Þingvallavatn og Nesjavellir

Markaðsmál, almannatengsl, rafræn stjórnsýsla og nýmiðlun

Forsíða
Frumsamið
Efst á baugi
Tenglar

Jón Heiðar

English

Blogg

"Permissison Marketing"
29 maí, 2001

Má ég segja þér frá þessari vöru ?
Hver hefur ekki lent í því að þurfa að sitja í gegnum runu af auglýsingum rétt áður en uppáhaldssjónvarpsþátturinn byrjar eða vera truflaður í matartímanum af símasölufólki? Seth Godin í bók sinni Permission Marketing hvetur markaðsfólk til að læra nýja siði og þar getur Netið gegnt lykilhlutverki.
Tími + athygli = fullt af peningum
Seth Godin gengur út frá því að mikilvægustu eignir nútímamannsins séu ekki peningar eða aðrar veraldlegar eignir, heldur einfaldlega tími hans og athygli. Þó að lífið sé margfalt auðveldara fyrir nútímamanninn en það var fyrir fyrri kynslóðir þá þjáist nútímamaðurinn stöðugt af tíma- og athyglisskorti.
Ótal hlutir keppa um athygli manna og þeir sem selja vöru og þjónustu verða stöðugt herskárri í baráttu sinni við að hafa sem hæst. Auglýsingar eru allsstaðar en bókarhöfundur segir að baráttan sé fyrirfram töpuð, menn séu farnir að henda peningum á örvæntingarfullan hátt. Eftir því sem menn auglýsa meira á hefðbundinn hátt, því verra verður vandamálið. Tilkoma Netsins og harðnandi samkeppni hefur átt sinn þátt í því að fjölmiðlun virkar ekki lengur, fjöldaframleiðsla á undir högg að sækja.
Eigum við að prófa að tala við þessa viðskiptavini?
Samkvæmt Godin verður markaðsfólk að þekkja vitjunartíma sinn og breyta um aðferðir. Nú er kominn kominn tími til að líta til baka og horfa til þeirra tíma þegar fjölmiðlun og fjöldaframleiðsla var enn ekki kominn til sögunnar. Nú sé lag til þess að fara að hlusta á viðskiptavininn, koma á samræðum við hann alveg eins og þegar kaupmaðurinn á horninu þekkti viðskiptavini sína og hafði áhuga á því að ræða við þá.
Truflum þá varlega
Godin viðurkennir að markaðsmenn verði alltaf að "trufla" viðskiptavininn fyrst í stað en hann mælir með því að nútímagagnagrunnstækni sé nýtt til þess að tryggja að rétta fólkið sé truflað á réttum tíma. Markaðsfólk á síðan að temja sér þolinmæði, bjóða viðskiptavininum eitthvað í staðinn fyrir tíma hans og athygli og leita stöðugt eftir því að útvíkka sambandið við viðskiptavininn, hægt og rólega. Fyrst og fremst á að umbuna fólki fyrir að verja tíma sínum í að hlusta á markaðsskilaboð fyrirtækis.
Hvað kemur Netið þessu við?
Netið getur verið draumavettvangur þeirra sem vilja gera hlutina öðruvísi. Það er jú miðillinn sem byggir á upplýsingagjöf og samskiptum. Ef við yfirfærum þessa sýn Godin á markaðsátak á Netinu þá þýðir það að fyrirtæki verða að breyta um viðhorf. Í stað þess að fjárfesta í eináttarmiðlun verða þau að fjárfesta í gagnvirkni en fyrst og fremst verða þau að vilja tala við þá viðskiptavini sína sem vilja nálgast þau. Þar liggur hundurinn grafinn. Þegar fólk hefur farið inn á vef einhvers fyrirtækis þá hefur það lýst yfir vilja sínum til að skoða fyrirtækið nánar, fá upplýsingar um vöru þess og þjónustu en fyrst og fremst ná sambandi við fólkið sem vinnur þar.
Smelltu hér
Fæst íslensk fyrirtæki gera viðskiptavinum sínum þetta mögulegt. Enn færri reyna að byggja upp einhverskonar langtímasamband við viðskiptavini sína. Örfá vita nákvæmlega hverjir þessir viðskiptavinir eru og hvað þeir vilja. Tilraunir íslenskra fyrirtækja við auglýsingar á Netinu sýna glöggt erfiðleika manna við að vinna með hinu gagnvirka Interneti.

Því miður er það svo að flest fyrirtæki nálgast markaðsstarf sitt út frá gamla úrelta eináttarmódelinu. Dragi menn upp sterkar línur er ástandið einhvern vegin svona:

Fyrirtæki

Stundar markaðsstarf, fjárfestir í ímyndarvef

Auglýsir vef

Svarar ekki tölvupósti

Afhendir seint og illa vöru sem pöntuð er á vef

Uppfærir ekki vef

Auglýsir vöru, gleymir að segja viðskiptavini hvernig hann nálgast hana

Sendir óumbeðinn tölvupóst

Gefur netföng upp til þriðja aðila, án leyfis viðskiptavina

Kaupir ímyndarauglýsingar til að vinna gegn illu umtali

Viðskiptavinur

Nennir ekki að bíða eftir hringsnúandi lógóinu á ímyndarvefnum

Fær ekki svör við fyrirspurnum

Fer á póstlista á netinu og kvartar undan óumbeðnum tölvupósti

Kvartar við vini og kunningja, varar við fyrirtæki

Lætur ímyndarauglýsingar fara í taugarnar á sér, þær eru fyrir uppáhalds- sjónvarpsþættinum

Breyti fyrirtæki viðhorfum sínum og horfist í augu við þróunina getur það byrjað að vinna með viðskiptavinum sínum, í stað þess að vinna á móti þeim.

Fyrirtæki

Stundar markaðsstarf, setur upp vef

Uppfærir vef stöðugt

Svarar fyrirspurnum

Hefur skýra stefnu hvað varðar öryggi greiðslumiðlunar

Hefur skýra stefnu um meðferð netfanga

Umbunar fyrir þátttöku

Afhendir vöru

Notar endursvörun og uppfærðan gagnagrunn til að fínstilla markaðsstarfs sitt

Viðskiptavinur

Fer á vef

Skráir sig á póstlista

Tekur þátt í könnun eða leik

Samþykkir að fá markaðsskilaboð send frá fyrirtæki

Kaupir vöru eða þjónustu

Veitir viðbrögð við vöru og þjónustu

Segir vinum og kunningjum frá vef, vöru eða þjónustu

Tökum okkur kaupmanninn á horninu til fyrirmyndar og ræðum við viðskiptavinina sem jafningja.

 

 

 

 

 

 

Myndir og texti eftir Jón Heiðar Þorsteinsson - Hafðu samband