Reykjavíkurhöfn

Markaðsmál, almannatengsl, rafræn stjórnsýsla og nýmiðlun

Forsíða
Frumsamið
Efst á baugi
Tenglar

Jón Heiðar

English

Blogg

Úttekt á vefjum 15 breskra sveitarfélaga og samanburður við vefsetur 30 fjölmennustu sveitarfélaga hér á landi
Meira

Úttekt á vefjum 30 fjölmennstu sveitarfélaga landsins
4. febrúar 2004

Fimm fjölmennustu sveitarfélög landsins halda áfram að auka forskot sitt á hin fámennari sveitarfélög hvað varðar þjónustu á Netinu og er munurinn afgerandi.

Ekki er hægt að greina að vefsetur íslenskra sveitarfélaga þróist hratt í þá átt að vera gagnvirk þjónustuver heldur eru þau fyrst og fremst frétta- og upplýsingaveitur. Þetta kemur fram í nýrri úttekt á vefjum þrjátíu fjölmennustu sveitarfélaga landsins

Niðurstöður úttektarinnar eru í takt við niðurstöður alþjóðlegra rannsókna á þjónustu hins opinbera á Netinu en Ísland virðist hafa dregist nokkuð aftur úr miðað við önnur Evrópulönd hvað varðar rafræna stjórnsýslu. Þetta gerist þrátt fyrir að kannanir sýni almenna eftirspurn borgarana eftir þjónustu á Netinu, almennt aðgeng að því og víðtæka netnotkun Íslendinga.

Helstu niðurstöður úr úttektinni

  • Aukin áhersla er á bein samskipti við kjörna fulltrúa og starfsmenn í gegnum vefsetur sveitarfélaga
  • Aðgengi að helstu upplýsingum batnar frá fyrra ári
  • Skipurit sveitarfélaga er ennþá grunnur að skipulagi vefsetra þeirra
  • Langur verkefnalisti bíður þeirra sveitarfélaga sem ætla að veita öfluga þjónustu á Netinu

Sækja sýnishorn af útttektinni (40 KB á pdf formi)
Meira

Hægt er að kaupa úttektina með því að senda tölvupóst á netfangið jonhth@simnet.is með upplýsingum um kaupanda (nafn, kennitölu, símanúmer og heimilisfang) og verður þá úttektin send um hæl í tölvupósti á pdf-formi. Reikningur fyrir úttektina berst í gegnum venjulegan póst. Úttektin kostar 25.000,- kr. Vefir eftirfarandi sveitarfélaga eru í úttektinni:

  • Reykjavík
  • Kópavogur
  • Hafnarfjörður
  • Akureyri
  • Reykjanesbær
  • Garðabær
  • Mosfellsbær
  • Sveitarfélagið Árborg
  • Akranes
  • Seltjarnarnes
  • Vestmannaeyjar
  • Sveitarfélagið Skagafjörður
  • Ísafjarðarbær
  • Fjarðabyggð
  • Borgarbyggð
  • Húsavíkurbær
  • Grindavík
  • Sveitarfélagið Hornafjörður
  • Austur-Hérað
  • Dalvíkurbyggð
  • Hveragerði
  • Bessastaðahreppur
  • Snæfellsbær
  • Sveitarfélagið Ölfus
  • Rangárþing eystra
  • Siglufjörður
  • Rangárþing ytra
  • Sandgerði
  • Garður
  • Húnaþing vestra

Umfjöllun um úttekt frá árinu 2003


 

 

Myndir og texti eftir Jón Heiðar Þorsteinsson - Hafðu samband