeim gott, ţví ţeir mćttu tvíefldir til leiks og fóru ţá hreinlega á kostum. Ljóst er ađ Halldór Bragason og félagar ţurfa ađ hafa sig alla viđ í kvöld svo ţeir verđi ekki á endanum upphitunarsveit fyrir ţá Blúsbrotsfélaga, en líklega eru nú nokkur ár í ţađ.

Myndir frá kvöldinu má skođa međ ţví ađ smella hér
ÓB.
 

 

Heimasíđa Garđars Harđar