Símon H. Ívarsson gítarleikari.

Heimasíða

Símon hóf gítarnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Gunnari H. Jónssyni. Vorið 1975 lauk hann fullnaðarprófi frá skólanum en þá um haustið hóf hann nám við Hochschule für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg hjá prof. Karl Scheit. Þaðan lauk hann einleikaraprófi vorið 1980. Símon starfaði síðan sem gítarkennari við Tónlistarskólann í Luzern í Sviss, en hefur síðastliðin 24 ár kennt á gítar við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Hann kennir auk þess kammertónlist við sama skóla. Símon hóf kennslu við Tónlistarskóla Mosfellsbæjar núna í haust.
Símon hefur sótt námskeið, m. a. til Spánar, Ítalíu, Sviss og Austurríkis, þar sem kennarar hans hafa m. a. verið J. Tomas, M. Gangi, A. Batista, M. Barrueco, T. Korhonen, O. Ghighlia og D. Russel.
Hann hefur einnig sérhæft sig í Flamencotónlist og farið sérstakar námsferðir til Spánar í þeim tilgangi.
Símon hefur farið í margar tónleikaferðir bæði hér heima og erlendis.
Símon stofnaði Kammerkór Mosfellsbæjar árið 2002 og hefur verið stjórnandi hans síðan. Síðan en ekki síst gaf hann út geisladiskinn Glíman við Glám með tónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson, en hann var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir þann disk.
Símon H. Ívarsson var útnefndur sem bæjarlistarmaður Mosfellsbæjar fyrir árið 2005.