Topplistar
Séra Ólafs Björnssonar, doktors í einlægri
tónlistarspeki.
- Topp 15 yfir mínar uppáhaldsrokkplötur -
Nr. Plata --------------------------------------------------------
----------Lög
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
15. Clumsy -
Our Lady Peace--------------------------------------Superman's
dead, Big Dumb Rocket, 4 am,
Þegar Arnar kynnti mig fyrir þessu bandi árið
1999 þá hlustaði ég ekki á neitt annað
í heilt ár. Allar plöturnar þeirra eru snilld
en þessi stendur þó alltaf uppúr. Takk Arnar.
14. Superunknown - Soundgarden -----------------------------The
day I tried to live, Black hole sun
Það er engin lygi að Chris Cornell er með betri
söngvurum samtímans og Matt Cameron með betri trommurum
samtímans. Þeir sýna það báðir
á þessari plötu sem og reyndar á öllum
hinum líka en það er eitthvað rosalega sérstakt
við þessa.
13. Siamese dreams - Smashing Pumpkins
-----------------Geek USA, Disarm, Today
Ef þú hefur umgengist Gúnda einhvern tíma
á lífsleiðinni þá hefurðu umgengist
Smashing Pumpkins töluvert. Þessi plata heillaði mig
strax á rosalegum trommuleik Jimmy Chamberlain. Fyrst hlustaði
ég bara á trommuleikinn. Svo hlustaði ég
á lögin. Og þau voru líka svona helvíti
góð.
12. Rage against the machine - RATM--------------------------Bombtrack,
Wake up
Fullkomin riff, fullkomnir textar, fullkomin plata.
11. The Bends - Radiohead-----------------------------------------Fake
plastic trees, High & dry, My
Iron Lung
Að sýna það og sanna að Creep var ekkert
One hit wonder á svona hátt á ekki að vera
hægt. Heilsteyptari en andskotinn þessi plata.
10. Back in black - AC/DC-------------------------------------------Back
in black, You shook me all night long
Þetta gæti þess vegna verið Best of plata AC/DC.
Ekki dauður punktur.
9. Lifun - Trúbrot--------------------------------------------------------Am
I really livin?, What we believe in, Just another face
Þessi plata breytti lífi mínu talsvert. Ég
hélt að Íslendingar hefðu ekki kunnað að
gera alvöru rokkplötur í gamla daga. En það
gátu Trúbrotsmenn greinilega. Þessi kom út
1969 og var svo brjálæðislega langt á undan
sinni samtíð að það er eiginlega bara hlægilegt.
Gunnar Jökull sýnir það þarna að hann
er besti trommari Íslandssögunnar og var a.m.k. 10 árum
á undan sinni samtíð. Ef þið hafið
ekki hlustað á þessa plötu þá ætla
ég að biðja ykkur að gera það strax.
8. Vs. - Pearl Jam -----------------------------
------------------------Rearviewmirror, Elderly woman
Rosaleg Follow up plata. Og sándið toppaði næstum
því Ten sándið en þau eru reyndar svo
ólík að það er ekki hægt að
bera þau saman. Vedder sýnir alveg brjálæðislega
breidd í söngnum, jafnvel meiri en á Ten. Má
segja að þetta sé beint framhald af Porch...
7. Paranoid - Black Sabbath -------------
------------------------Electric Funeral, Iron Man
Þetta er náttúrulega
bara með svalari plötum allra tíma. Kemur út
1970 og hlýtur að hafa talist asskvíti þung.
Black Sabbath eru náttúrulega feður þungarokksins,
það er engin launung. Snilldarsánd og viðurstyggilega
svöl lög.
6 . Who's next - The Who--------------------------
-----------------Baba O'Riley, Won't get fooled again, The
song is over
Það er dálítið
erfitt að útskýra The Who. Þeir eru fyrirmynd
margra hljómsveita í dag, voru til dæmis með
þeim fyrstu til að taka upp á því að
rústa hljóðfærum á sviði. Þótti
nú ekkert voðalega smart á þeim tíma.
Rústuðu eftirminnilega öllum hljóðfærunum
sínum í þætti hjá Ed Sullivan eftir
að hafa þurft að mæma My Generation. Platan er
dásamleg. Hlustið bara á hana. Þetta voru
alvöru rokkarar, Pete Townshend með bowling múvið
á gítarnum eins og hann kallaði, Keith Moon snarvangefinn
á trommunum, Roger Daltrey með sína dásamlegu
rödd og John Entwistle þögla bassaleikaratýpan.
Dásamleg plata.
5. Blood sugar sex magik - Red hot chili peppers---
--Naked in the rain, My lovely man.
Þessi plata er einfaldlega æði.
Hún er æðislega æðisleg. Hef oft reynt
að fá leið á henni en það er bara
ekki hægt
4. Master of puppets - Metallica----------------------------------Master
of Puppets, Welcome home
Að leyfa sér að gefa
út 8 laga plötu og ætlast til að hún
verði meistaraverk er að sjálfsögðu bara rugl.
En það tókst. Aðeins hljómsveitum eins
og Black Sabbath og AC/DC hafði tekist þetta og þar
með sýndu Metallica að þeir voru strax þarna
orðnir með bestu þungarokkshljómsveitum allra
tíma. Hail to the master.
3. OK Computer - Radiohead--------------- --------------------
Climbing up the walls, No surprises
Þessi plata er ekki og verður
aldrei hægt. Eiðar 1997. Öll herbergi, alltaf OK Computer.
Maður sofnaði við hana og vaknaði við hana. Át,
drakk og svaf OK Computer. Those were the days...
2. The Wall - Pink Floyd--- -----------------------------------------Mother,
Comfortably numb, Hey You
Það er innan við ár
síðan ég fór að hlusta á Pink
Floyd. Og þeir hafa bara ekki látið mig vera síðan
þá. Ef þú ætlar að hlusta á
Pink Floyd af alvöru skaltu gera svo vel að búast
við því að hlusta á fátt annað
næsta árið. Upphaflega voru það nú
Dúndurfréttamenn sem urðu til þess að
ég fór að hlusta á Pink Floyd eftir að
ég heyrði þá flytja The Wall. Svo var bara
ekki aftur snúið. Flestir vilja nú meina að
Dark side of the moon sé þeirra besta plata en að
mínu mati er The Wall á toppnum. Svo eftir að hafa
hlustað á The Wall í hálft ár lánaði
Dóri Eiðs mér myndina og Guð minn almáttugur.
Allt í einu varð platan 10 sinnum betri. Tvöföld
plata og ekki dauður punktur. Það á ekki að
vera hægt.
1. Ten - Pearl Jam-------------------------------------
---------------Black, Porch, Release
Það er dáldið sniðugt
að segja frá því að áður fyrr
þoldi ég ekki Pearl Jam. Það voru allir að
hlusta á þetta helvítis band og ég gat
aldrei skilið hvað í andskotanum var svona merkilegt
við þá. Svo kom það. Sumarið 1997 ákvað
ég að gefa þeim séns. Fór til Gúnda
og fékk alla diskana lánaða og hann sá þá
ekki aftur fyrr en löngu seinna þegar ég var búinn
að kaupa safnið sjálfur. Persónulega finnst
mér rosalega erfitt að gera upp á milli platna Pearl
Jam, vegna þess að þær eru allar svo rosalega
ólíkar og rosalega góðar. En Ten er alltaf
sérstök. Besta Debut plata sem ég man eftir, sándið
fullkomið, flutningurinn gjörsamlega óaðfinnanlegur
og söngurinn eitthvað sem er erfitt er að útskýra.
Textarnir eru líka efni í BA ritgerð.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Aðrar plötur sem börðust
um hituna
Core - Stone Temple Pilots
Attack of the killer B's - Anthrax
Showbiz - Muse
Nevermind - Nirvana
Appetite for destruction - GNR
Stain - Living Colour
Chaos AD - Sepultura
Sixteen Stone - Bush
Black Album - Metallica
The color and the shape - Foo Fighters
Music for the jilted generation - Prodigy
Vulgar display of power - Pantera
Automatic for the people - R.E.M.
- Topp 15 yfir mínar uppáhalds
íslensku dægurlagaplötur
-
Nr. Plata ------------------------------------------------------------------------------
Lög
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
15. Pleased
to leave you - Hilmar Garðarsson----------------------Snowstorm,
Mr. Codein, Pleased
to leave you
Þessi plata heillaði mig
alveg sérstaklega. Ég vissi að Hilmar væri
eitthvað að grúska við lagagerð en þegar
þessi plata leit dagsins ljós gerði ég mér
grein fyrir því hversu snjall hann er. Topp músíkantar
með honum og ég mæli eindregið með plötunni.
14. Daybreak - Mezzoforte -----------------------------------------------------
Daybreak, Jorney's end, Roller coaster
Mezzoforte hefur lengi verið ein
af mínum uppáhalds. Þessi plata er að mínu
mati þeirra langbesta og varla hægt að segja að
það sé dauður punktur á henni fyrir utan
eitt lag sem heitir After hours og sýnir það hvesu
metnaðarlaus Friðrik Karlsson er í lagagerð....
13. Merman - Emiliana Torrini ---------------------------------------
-------The boy who giggled so sweet, Premieré Lovin'
Ég man eftir því
að þegar þessi plata kom út þá
hlustuðum við Raggi á hana á Eiðum dag eftir
dag og vorum svo heillaðir að samnemendur okkur voru orðnir
vissir um það að við værum snaröfugir.
En það var nú ekki svo. Platan er bara alveg hreint
frábær og Emiliana Torrini er fáránlega
góð söngkona og á ekkert annað en heimsfrægð
skilið.
12. Hljóðlega af stað - Hjálmar
----------------------------------------------Kindin Einar,
Varúð, Bréfið
Hjálmar er reggíhljómsveit.
Ég er sennilega eini maðurinn í heiminum sem hatar
Bob Marley út af lífinu og finnst hann með ofmetnari
tónlistarmönnum sem uppi hafa verið. Ég hata
reggí. Samt er ekki hægt að hata Hjálma. Þeir
eru bara alveg dásamlegir. Vissi ekki alveg hvað ég
átti að halda þegar ég heyrði Bréfið
fyrst. Gríðarlega blendnar tilfinningar og það
slógust í mér þessir tveir menn, þessi
sem hatar reggí og hinn sem að lokum vann, sá sem
elskar Hjálma.
11. Í gegnum tíðina - Mannakorn
------------------------------------------Sölvi Helgason,
Gamli góði vinur, Ef þú ert mér hjá
Mannakorn kunnu þetta alveg.
Þegar menn eru með Magga Eiríks í bandinu
þá þarf ekkert að hafa áhyggjur af restinni.
Ég man eftir að Bjössi Skúla lánaði
mér þessa plötu og hún var búin að
snúast djöfull marga hringi áður en ég
skilaði henni aftur.
10. SSSól - SSSól ------------------------------------------------------------------
Nostalgía, Epli, Þú kysstir mína
hönd
"Vá hvað þetta
er tussugóð plata" hefði einhver sagt.
9. Ágætis byrjun - Sigur Rós -------------------------------------------------
Flugufrelsarinn, Starálfur, Viðrar vel til loftárása
Þarf ég að skrifa
eitthvað hérna?
8. Með allt á hreinu - Stuðmenn
--------------------------------------------Sigurjón
digri, Ástardúett, Slá í gegn
Stuðmenn hittu andskoti vel á
naglann með þessari plötu og myndinni. Ég þarf
ekkert að útskýra hvað er gott við þessa
plötu vegna þess að ég held að 90% Íslendinga
kunni textana við öll lögin, meira að segja Maó
Gling.
7. Sögur af landi - Bubbi Morthens --------------------------------------
Sonnetta, Fjólublátt flauel, Blóðbönd,
Syneta
Það er af nógu að
taka þegar kemur að Bubba og ég var lengi að
ákveða hvaða plötu ég ætti að
velja sem mína uppáhalds með honum. Ég er
hræddur um að maður þykist eiga dáldið
í þessari plötu vegna þess að maður
er utan að landi og skilur stundum of vel um hvað hann er
að syngja.
6.
Sturla - Spilverk þjóðanna
------------------------------------------------Sirkus Geira
smart, Sturla, Arinbjarnarson
Bjössi
Skúla lánaði mér þessa líka.
Hann lánaði mér reyndar helvítis margar plötur
og þessi fékk að snúast meira en Í
gegnum tíðina með Mannakornum. Hún stoppaði
eiginlega ekki í nokkra mánuði. Spilverkið hafði
eitthvað sem öðrum hljómsveitum hefur ekki tekist
að leika eftir.
5. Megas - Megas ------------------------------------------------------------------Um
skáldið Jónas, Silfur Egils, Vertu mér samferða...
Ég man það að Þröstur
gaf mér þennan disk. Ég held að hann sjái
jafnvel dáldið eftir því :). Þeir sem
þekkja mig vita alveg að Megas er einn af mínum uppáhalds
og mér finnst Megas bestur þegar einungis er kassagítarleikur
og kannski smá flautur undir. Þessi plata er frábær.
Textana á að kenna í grunnskóla og finnst
mér það að krakkar eigi ekki að útskrifast
úr grunnskóla öðruvísi en að kunna
alla textana á þessari plötu.
4.
Sumar á Sýrlandi - Stuðmenn
-------------------------------------------Út á
stoppistöð, Strax í dag, Í bláum skugga
o.sfrv. :)
Jamm.
Þarf ekkert að útskýra. Það þekkja
allir lögin.
3. Deluxe - Nýdönsk --------------------------------------------------------------Sól,
Landslang skýjanna, Ást mín á þér
Nýdönsk
skipar andskoti stóran sess í mínu tónlistarlífi.
Þegar ég settist niður til setja þennan lista
saman þá vissi ég ekkert hverja af plötunum
þeirra ég ætti að setja hérna inn. Mér
finnst þær allar jafn góðar. En eftir löng
fundarhöld, rifrildi og sáttir komst ég að
því að þetta er uppáhaldsplatan mín.
Hráa sándið er það sem gerir þessa
plötu. Menn þurfa ekkert 600 tíma í stúdíói
til að gera góða plötu. Þeir tóku
þessa upp á 6 dögum. Það er ágætt.
2.
Á bleikum náttkjólum - Megas og Spilverk þjóðanna
-----Saga
úr sveitinni, Orfeus og Evridís, Paradísarfuglinn
Þegar
Megas og Spilverkið sameinast hlýtur eitthvað stórkostlegt
að gerast. Bjössi Skúla lánaði mér
þessa líka og fékk hún að snúast
meira en Í gegnum tíðina og Sturla til samans. Á
þessari plötu finnurðu allar tegundir af tónlist.
Fallegasta lag í heimi (Orfeus og Evridís), ljótasta
lag í heimi (Gamli skrjóðurinn), skemmtilegasta
lag í heimi (Saga úr sveitinni) og besta lag í
heimi (Paradísarfuglinn).
1. BJF - Björn Jörundur Friðbjörnsson
-----------Upprisan, Himnasmiðjan, Syndin, Eilífðin,
Handritið, Leikföngin
Þetta
kemur sennilega mörgum á óvart en líka fjölmörgum
ekkert á óvart. Menn vita alveg hvað Björn
Jörundur er í miklum metum hjá mér. Sumir
skilja það ekki, aðrir þola það ekki.
En kallinn er snjall þó að Jökull segi að
hann kunni ekkert að syngja en hann segir reyndar líka
að Ragnheiður Gröndal kunni ekkert að syngja þannig
að takiði því með fyrirvara sem hann lætur
út úr sér. Ég skal viðurkenna að
röddin í Birni er sérstök en hvað sem
öðru líður þá náði hún
að heilla mig. En þessi plata... úff. Seldist í
600 eintökum held ég. Var skotin niður og síðan
hefur ekkert til hennar spurst. Nema austur á Borgarfirði
kannski. Ég veit að Þröstur og Maggi Jóns
setja þessa plötu ofarlega á listann sinn. Platan
þarf tíma en ef þú sem ert að lesa þetta
hefur einhvern áhuga á tónlist þá
mæli ég með því að þú
prófir að renna þessari plötu í gegn.
Hún er sérstaklega vel samin, sniðugt konsept, frábærir
textar, einlægni, fjölbreytni, kjarkur. Ég held
að Björn sjálfur hafi ekki gert sér grein fyrir
því hvað hún er góð.
Aðrar sem
komu til greina:
Húsmæðragarðurinn - Nýdönsk
Millilending - Megas
Drög að upprisu - Megas og Nýdönsk
Lífið er ljúft - Bubbi Morthens
Fingraför - Bubbi (og Megas)
Garg - Sálin hans Jóns míns
Live
á Dubliner - Papar
Getum við ekki látið eins og hálfvitar? - Sniglabandið
Sinfónía - Todmobile (þessi átti að
vera á topp 5 en mér finnst Live plötur ekki eiga
rétt á sér á svona listum)
Get ég tekið séns? - Grafík
Bein leið - KK
- Topp 11 yfir mínar uppáhalds íslensku rokkplötur
-
Nr. Plata ----------------------------------------------------------------Lög
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
11. GCD
- GCD
----------------------------------------- -Hér
er nóg, Hamingjan er krítarkort, Kaupmaðurinn á
horninu
Helvítis hellings góð plata.
Flestir nefna nú Svefnvanaplötuna þegar minnst er
á GCD en mér finnst þessi alltaf betri. Trommuleikurinn
í Hér er nóg er náttúrulega bara
asnalegur enda er Gulli Briem mjög asnalegur maður. Flott
lög og ótrúlegt hvað hægt er að gera
góða plötu með fáum gripum.
10. Bubbi Morthens - Ísbjarnarblús
-----------------------Agnes og Friðrik, Ísbjarnarblús,
Stál og hnífur
Frábær
debut plata. Bubbi sýndi með þessu stykki hvað
koma skyldi en hefðu nú sennilega fáir getað
ýmindað sér þegar þessi kom út
að hann ætti eftir að syngja Það er gott að
elska og Sem aldrei fyrr 12-13 árum seinna.
9. Brain Police - Brain Police ------------------------------
--Rocket fuel, Jaccuzy Suzy, El Duderino
Ógeðslega
svöl plata og Brain Police komu með það sem vantaði
í íslenskt rokk, svalt, þungt, feitt, loðið
og hrátt rokk. Ekkert rugl, bara allt stillt á 11 og
Jens Ólafsson söngvari sýnir þarna að
hann er með betri rokksöngvurum sem við höfum átt.
Þegar ég heyrði Jaccuzy Suzy fyrst þá
trúði ég ekki að þetta væri íslenskt
band og alls ekki íslenskur söngvari. Röddin minnir
mig helst á Chris Cornell, veit ekki hvort aðrir séu
sammála en eftir því sem ég best veit er
Chris Cornell uppáhaldssöngvari Jens. Frábær
plata.
8. Lili Marlene - Das Kapital
-------------------------Leyndarmál frægðarinnar,
Snertu mig, Blindsker, Lili Marlene
Vá
hvað ég hlustaði mikið á þessa plötu
í eina tíð. Átti kassettuna og spólaði
alltaf yfir fyrstu 1 og 1/2 mínútuna í Lili Marlene
laginu til að heyra þegar þeir settu allt í
botn í því. Þoldi ekki rólega kaflann
í byrjuninni þó að mér finnist hann
mjög flottur núna. Byrjunin í Snertu mig var með
því fyrsta sem ég lærði á gítar
og fannst það svo flott að ég gat spilað
það allan daginn.
7. Halldór Laxness - Mínus
-----------------------------------
Romantic Exorcism, Long face, Here comes the night
Fínt
þegar ég spurði Arnar og Gúnda hvort þeir
höfðu hlustað á Halldór Laxness með
Mínus að þeir lýstu því yfir
að þetta væri ömurlegt band og Krummi væri
ömurlegur söngvari og úthúðuðu bandinu
á allan hátt. Vona að þeir séu búnir
að éta það ofan í sig núna.
6. Jet
Black Joe - Jet Black Joe
------------------------- --Take me away, Stepping stone, Coming
in
Ég hef aldrei
verið sérstaklega mikill aðdáandi Jet Black
Joe. Hlustaði þó svakalega mikið á þessa
plötu því Jakó systir átti hana. Ég
hélt á þeim tíma að þetta hlyti
að vera besta hljómsveit í heimi, það
gat bara ekki annað verið. Þær plötur sem
fylgdu í kjölfarið fannst mér aldrei neitt
sérstakar og svo fékk ég alveg nóg þegar
helvítis Best of platan, You can have it all, kom út.
Þar vantaði þrjú langbestu lögin þeirra
(þau sem ég taldi upp hérna fyrir ofan). Svo þegar
kombakkið kom þá lýsti ég því
yfir og hef staðið við það síðan
að ég hata Jet Black Joe. Þó get ég
ekki annað en elskað 2/5 af þessu bandi en ég
kem að því síðar. Þó ég
hati Jet Black Joe er þessi plata rosaleg.
5. Geislavirkir - Utangarðsmenn
-----------------Samband í Berlín, Poppstjarnan,
Viska Einsteins, Hiroshima
Fór
til Snæbjargar og Bjarts og kóperaði þessa
plötu yfir á spólu og hlustaði fram og aftur
á hana. Mikið rosalega fannst mér hún góð
og finnst enn. Bjartur gat sagt mér ógrynni af sögum
af Utangarðsmönnum, sem voru ábyggilega allar lygi,
en góðar samt og ég drakk í mig fróðleikinn
sem vall útúr honum. Bubbi Morthens tekur þátt
í 4 af 10 plötum hérna á listanum og er
sennilega bara kóngurinn.
4. Lof mér að falla að
þínu eyra - Maus
-------------- --90 kr perla,
Poppaldin, Ég ímeilaðig, Kristalnótt
Þetta
er alveg dásamleg plata. Maus hefur eitthvað sem er erfitt
að skýra. Kannski eru það textarnir, það
er gríðarleg einlægni í því sem
þeir gera og söngurinn í Birgi Erni nær allavega
að heilla mig upp úr skónum. Þeir sem segja
að hann sé lélegur söngvari eru einfaldlega
ekki að hlusta. Ég hef aldrei fengið leið á
þessari plötu og ég held að það sé
bara ekki hægt.
3. Þursabit - Hinn íslenzki Þursaflokkur
-------Sigtryggur vann, Brúðkaupsvísur, Æri-Tobbi,
Bannfæring
Hvað
er hægt að segja um Þursaflokkinn? Þetta var
svo óútskýranlegt fyrirbæri og hugmyndin
að spila rokkmúsík við fleiri hundruð ára
gamlar vísur þótti nú frekar furðuleg.
En útkoman var svona líka stórkostleg. Bjössi
Skúla lánaði mér þessa plötu eins
og nokkrar aðrar. Þegar jafnaldrar mínir voru að
hlusta á Prodigy og Oasis þá var ég að
hlusta á Þursaflokkinn og þótti náttúrulega
stórskrýtinn fyrir vikið. Ég held samt að
mér hafi ekkert orðið meint af því að
hlusta á þá. Tónlistarlegur skilningur
minn náði allt öðru leveli eftir að ég
fór að hlusta á þá og þessi plata
er einfaldlega ekki hægt. Ásgeir Óskars hefur
aldrei reynt að leika eftir trommuleik sinn á plötunni
og lagasmíðarnar þykja of flóknar til að
nokkur hafi reynt að covera þessi annars frábæru
lög. Mæli með trommusólóinu í
Bannfæring. Dálítið furðulegt.
2. Lifun - Trúbrot
------------------------------------Am
I really livin?, What we believe in, Just another face
Jahá. Nú spyrja sig flestir af
hverju þessi plata er ekki í efsta sæti úr
því að hún komst inn á fyrsta listann
yfir uppáhaldsrokkplötur mínar. Svarið er einfalt:
Ég veit það ekki. Kannski komst hún þangað
inn af því að hún er sungin á ensku
ólíkt þeirri sem trónir hér á
toppnum. Mér fannst hún bara passa einhvernvegin inn
á fyrsta listann. Þið getið lesið allt um
hana þar.
1. Kafbátamúsík
- Ensími
-----------------------Flotkví,
Arpeggiator, Gaur, Atari, Kælibox, Naglabassi
Ég
minntist á 2/5 í umfjöllun minni um Jet Black Joe.
Þeir eru semsagt í þessu bandi sem sem á
mína uppáhaldsrokkplötu. Þegar þessir
tveir drengir Hrafn Thoraddsen og Jón Örn Arnarson fengu
loksins að láta ljós sitt skína varð
útkoman Kafbátamúsík með Ensími.
Fyrir mér varð Jet Black Joe ekki alvöru band fyrr
en það hét Ensími rétt eins og Nirvana
varð ekki band að mínu skapi fyrr en það
hét Foo Fighters.... Neinei, þetta var nú bara
grín hjá mér. Hrafn og Jón fengu í
lið með sér snillinga í hverja stöðu
og í hvert skipti sem ég hlusta á þessa
plötu heyri ég eitthvað nýtt sem hífir
hana hærra upp. Þetta er svo þétt rokk að
ég er viss um að það yrði ekki svona þétt
ef Brain Police og Mínus myndu spila saman. Við Óskar
Ragnarsson hlustuðum á þessa plötu þegar
hún var nýkomin út og held ég að hún
hafi gengið allan veturinn í Menntaskólanum. Síðan
hefur Ensími verið mitt uppáhalds íslenska
rokkband. Mér finnst þeir aldrei hafa toppað þessa
plötu en þeir verða samt einhvernveginn betri og betri.
Þó fannst mér þeir misstíga sig svolítið
þegar þeir fóru að syngja á ensku. Einfaldlega
vegna þess að textarnir eins og t.d. við Kafbátamúsík
hefðu alveg getað virkað í útlöndum.
Og það er einfaldlega vegna þess að þeir
eru ekki að semja of innihaldsríka texta, heldur texta
sem passa fullkomlega við músíkina. Hvert orð
passar einhvernveginn við hvern tón. Mér finnst
þetta ekki síður aðdáunarvert heldur en
að semja virkilega vel saminn og innihaldsríkan texta.
Mér finnst þeir ekki alveg hafa náð þessu
með því að syngja á ensku. En ef það
er einhver, sem er að lesa þetta, sem hefur ekki hlustað
á þessa plötu þá á hann mikið
eftir. Fullkomin
plata á allan hátt.