![]() |
||
Heim |
Bókin um byggðina á Kleifum Við erum stolt af forfeðrum okkar sem byggðu upp merkilegt samfélag á Kleifum á fyrri hluta tuttugustu aldar. Þeir horfðu fram á veginn og umsvif þeirra einkenndust af framsýni, þrótti og dugnaði. Sömu eiginleikar einkenna Kleifamenn nútímans sem hafa byggt upp og haldið við húsum á Kleifum, byggt upp rafstöðina, viðhaldið bryggjunni og bera í brjóstum drauma um kógrækt og nýtingu jarðhita. Það er skylda okkar að skrásetja sögu forfeðranna. Slík skráning er nauðsynleg til að hjálpa komandi kynslóðum Kleifamanna við að skilja arfleifð sína. Þannig aukum við áhuga þeirra á að dveljast á Kleifum og halda áfram uppbyggingarstarfinu. Friðrik Olgeirsson skrifaði drög að handriti um þróun samfélagsins á Kleifum, allt frá landnámsöld til nútímans. Friðrik er vel kunnugur á Ólafsfirði og hefur áður tekið saman byggðasögu Ólafsfjarðar og sögu Sparisjóðs Ólafsfjarðar svo nokkuð sé nefnt. Ritstjóri og faglegur umsjónarmaður verksins var Ingi Viðar Árnason. Ólafur Þórðarson tölvusetti handritið og tölvuvann myndefni. Gríðarleg vinna var lögð í frágang bókarinnar og tölvusetningu handritsins. Til dæmis voru skannaðar á þriðja hundrað ljósmynda frá 20. öldinni og hluti þeirra prýðir bókina. Einnig var tekið saman vandað örnefnakort af Kleifum og er það fremst í bókinni. Hún er því mjög eigulegur gripur og ómetanleg heimild, ekki síst fyrir alla þá sem láta sig varða forfeður sína á Kleifum, líf þeirra, menningu og störf. Þess má geta að á bókarkápunni er mynd af glæsilegu málverki Hallgríms Helgasonar listmálara af Kleifum. Morgunblaðið birti ritdóm um bókina þann 21. nóvember 2004 og hann er aðgengilegur hér fyrir þá sem áhuga hafa. Þeir sem áhuga hafa á að eignast eintak geta haft samband við Helga Þór Ingason í síma 895 7340, í tölvupósti (heling@simnet.is) eða sent bréf í Fannafold 134, 112 Reykjavík
|
Næsta Kleifamót 2009 Bókin um hina stórmerkilegu sögu Kleifanna er komin út. Til sölu hjá átthagafélaginu. |
Umsjón: Helgi Þór Ingason heling@simnet.is |
||