South River Band æfir fyrir sunnan Syðri-Á kl. 03 að morgni laugardagsins 19. júlí 2003
Hljómsveitin æfir sem aldrei fyrr og kemur fram við ýmis tækifæri. M.a. hefur hún skemmt Samtökum Iðnaðarins, Sjálfstæðisflokknum, Grunnskólum Kópavogs, gestum Landsbankans, Íslandsbanka, leikskólakennurum hjá Reykjavíkurborg og endurskoðendum að ógleymdum tónleikum á Menningarnótt í Reykjavík og Ljósanótt í Reykjanesbæ. Hljómsveitin hefur komið fram í Sandgerði, Borgarnesi, Keflavík, Árnesi, Ólafsfirði, Dalvík, á Hofsósi, Skagaströnd og í Laugaborg í Eyjafirði svo nokkur dæmi séu tekin.
Tónlistarstefnan hefur breyst nokkuð og nú er hljómsveitin órafmögnuð og notar helst enga mögnun nema þegar aðstæður krefjast. Stöðugt er tekist á við nýtt efni, bæði úr smiðju hljómsveitarinnar og efni eftir aðra. Ný plata kom út sumarið 2004 og ber hún heitið "Maður gæti beðið um betra veður."
Hljómsveitina skipa nú:
Grétar Ingi Grétarsson (námsleyfi í Þýskalandi) Kontrabassi
Einar Sigurðsson Kontrabassi
Gunnar Reynir Þorsteinsson Slagverk
Helgi Þór Ingason Harmonika og píanó
Kormákur Bragason Gítar og þverflauta
Ólafur Sigurðsson Gítar og mandolín
Ólafur Þórðarson Gítarar
Matthías Stefánsson Fiðla
Allir hljómsveitarmeðlimir eru virkir í söng enda flytur hljómsveitin mikið af frumsömdu efni, lögum og textum.
Hljómsveitin heldur úti metnaðarfullri heimasíðu og þar eru frekari upplýsingar fyrir þá sem áhuga hafa.