Styrkleikar
og veikleikar vefsetra í markaðsstarfi
29.
mars, 2003
Á
dögunum fékk ég fyrirspurn í tölvupósti um hvað ég teldi vera helstu
styrkleika og veikleika vefsetra sem markaðs- og kynningartæki fyrir
fyrirtæki. Eftir nokkra umhugsun þá dró ég fram eftirfarandi þætti (aðeins
uppfært og lagfært).
Vefurinn
á að vera hluti af starfsemi og þjónustu fyrirtækisins
Aðalatriði er að rekstur, framsetning og efnistök vefseturs sé
í góðum tengslum við aðrar dreifileiðir, upplýsingaveitur og þjónustuleiðir
fyrirtækisins. Það á að vera starfrækt út frá markaðsstefnu,
almannatengslum og viðskiptastefnu fyrirtækisins og styðja við aðra
starfsemi þess. Markmið með rekstri þess eiga að
vera ljós og fylgja vandlega mótaðri stefnumótun.
Náist þetta skipta
einstakir hnökrar litlu máli. Það er alltof algengt að vefsetur
eigi einskonar sjálfstætt líf frá annarri starfsemi fyrirtækja og er
það yfirleitt stærsti veikleiki þeirra.
Nokkrir
hugsanlegir styrkleikar
24/7
þjónusta
Vefurinn
getur verið opinn allan sólarhringinn
Gagnvirkur
stuðningur við þjónustuver, kynningu og sölu
Vefurinn
getur innihaldið sérhæft efni eins og t.d. vörulýsingar og leiðbeiningar.
Þannig getur vefsetrið minnkað álag á starfsfólk og gefið því betri
tíma til að sinna ráðgjöf og sölu til viðskiptavina.
Hægt er að styrkja tengsl við
viðskiptavini og aðra mikilvæga markhópa með því að bjóða þeim aðgang
að lokuðu viðskipta- og þjónustusvæði á Netinu.
Vefurinn
getur auðveldað aðgengi að tengiliðum (sölufólki, almannatengslafólki,
þjónustufulltrúum).
Fái notendur til þess
rétta hvatann geta þeir séð um að markaðssetja
vefsetrið og þjónustu þess fyrir þig. Þetta
er hægt með því að hafa áhugavert
efni á vefnum sem hægt er að senda á vini, samstarfsmenn
og fjölskyldumeðlimi eða með því hreinlega
að bjóða umbun fyrir ef notendur fá aðra til
þess að skrá sig á vefsvæðinu.
Margmiðlun
Sívaxandi
möguleikar eru til þess að nota hreyfimyndir og hljóð á vefnum.
Ný
dreifileið
Vefurinn
getur opnað fyrirtækjum leið að nýjum mörkuðum í útlöndum með tiltölulega
hagkvæmum hætti. Þetta á sérstaklega við ef boðið er upp á afar sérhæfða
vöru og þjónustu (þetta minnir á gamla brandaranum um að
markaðurinn á Íslandi með vörur fyrir örvhenda golfara sé agnarsmár
en hann sé risastór á heimsvísu).
Nokkrir
hugsanlegir veikleikar
24/7 krafan
Tryggja þarf að vefur sé uppi helst allan sólarhringinn, allt árið um
kring. Þetta getur kostað sitt.
Mikil
vinna
Skipuleggja
þarf aðgengi að upplýsingum vel og vandlega - annars geta símtöl í þjónustuver
farið að snúast að miklu leyti um það að reiðir netnotendur finna ekki
upplýsingar á Netinu!
Ef
ætlunin er að kynna vefsetur í útlöndum þarf það að henta þörfum notenda
þar en fyrst þarf að huga að því hvort Internetnotkun í viðkomandi landi
sé nægileg til að réttlæta kostnað og vinnu við að koma upp vefsvæði
fyrir þann markað.
Áreiti
af tölvupósti
Séu
netföng á vefjum opinber geta borist þangað mikið magn af ruslpósti
- þjálfa þarf starfsfólk til að svara tölvupósti með skilvirkum hætti.
Vefurinn
er "passívur" (hlédrægur) miðill
Notendur þurfa einhvern hvata til að fara inn á hann. Hann þarf að kynna
með einhverjum hætti, með auglýsingum, umfjöllun í fjölmiðlun eða með
skráningar í leitarvélar. Slíkt getur verið kostnaðarsamt og tímafrekt.
Tæknilegar
hindranir
Margir
notendur eru ekki með bandbreidd, hugbúnað eða vélbúnað til að sjá eða
sækja hreyfimyndir eða hlusta á hljóðskrár á Netinu.
Nýr
miðill
Margir
notendur treysta ekki vefjum eða "lesa" þá ekki - alþekkt
er að notendur skanna vefsíður en lesa sjaldnast langa texta á þeim.
Margir
nota ekki vefinn og vilja ekki nota hann.
Margir
netnotendur eru ennþá byrjendur og treysta lítið á vefinn í upplýsingaöflun
sinni og viðskiptum.
Kröfuharðir
notendur
Sé vefur misheppnaður á einhvern hátt veikir það ímynd fyrirtækis (t.d.
ef vefur er niðri, illa hannaður eða ef upplýsingar finnast ekki
strax) Netnotendur eru oft afar kröfuharðir