Að
sigrast á íhaldssemi markaðarins
1. ágúst
2004
Í marshefti Harvard
Business Review fjallar Bhaskar Chakravorti um hvernig frumkvöðlar
verða að taka tillit til kerfa (e. networks) á markaði. Grein hans nefnist
The
New Rules of Bringing Innovations to Market. Hann hefur skoðað árangur
stórfyrirtækja og frumkvöðlafyrirtækja við að setja nýja vöru á markað
í 12 ár og er grein hans afrakstur þeirrar vinnu.
Chakravorti telur að markaðir
séu, eins og náttúran, fjandsamleg nýjungum og að þeir beri í sívaxandi
mæli einkenni flókinna samtengdra kerfa (e. Networks) með mörgum gerendum.
Því verði frumkvöðlar að líta til annarra þátta en eiginleika vörunar
sem þeir eru að reyna að koma á framfæri.
Sækja endursögn
(32KB á pdf-formi)