Norrćna félagiđ á Akureyri

Fćreyjar sumariđ 2008

Forsíða
Fræðslukvöld

26. júní
27. júní
28. júní
29. júní
30. júní
1. júlí
2. júlí
3. júlí

Kort

Ferðalangar

Fararstjórinn

Tölvupóstur til fararstjórans

Almennt um ferðina

Norræna félagið á hefur á undanförnum árum gengist fyrir ferðum um slóðir norrænna manna við norðanvert Atlantshaf. Tvívegis áður hefur verið farið til Færeyja, hópar hafa gengið og siglt um Eystri byggð á Grænlandi og loks hafa menn haldið á slóðir forfeðranna á Orkneyjum, Katanesi og Suðureyjum.

Nú er komið að enn einni ferðinni til Færeyja. Stefnt er að því að sigla utan með Norrænu fimmtudaginn 26 júní og koma til baka viku síðar.

Dagskráin í Færeyjum er í mótun, en stefnt er að því að fara víða um eyjarnar, akandi og siglandi. Síðast en ekki síst er stefnt að nokkrum léttum gönguferðum um gamlar þjóðgötur á eyjunum.

Fararstjóri í ferðinni verður Jónas Helgason, landafræðikennari við Menntaskólann á Akureyri, en hann hefur einnig stjórnað fyrri Færeyjaferðum félagsins auk ferðanna um Orkneyjar og Suðureyjar.

Stefnt er að tveimur fræðslukvöldum á Akureyri í febrúar til undirbúnings ferðarinnar. Einnig er gert ráð fyrir einu slíku kvöldi á Laugum í Reykjadal.

Stefnt er að því að halda verðinu innan við 100.000 krónur á mann í tveggja manna herbergi. Innifalið er siglingin, allar rútuferðir, ferjur, gistingar með morgunverði, leiðsögn og fararstjórn.

Ferðin fram og til baka á Seyðisfjörð er ekki innifalin. Gert er ráð fyrir að hver og einn sjái um að koma sér þangað. Þar skiljum við bílana eftir og göngum um borð með okkar hafurtask. í Færeyjum leigjum við okkur svo rútu eftir þörfum.

Frekari upplýsingar verða færðar inn á þennan vef jafnharðan og þær liggja fyrir.

Myndir og upplýsingar um allar byggðir í Færeyjum Faroeislands.dk

13. febrúar

Nafnalistinn er að orðinn nokkuð traustur og búið að bóka klefana í Norrænu samkvæmt honum. Það var mikið púsluspil, en vonandi að allir sætti sig við klefafélagana. Raunar eru nokkrir endar lausir ennþá og því verður smábið á að menn frétti "hver sefur hjá hverjum".

20. janúar 2008

Smábreytingar hafa orðið á nafnalistanum, svona eins og gengur. Ég hef í samráði við Gunnar Skúvadal, þann sem gerir út bátana frá Vestmanna, ákveðið að fá hann til þess að fara með okkur í heils-dags ævintýrasiglingu um slóðir sem ekki teljast hefðbundnar ferðamannaslóðir. Við munum sigla frá Þórshöfn og koma við á eyjunum Hestur, Koltur, Sandey og Skúvey (sjá kortið). Mér finnst ekki ráðlegt að stefna að því að gera þetta síðasta daginn og mun því örugglega færa áður birta dagskrá eitthvað milli daga.

15. janúar 2008

Nú er gjörsamlega fullbókað, komnir 35 farþegar á listann. Það er að mínu mati algjört hámark, en treysti því að hópurinn láti vel að stjórn þrátt fyrir stærðina

11. janúar 2008

Gisting hefur verið staðfest á gistihúsinu Skansin. Vegna stærðar hópsins gæti þó verið að hluti hans verði á öðru gistihúsi, Bládýpi. Bæði gistihúsin eru í miðbæ Þórshafnar. Nafnalisti er kominn á síðuna "ferðalangar". Hann ber þó að taka með miklum fyrirvara, þar eru raunar allir skráðir sem hafa lýst löngun og vilja til að slást í förina. Stórt kort er komið á vefinn þar sem búið er að merkja þær leiðir sem við munum væntanlega aka, ganga og sigla.

  Desember 2007 Jónas Helgason (Uppfært í júní 2008)