| AGATHA CHRISTIE ÍSLENSKA HEIMASÍÐAN |
HERCULE POIROT
Belgíski einkaspæjarinn Hercule Poirot kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1920 í fyrstu bók Agöthu Christie, The Mysterious Affair at Styles (Hús leyndardómanna, 1963). Síðan skrifaði Agatha um hann fjölda bóka, og kom sú síðasta út árið 1975, Curtain: Poirot's Last Case.
Poirot hefur fjölmörg séreinkenni sem hafa gert hann ódauðlegan í augum lesenda um allan heim, t.d. furðulega yfirvaraskeggið, egglaga andlitið, og gífurlegt sjálfsálit. En þó verður hans líklega minnst helst fyrir ótrúlega hæfileika til að leysa flókin glæpamál með því að nota "litlu gráu frumurnar". Hann var hvað það varðar verðugur arftaki Sherlock Holmes, sem Arthur Conan Doyle skapaði undir lok síðustu aldar.
Hercule Poirot, maðurinn á bak við spæjarann, er orðinn það frægur sem sjálfstæð persóna að bókasafnsfræðingur og rithöfundur á Nýfundnalandi, Anne Hart, hefur samið ævisögu hans, sem kallast The Life and Times of Hercule Poirot. Anne Hart hefur einnig samið ævisögu fröken Jane Marple.
En Poirot var ekki alltaf einn á ferð. Í fyrstu sögunum um hann fylgdi Arthur Hastings höfuðsmaður honum hvert fótmál. Hastings var mjög áhugasamur um lausn mála og hjálpaði stundum til. Í síðari bókum Agöthu um Poirot kom Hastings mun sjaldnar við sögu, en þá voru stundum í staðinn komnir aðrir kunningjar Poirots, svo sem rithöfundurinn frú Ariadne Oliver og Japp lögregluvarðstjóri.
Margir hafa reynt að leika hinn snjalla belgíska einkaspæjara Hercule Poirot. Austin Trevor varð líklega fyrstur til að túlka hann á hvíta tjaldinu í þremur kvikmyndum snemma á fjórða áratugnum (Alibi, Black Coffee og Lord Edgware Dies). Tony Randall reyndi að leika Poirot í einni mynd árið 1965, The Alphabet Murders, og varð einum gagnrýnanda að orði að sú mynd fengi Agöthu til að velta sér við í gröfinni. Árið 1974 kom svo annar óvenjulegur Poirot, Albert Finney, í Óskarsverðlaunamyndinni Morðið í Austurlandahraðlestinni, þar sem hinir grunuðu voru leiknir af heimsfrægum leikurum, svo sem Ingrid Bergman, Sean Connery, John Gielgud, Lauren Bacall. Árið 1978 lék Peter Ustinov spæjarann í myndinni Dauðinn á Níl, en sú mynd var einnig stjörnum prýdd. Ustinov hefur síðan leikið í nokkrum öðrum Agöthu Christie myndum, svo sem Evil Under the Sun, Appointment With Death og nokkrum sjónvarpsmyndum. Nýjasti kaflinn í sjónvarpssögu litla mannsins með yfirvaraskeggið hófst svo árið 1989 þegar David Suchet hreif aðdáendur Agöthu með frábærum leik sínum í sjónvarpsþáttum sem sýndar hafa verið hér á landi og eru margir sammála um það að hann sé hinn eini sanni Hercule Poirot. Eftir að þáttunum lauk hefur Suchet leikið í nokkrum sjónvarpsmyndum byggðum á bókum um Poirot.