Heim
Fréttir
Framkvæmdir
Um Kleifar
Kleifamót
Sagnaþáttur
Myndir
Skrásetning í
gagnagrunn um kleifamenn |
Farmkvæmdir á Kleifum
Afkomendur þess fólks er byggði upp samfélag á Kleifum í byrjun aldarinnar hafa lagt metnað í viðhald húsa og annarra mannvirkja á Kleifum, þeir hafa byggt upp og haldið við húsum á Kleifum, byggt upp rafstöðina við Gunnólfsá, viðhaldið bryggjunni á Kleifum og hafa fyrirætlanir um skógrækt og nýtingu jarðhita á Kleifum. Áhugi er á að gera viðamiklar endurbætur á Holti; gömlu skóla- og samkomhúsi Kleifamanna og nýta það m.a. til að varðveita ýmis söguleg verðmæti frá Kleifum. Síðast en ekki síst má nefna ritun handrits um myndun og þróun byggðar á Kleifum í Ólafsfirði, sem ráðist hefur verið í.
Ætlunin er að fjalla hér sérstaklega um áætlanir og framkvæmdir á Kleifum.
Hitaveita á Kleifum
Eins og greint hefur verið frá hefur Árni Helgason staðið fyrir borunum á Kleifum með þeim árangri að heitt vatn hefur fundist. Í apríl 2003 var hafist handa við að leggja hitaveitu. Fyrst um sinn er lagt í Ártún, Hof, Sólheima og Syðri-Á auk Jaðars. Ef meira vatn finnst síðar verður etv. mögulegt að leggja í fleiri hús. Heitt vatn skapar nýja möguleika og gerir Kleifarnar enn meira spennandi svæðið til að verja frídögum í fagurri náttúru, hitta vini og ættingja og sinna viðhaldi og uppbyggingu. Nú þegar er búið að koma upp tveimur heitum pottum og sá þriðji er í undirbúningi. (MYNDIR)
Endurbætur Kleifabryggju
Eins og áður hefur verið greint frá veitti Alþingi fjárveitingu til viðgerða · Kleifabryggju. Árni Helgason og hans vaska lið hefur unnið af fullum krafti að við gerðum og er þeim nú lokið. Eins og vænta má hefur umhverfi bryggjunnar breyst mikið við þessar framkvæmdir og vonir eru bundnar við að tekist hafi að verja hana til framtíðar fyrir ágangi sjávar. Nefna má að búið er að fjarlægja kerbrotið sem brotnaði frá bryggjusporðinum. Eins og margir vita hefur kerbrotið hamlað umferð sjófarenda við bryggjusporðinn. (MYNDIR)
Nýtt hús á Kleifum
Nýjasta húsið á Kleifum er endurbyggður hjallur á bakkanum fyrir framan Syðri-Á. Margir muna eftir gamla hjallinum sem var reyndar elsta hús í Ólafsfirði (sjá Sögubrot um hjallinn). Í sumar var reistur nýr hjallur á sama stað. (MYND)
Forsvarsmenn framkvæmdanna eru Björgvin og Þorgeir af Búðarhól og Ingi Viðar frá Syðri-Á. Þeir sem vilja lesa greinargerð byggingameistaranna um framkvæmdina geta nálgast hana hér.
Áætlanir um endurbætur í Holti
Handritsgerð
Hugmyndir um skógrækt
Gamalt hús verður nýtt á Kleifum
Jaðar er gamalt einbýlishús sem Árni Helgason, Sigurbjörg Ingvadóttir og Ólína systir Árna keyptu á Dalvík og fluttu út á Kleifar árið 1996. Húsið var byggt í landi Brattavalla um aldamótin 1900 en flutt til Dalvíkur þar sem það fékk nafnið Jaðar. Þeir sem vilja lesa meira um Jaðar geta skoðað stórskemmtilega frásögn Ólínu Aðalbjörnsdóttur af húsinu sem leiddist á Dalvík. (MYND)
|
Næsta Kleifamót 2009
Bókin um hina stórmerkilegu sögu Kleifanna er komin út. Til sölu hjá átthagafélaginu.
Nánar

Syðri-Ár-bandið SOUTH RIVER BAND heimasíða |