Frá Flatey

Markaðsmál, almannatengsl, rafræn stjórnsýsla og nýmiðlun

Forsíða
Frumsamið
Efst á baugi
Tenglar

Jón Heiðar

English

Blogg

Greinar frá The Economist

Technology Quarterly
Sjálfsafgreiðsla og vöxtur hennar

Fastlínusíminn og farsíminn að renna saman í eitt


Ráðstefna Almannatengslafélags Íslands um samhæfð markaðssamskipti
Almannatengslafélag Íslands hélt ráðstefnu 18. september 2003 sem bar yfirskriftina Samhæfð markaðssamskipti: Almannatengsl, orðstír og árangur.
Glærur frá ráðstefnu

Nauðsyn þess að meta árangur almanatengsla
Á vef KOM fjalla þau Óli Jón Jónsson og Liz Bridgen um nauðsyn þess að mæla árangur af almannatengslum og kynningarstarfi.

Tónlistarsala hefst á Netinu fyrir alvöru
CNN og The Economist fjalla um frumkvæði Apple í sölu á tónlist á Netinu (sjá einnig fréttatilkynningu frá Apple). Síðar á þessu ári munu notendur með Windows stýrikerfið líklega geta keypt sér lög á innan við hundrað íslenskar krónur. Steve Jobs sér fyrir sér að tónlist verði skyndivara og nefnir sem dæmi að margir kaupi sér kaffibolla fyrir þrisvar sinnum hærri upphæð. Gangi þessar fyrirætlanir eftir má líklega segja að Apple hafi breytt tónlistariðnaðinum, rétt eins og fyrirtækið breytti upplýsingatækniiðnaðinum.Hér á landi eru það frumkvöðlar hjá Tónlist.is sem varða veginn í þessum efnum.
Úttekt á áhrif nýmiðlunnar á íslenska tónlistariðnað (september, 2002)

Viðauki The Economist um upplýsingatækniiðnaðinn
The Economist fjallar um upplýsingatækniiðnaðinn og þroskaferil hans í sérstökum viðauka.

Hvernig á að kynna nýja vöru?
Áslaug Pálsdóttir skrifar í 1. tbl. Frjálsrar verslunnar og fjallar þar um hvernig standa skal kynningu á nýrri vöru. Þar vekur hún athygli á því að almannatengsl eru vannýtt þegar fyrirtæki setja nýja vöru eða þjónustu á markað. Hún leggur áherslu á að áhugi, frumkvæði og þátttakanda stjórnenda skipti miklu fyrir þann árangur sem næst þegar ný vara og þjónusta er markaðssett. Ennfremur er sagt frá því að auglýsingar hafi misst áhrifamátt sinn til þess að byggja upp ný vörumerki. Þær nýtast betur til að viðhalda og minna á vörumerki. Þegar nýtt vörumerki er byggt upp dugi betur að beita almannatengslum. Og hún lýkur grein sinni með því að segja: ,,Fáar vörur verða langlífar ef þær standast ekki væntingar neytanda."

Því miður fannst greinin ekki á Netinu.

Hvernig tekst þú við áfall

Ómar R. Valdimarsson tók saman nokkra áhugaverða punkta um krísustjórnum á vef KOM. Hann mælir m.a. með að fyrirtæki beiti fyrirbyggjandi aðgerðum:

  • Búðu til krísuteymi. Fólkið í þessu teymi á að standa vörð um ímynd fyrirtækisins og þarf að geta unnið samhent undir miklu álagi
  • Vertu vakandi. Forsvarsmenn fyrirtækisins þurfa að gera starfsmönnum sínum grein fyrir aðstæðum sem gætu flokkast undir áfall.
  • Hvað getur komið fyrir? Þú þekkir þitt fyrirtæki best og veist hvers konar aðstæður geta komið upp. Ef þú skrifar þær ekki niður getur þú ekki notast við þær í krísuástandi.
  • Gerðu lista. Skrifaðu niður – lið fyrir lið – hvað þarf að gera á meðan krísuástandi stendur.
  • Hafðu allt innan seilingar. Tryggðu að þú hafir allt það sem þú gætir þurft á að halda í seilingarfjarlægð.
  • Æfingin skapar meistarann. Viðbrögð við neyðarástandi þarf að æfa.
  • Leitaðu til fagmanna.

Meira hér

Tónlistariðnaðurinn er í kröggum
face="Arial, Helvetica, sans-serif">
The Economist fjallar um hvernig tónlistariðnaðurinn reynir að bregðast með ólöglegum afritunum
Meira

Listi yfir þau lönd sem helst nýta sér upplýsingatækni
World Economic Forum hefur gefið út lista yfir þau lönd sem helst geta nýtt sér upplýsingatækni. Ísland er í fimmta sæti en var í öðru sæti í fyrra.

Framtíð Netsins og áhrif þess á mannleg samskipti, stjórnmál og einkalíf
The Economist tekur á mörgum álitamálum sem tengjast Netinu og framþróun þess í nýrri úttekt. Þar er m.a. bent á að tilkoma og útbreiðsla Netsins feli í sér að fólk þurfi að semja upp á nýtt þær óformlegu reglur sem gilda manna á milli. Í úttektinni er einnig fjallað um eftirfarandi:

Wal Mart aðalfyrirtækið í Ameríku
Stórfyrirtæki vestan hafs þurfa að koma vörum sínum á framfæri við almenning. Það gera þau að stórum í hluta í gegnum verslanir Wal Mart. Og allir vita hver ræður ferðinni í þeim viðskiptum.
Meira á vef Fortune

Samkeppni um uppbyggingu rafrænna samfélaga
Byggðastofnun mun velja tvö til fjögur byggðarlög á landsbyggðinni til að taka þátt í þróunarverkefnumá árunum 2003-2006. Byggðarlögin fá framlag frá íslenska ríkinu til að hrinda í framkvæmd eigin hugmyndum og áætlunum um framgang upplýsingasamfélagsins á sínu svæði .
Meira á vef Byggðastofnunar

Dagleg notkun tölvupósts
Helgi Hjálmtýsson skrifar fróðlegan pistil um notkun og meðferð tölvupósts. Helgi er jafnframt umsjónarmaður www.vidmot.is.
Lesa greinina


Frumlegt viðhorf útgefanda til dreifingu efnis á Netinu
Tim O´Reilly er stofnandi og forstjóri tölvubókaforlagsins O´Reilly & Associates. Hann sér fátt athugavert við dreifingu efnis á Netinu en hér spáir hann í framtíðina.

Eldra efni

Myndir og texti eftir Jón Heiðar Þorsteinsson - Hafðu samband