





















|
Fyrsta ættarmót afkomenda Jóns og Snjólaugar frá Kaldbak var haldið að
Heiðarbæ í Reykjahverfi helgina 20. - 22. júní 2003.
Á mótið mættu rúmlega
80 manns og skemmtu sér mjög vel saman. Fólk fór að týnast á svæðið á
föstudagskvöld, sumir tjölduðu á staðnum, aðrir höfðu leigt sumarhús nú eða
gistu í heimahúsum.
Rúnar Þór Egilsson setti mótið formlega á laugardagsmorgun og rifjaði þá upp æfi Jóns og Snjólaugar í setningarræðu sinni. Eftir hádegi var farið í Kaldbak og Sigurjón núverandi ábúandi gekk með fólki um staðinn. Einnig var Jón Frímann
duglegur að rifja upp sögur frá gömlu dögunum í Kaldbak er hann stóð við
bæjarstæði gamla bæjarins. Einnig var farið niður í fjörurnar sem
tilheyrðu Kaldbak.
Um kvöldið var grillað og ljúffengur maturinn snæddur undir hinum ýmsu skemmtiatriðum sem meðlimir ættarinnar sáu um: leikjum, leikritum, söng, kveðskap og fiðluleik. Eftir borðhaldið steig svo hljómsveit á stokk og
lék fyrir dansi langt fram á nótt.
Á sunnudeginum var mótinu slitið og eftir það fóru þeir sem vildu á
Laxamýri þar sem Atli Vigfússon og Sif Jónsdóttir tóku vel á móti
fólki. Æðarfossar í Laxá í Aðaldal voru skoðaðir ásamt húsinu sem Sigurjón
Jóhannesson afi Snjólaugar byggði árið 1874 en Atli og Sif búa í því nú og
eru að gera það upp.
Ekki var annað að sjá en jafnt ungir sem aldnir hefðu skemmt sér vel þessa
helgi, við spjall, söng, dans, sund og margt fleira og ekki spillti veðrið
fyrir.
Vonandi verður þessi atburður endurtekinn innan ófárra ára.
Hér koma svo nokkrar myndir frá ættarmótinu.
|