





















|
Kjartan Sigurjónsson
og
Rósa Emelía Bergvinsdóttir
frá Miðhvammi.
Kjartan fæddist 20 Desember 1895 að Nípá. Hann var sonur hjónanna Sigurjóns Friðfinnssonar og Kristínar Helgadóttur. Kjartan fluttist að Miðhvammi með foreldrum sínum árið 1908. og bjó þar til æfiloka. En hann andaðist 10 júlí 1955.
Rósa Emelía fæddist að Húsabakka 22 Júli 1891 en fluttist að Brekku 1893. hún var dóttir Bergvins Þórðarsonar og Elinborgar Jónsdóttur. Síðustu árin bjó hún á Akureyri og andaðist þar 16 Mars 1972.
Þau kvæntust í September 1918 og bjuggu í Miðhvammi þar til Kjartan andaðist 1955 þá tók Arinbjörn við búi og bjó með móður sinni til ársinns 1964. Eftir það bjuggu Sigurjón Reynir og Þórhalla til ársins 1967, en þá fór Miðhvammur úr ábúð ættarinnar.
|