Á þessari síðu eru fluttar fréttir af framgangi ýmissa framfaramála á Kleifum. Af nógu er að taka og jafnan eru í gangi áhugaverðar framkvæmdir auk þess sem bollalagt er um framkvæmdir og framfaramál. Hér er líka hægt að skrá kleifamenn í upplýsingatöflu um fólk er tengist Kleifum. Ef þú, lesandi góður, lumar á frétt eða skemmtilegum upplýsingum sem þér finnst eiga erindi á síðuna þá hafðu endilega samband. heling@simnet.is
NÝTT! í Sagnaþætti, örnefnaskrá Ytri- Gunnólfsár, Syðri-Gunnólfsár, frásögn af Hvanndala Árna og örnefnaskrá Hvanndala komin á netið! sjá nánar
Nýr diskur frá Syðri-Ár bandinunánar hér Geir Haarde syngur lag á plötunni!
Fyrsti áfangi í endurbyggingu rafstöðvar
Vinnuhelgi var í endurbyggingu rafstöðvarinnar helgina 7. og 8. september undir stjórn Freys Aðalgeirssonar yfirsmiðs. Byrjað var á uppslætti á föstudeginum. Honum var lokið um miðjan dag á laugardeginum og 12 manns unnu í þremur teymum allan daginn til að ljúka uppslættinum í tíma. Steypubíll kom á svæðið klukkan 16.30 og þá var allt til reiðu. Undirstöður undir strókinn voru steyptar og styrktar og þægilegar tröppur til að auðvelda aðgengi að stöðvarhúsinu. Vinnuflokkur vaskra Kleifamanna lyfti Grettistaki þennan dag. Næsti áfangi framkvæmda er að steypa sjálfan strókinn og rennuna.
Alþingi veitir fé í endurbyggingu rafstöðvar í Gunnólfsá. Framkvæmdir að hefjast.
Fyrir dyrum stendur að endurbyggja rafstöðina. Fjárveiting fékkst frá Alþingi til verksins og nú er búið að ráða smiði. Á tímabilinu frá lokum 1. viku ágúst til loka 1. viku september verður unnið að þessu verki. Miklu skiptir að fá sjálfboðaliða til að taka þátt í þessu. Nú
er ætlunin að láta boð út ganga um framkvæmdina. Bið ég ykkur að senda þetta á alla þá Kleifamenn sem þið þekkið til með þeim orðum að þeir sendi línu á heling@simnet.is ef þeir geta tekið þátt í verkinu, og þá hvenær.
Næsta Kleifamót 2009
Bókin um hina stórmerkilegu sögu Kleifanna er komin út. Til sölu hjá átthagafélaginu. Nánar