Já, nú er hægt að teygja sig í ýmislegt eins og sést... Og þá fer þetta að verða ansi skemmtilegt :)
Við héldum uppá afmæli Svanhildar Lóu þann 23. febrúar síðastliðinn og það var heljarinnar veisla.
Svanildur Lóa og Pabbi voru að þríf Dupla kubbana hennar Svanhildar Lóu og það endaði með vatni útum allt bókstaflega :)
Ég var að kíkja aðeins á Baby Einstein í dag, það var rosa fjör...
Marinó frændi kom aðeins í heimsókn og var að henda mér upp í loft, það var bara gaman eins og sést á myndunum
Það er mesta stuðið þegar ég fæ að borða sjálf eins og þið sjáið, þá fyrst byrjar hamagangurinn. :)
Nú fer pabbi bráðum að útskrifast sem tölvunarfræðingur og ég er nokkuð viss um að ég hafi fengið eitthvað af takkabakteríunni í vöggugjöf. Sem betur fer er Linux stýrikerfið ekki mjög viðkvæmt fyrir því að kveikt og slökkt sé á tölvunni í gríð og erg! :)
Um daginn fór fjölskyldan og frændsystkin mín þau Kieran og Amelía Rós út að leika í snjónum. Þetta var rosa stuð og ég skemmti mér konunglega... Það sama má segja um alla sem tóku þátt, þetta var frábært stuð! :) Njótið vel :) SLK.
Hér eru myndir sem Pabbi og Mamma tóku þann daginn.
Jæja, nú er komið langt síðan síðast, tölvan hans pabba er búin að vera í lamasessi og er reyndar enn en hann náði að redda þessu loksins með því að nota aðra tölvu.
Hér er ég í jóladressinu mínu hress og kát í bala :)
Bæ í bili, SLK.
Pabbi er líka búinn að setja inn fleiri albúm og nú verða þau öll sett inn á síðuna mína þannig að þið getið skoðað :)
Hæ öll... Það er orðið allt of langt síðan eitthvað nýtt hefur komið inn á síðuna, en nú var pabbi að smella inn 2 svarthvítum myndum sem hann tók um daginn... Það koma fullt af myndum inn mjög fljótlega :)
Bæ í bili :)
Pabbi tók rosalega flotta mynd af mér og Braga afa í grillveislu hjá Magga frænda.
Við fórum í dag niðrí Giljaland til Magga og Elsu og pabbi fór með Pétur og Hjördísi Júlíu nokkra hringi á mótorhjólinu sínu. Við notuðum tækifærið og tókum fullt af myndum af okkur á hjólinu. Það hefur staðið til mjög lengi að ná myndum af mér og pabba á hjólinu og loksins varð það að veruleika. Pabbi er rosalega glaður að eiga loksins þessar myndir.
Hæ hæ, við vorum að setja inn tengil á nýju gestabókina mína. Endilega sendið mér einhver falleg skilaboð :)
Kveðja,
SLK
Við tókum nokkrar flottar myndir í dag, ekta "stúdíómyndir" :)
Við mamma fórum í hýru halarófuna á meðan Pabbi var í vinnunni. Það var svolítið undarlegt að sjá svona rosalega mikið af fólki á einum stað... og lætin í þeim... :) En þetta var samt frábært, og pabbi kom svo og hitti okkur niðrí bæ þegar hann var búinn að vinna. Svo kláruðum við daginn með því að fara í grill til Afa og Ömmu.
Við fórum í helgarferð til Stokkhólms til að heimsækja Beggu,
Ingó og Hilmi. Ég var rosalega góð í fluginu, á leiðinni út var ég á brjósti í flugtakinu
og lendingunni en svaf þess á milli. Það sama má í raun líka segja með heimferðina,
en þá varð samt smá seinkun á fluginu úti þegar allir voru kominir útí flugvél og
við þurftum að bíða þar í c.a. 30 mínútur og það var dáldið pirrandi, en annars
var þetta í góðu lagi.
Úti gerðum við ýmislegt, löbbuðum um allt og fórum í fullt af verslunum. Við
familían fórum líka öll saman á pöbbinn í fyrsta skipti, það var æðislega gaman.
Við fengum frábært veður allan tíman, eina stutta hitaskúr en annars var bara gott
veður og sól. Þetta var frábær ferð og kunnum við Beggu, Ingó og Hilmi bestu þakkir
fyrir.
Nú er ég farin að borða grauta og þessháttar, það er rosalega gott og ég get varla beðið eftir að kyngja þar til að næsta skeið kemur :) Hér eru nokkrar myndir af mér að borða matinn minn :)
Við fórum í smá strandferð í góða veðrinu um daginn, það var óskaplega næs og ég naut mín í sólinni með sólgleraugun og allar græjurnar :)
Jæja, nú getum við farið að setja myndir aftur á netið, gaman
gaman. Byrjum á að setja inn nokkrar blandaðar myndir, þetta er tekið hér og þar
síðan við fluttum í Hraunbæinn.
Það er samt mest af myndunum úr sundinu mínu, það er svo rosalega skemmtilegt
að við ætlum að taka framhaldsnámskeiðið líka :)
Óli sundkennari er með á nokkrum myndunum en hann er svakalega klár og mjög
skemmtilegur "kall" :)
Pabbi og mamma voru alveg búin að fá sig fullsödd af því sem síminn kallar þjónustu og ákváðu að skipta yfir til Vodafone og þessvegna þurftum við að færa síðuna mína. En þetta byrjar allt vel hjá Vodafone og allt er í góðu núna :) Nú fara að koma fleiri færslur og þá með nýjum myndum af mér.
Loksins hafa Mamma og Pabbi tíma til að setja inn nýjar myndir af mér... Nú voru bara settar inn ýmsar myndir, nokkrar af mér og Rakel Dís, nokkrar myndir þegar ég og Mamma fórum að sækja Hjördísi Júlíu á leikskólann og svo þegar ég var ný komin úr baði og vildi endilega reyna að borða á mér hendina... En nú fara Pabbi og Mamma vonandi að hafa meiri tíma til að taka myndir og setja á netið, Pabbi er alveg að fara að klára verkefnið og eftir að við flytjum ætti að verða til fullt af tíma. Mig hlakkar ógurlega til. :)
Ég fór í matarboð til Kidda frænda og Fionu frænku. Það var rosa fjör og æðislegur matur. Þar hitti ég líka tvö lítil frændsystkin, þau Kieran Alexander og Amelíu Rós. Það var voða gaman. Kieran frændi ákvað að skipta um ham og verða að villidýri á menðan Amelía frænka var rosalega upptekin af því að brosa og hafa gaman af.
Þetta var æðislega gaman og mamma og pabbi eru á blístrinu eftir þennan frábæra mat. Kjúllinn tók öll völd og pabbi er gjörsamlega búinn á því að þurfa að melta hann... :)
Í morgun fór ég í heimsókn til Lóu ömmu. Þar hitti ég í fyrsta skipti Rakel Júlíönnu frænku mína. Hún er 8 mánaða og miklu stærri en ég. Það var svakalega gaman að hitta frænku í fyrsta skipti og við þurfum endilega að hittast fljótlega aftur í meiri myndatöku :) Það verður líka gaman þegar ég verð orðin pínkulítið stærri og farin að gera kúnstir :)
Ég fékk svo rosalega fínan stól frá fjölsyldunni í Giljalandi. Ég er rétt að verða nógu stór til að geta verið í honum. Það rétt náðust ekki myndir af mér brosa útað eyrum í honum, en það voru nú samt teknar nokkar myndir, bara svona svo að Pabbi geti fengið að ýta á nokkra takka :)
Það er ekkert lítið gott að lúra dáldið. Og það sakar ekki að lúra í vöggunni sem Pabbi og bræður hans sváfu allir í á sínum tíma. Mér var meiraðsegja sagt að Hjalti frændi hafi líka notað þessa vöggu, það er ekki hægt að segja annað en að það fylgi henni góður andi.
Þetta verður ekkert mikið þægilegra en þetta... Kósýkvöld hjá mömmu þar sem mér er strokið í svefn :) Geggjað :)
Um daginn komu Hjördís Júlía rænka og Hjördís amma til okkar í heimsókn. Þær voru rosalega duglegar að hjálpa til við að skipta á mér og dúllast með mig. Hjördís Júlía frænka ætlar svo að vera dugleg í sumar að fara með mér og mömmu út að labba.
Þá er það orðið opinbert, ég er blá í gegn eins og pabbi minn. Í tilefni Tottenham - Chelsea leiksins fórum við í blátt. Ég fékk samfelluna frá Hjördísi ömmu og Braga afa. Hjördís amma leitaði um allt að bleikri Chelsea samfellu :)
Það eru komnar nokkrar nýjar myndir af mér í baði á myndasíðuna mína.
Lóa amma gaf mér þennan æðislega kjól í sængurgjöf. Ég var bara orðin allt of stór í hann og hann passaði mér engann veginn. Ég reyndi samt að troða mér í hann en það gekki ekki.
Miðvikudaginn síðasta fór ég í mitt fyrsta bað. Það var soldið skrítið en samt rosa gott. Ég vissi ekki alveg hvernig ég ætti að láta þegar ég fór í baðið, það var rosa skrítinn svipur á mér en ég var samt nokkuð róleg. Enginn æsingur frekar en fyrri daginn.
Daginn eftir skírnina komu langömmur mínar og langafi í stutta heimsókn. Ég vildi ekkert vakna í skírnarveislunni þannig að ég bauð langömmum og langafa í heimsókn til að kíkja á mig daginn eftir skírnina. Þetta var rosagaman og mér þótti voðalega vænt um að fá þau öll í heimsókn. Það voru teknar nokkrar myndir af mér með þeim sem þið getið skoðað.
Þann 10.03.07 var ég skírð því fallega nafni Svanhildur Lóa Kristinsdóttir í Digraneskirkju. Þetta var mjög falleg og skemmtileg athöfn þar sem Gunnar sóknarprestur fór á kostum og var virkilega frábær í alla staði :). Það komu rosalega margir í kirkjuna og þegar við vorum búin þar fórum við til Magga frænda og Elsu í Giljalandið þar sem ég svaf í gegnum alla veisluna. Það fóru allir saddir þaðan því að það var svo rosalega mikið af kökum og gotteríi :). Ég vil þakka öllum sem komu og gerðu þennan dag svona æðislega skemmtilegann.
Guðfeður mínir eru Marinó frændi og Maggi frændi. Bragi afi hélt á mér undir skírn og Hjördís Júlía frænka mín hélt á kertinu mínu fyrir mig.
23.02.07 kom ég í heiminn. Ég vildi ekkert endilega kveðja hlýjunna hjá mömmu þannig að ég lét bíða duglega eftir mér. Mamma gekk með mig 2 vikur fram yfir tímann og svo þegar ég átti svo loksins að koma í heiminn þurfti að ýta mömmu í gang ;). En mamma var rosalega dugleg og tók ekki í mál að vera jafn lengi að þessu og ljósmóðirin bjóst við og kláraði þetta bara með skurki kl. 23:27. Ég var 15,5 mörk og 51 cm.