|
s. 566 7634 / 895 7634
|
![]() |
|
Símon H. Ívarsson hóf gítarnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Gunnari H. Jónssyni. Vorið 1975 lauk hann fullnaðarprófi frá skólanum, en þá um haustið hóf hann nám við Hochschule für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg hjá prof. Karl Scheit. Þaðan lauk hann einleikaraprófi vorið 1980. Símon starfaði síðan sem gítarkennari við Tónlistarskóla í Luzern í Sviss, en flutti heim til Íslands haustið 1981 og kennir nú við Listaskóla Mosfellsbæjar og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar á gítar og kammertónlist. Símon hefur sótt námskeið m.a. til Spánar, Ítalíu, Sviss og Austurríkis, þar sem kennarar hans hafa m.a. verið M. Barrueco, D. Russel. O, Ghighlia, J. Tomas, M. Gangi, og A. Batista. Hann hefur einnig sérhæft sig í Flamencotónlist og farið sérstakar námsferðir til Spánar í þeim tilgangi. Símon hefur farið í margar tónleikaferðir bæði hér heima og erlendis. Hann fór meðal annars í nokkrar tónleikaferðir ásamt austurríska gítarleikaranum Siegfried Kobilza, og síðar með sænska gítarleikaranum Torvald Nilsson. Einnig starfaði hann nokkur ár með austurríska orgelleikarnum Orthulf Prunner, og gáfu þeir út plötu með samleik gítars og orgels og síðar geisladisk með gítar og klavikord. Einnig gáfu þeir út myndband með leik sínum. Þá hefur Símon átt samstarf við þýsku gítarleikarana Michael Hillensted og Jörgen Brilling. Símon hefur starfað með ýmsum íslenskum tónlistamönnum auk þess að halda einleikstónleika. Hann hefur komið margsinnis fram í útvarpi og sjónvarpi og stjórnað útvarpsþáttum um gítar og gítartónlist. Auk þess hefur hann hlotið námstyrk frá ítalska ríkinu. Árið 1990 var Símon kosinn til formennsku fyrir hagsmunasamtök tónlistarmanna, “Tónlistarbandalag Íslands” (Tónlistarráð Íslands í dag), sem stóð m,a. fyrir “Ári söngsins” og voru gefnar út í tengslum við það söngbækurnar “Hvað er svo glatt” og geisladiskurinn “Góðra vina fundur”. Þá hefur hann gefið út kennslubók í gítarleik fyrir byrjendur og útsett verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson fyrir nemendur á neðri stigum. Símon stofnaði Kammerkór Mosfellsbæjar árið 2002 og hefur verið stjórnandi hans síðan. Síðast en ekki síst gaf hann út geisladiskinn “Glíman við Glám” með tónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson, og var hann tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir þann disk. |
||