Heim
Fréttir
Framkvæmdir
Um Kleifar
Kleifamót
Sagnaþáttur
Myndir
Skrásetning í
gagnagrunn um kleifamenn |
Kleifamót 1985 -
Aðdragandi og Kleifamót 1985
Hugmyndin að Kleifamótum kom fram snemma á níunda áratugnum og óhætt mun að segja að frumkvöðlar að þessu hafi verið Sigríður Steingrímsdóttir frá Búðarhól, Sigurjón Antonsson frá Ytri-á og Ingi Viðar Árnason frá Syðri-á. Þau hittust á fundum í Reykjavík veturinn 1985 og hófu þá undirbúning. Hugmyndin var kynnt með þeim hætti að nánustu ættingjar og vinir voru látnir vita og beðnir að kynna hugmyndina sínum ættmönnum og vinum og svo koll af kolli. Ekki var laust við að nokkurs kvíða gætti þegar nær leið en með dyggum stuðningi heimamanna tókst allt með ágætum og hafa síðari Kleifamót að flestu leiti mótast af því fyrsta sem haldið var um Verslunarmannahelgina sumarið 1985. Meðal skemmtiatriða voru leikir á gamla fótboltavellinum og fjörubál í Syðri-ár fjöru. Aðal tjaldstæði var á Ytri-ár túni og að sjálfsögðu var dansað í Holti. Samkvæmt gestabók mótsins mættu þarna 234. Sú hugmynd kom snemma fram að hæfilegt mætti telja að halda Kleifamót á þriggja ára fresti. Samkvæmt því var efnt til Kleifamóts sumarið 1988, helgina fyrir Verslunarmannahelgi.
Kleifamótsnefndir eru skipaðar vöskum fulltrúum frá ýmsum bæjum á Kleifum
Kleifamót 1988
Eftir reynsluna af fyrsta mótinu varð ljóst að velja þyrfti framkvæmdarnefnd til að hafa yfirumsjón með næsta móti og skapaðist þá sú hefð að skipa hana fimm fulltrúum sem hver kæmi frá sínum ættarmeið. Í framkvæmdarnefnd Kleifamóts 1988 skipuðust Óskar Finnson, Hilmar Antonsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir og Brynja Sigðurðardóttir. Auk þeirra komu Soffía Margrét Eggertsdóttir og Kormákur Þráinn Bragason til starfa er nær leið. Sú nýlunda var tekin upp á þessu ári að safna fólki saman við varðeld á Árgerðistúni þar sem góð aðstaða er til söngs og hljóðfærasláttar. Að þessu sinni voru mótsgestir 331.
Kleifamót 1991
Sumarið 1991 voru nefndarmenn þau Þorgeir Gunnarsson, Árni Helgason, Ásta Sigurfinnsdóttir, Anton Konráðsson og Bára Finnsdóttir. Að þessu sinni var búið að koma upp samkomupalli við Holt og mótsgestir urðu 335.
Kleifamót 1997
Árið 1997 sátu í nefndinni Soffía Margrét Eggertsdóttir, Magnús Þorgeirsson, Helgi Þórðarson, Helga Ingimarsdóttir og Jóhanna Antonsdóttir. Að þessu sinni var ekki varðeldur á Árgerðistúni og mótsgestir voru 285.
Kleifamót 2000
Árið 2000 sátu í nefndinni Ásgrímur Guðmundur Konráðsson, Helgi Þór Ingason, Ólafur Sigurðsson, Sesselja Pálsdóttir og Sigurður Hólm Guðbjörnsson. Að þessu sinni var hlaðinn bálköstur í Búðarhólslautinni. Dagskrá laugardagsins tókst með ágætum þrátt fyrir vott veður. M.a. var frumsýndur leikþáttur um landnám Kleifanna sem varpar nýju ljósi á þennan merka kafla Íslandssögunnar. Um kvöldið stytti upp og varðeldurinn í Búðarhólslautinni yljaði mörgum hið ytra en söngur við undirleik Jóns á Syðri-Á, svo og söngvatn af ýmsum tegundum, yljuðu fólki hið innra. Að loknum varðeldi var dunandi dansleikur í Holti fram á rauðanótt. Einungis var gert stutt hlé um miðnætti til að fylgjast með glæsilegri flugeldasýningu. Á sunnudeginum var glampandi sól og blíða á Kleifum. Hápunktur sunnudagsins var gríðarlega spennandi knattspyrnuleikur Ytriármanna og Syðriármanna. Veglegur verðlaunabikar kom að þessu sinni í hlut Syðriármanna en um hann verður keppt á ný árið 2003. Vegna fjölda áskoranna var leikþátturinn um landnám Kleifanna endurfluttur og að honum loknum lauk vel heppnuðu Kleifamóti 2000. Mótsgestir voru um 285 talsins.
Myndir frá Kleifamótinu 2000.
Kleifamót 2003
Árið 2003 var nefndin skipuð þeim Öglu Huld Þórarinsdóttur, Hjálmari Kristmannssyni, Viðari Konráðssyni, Tryggva Aðalbjörnssyni og Jónu Björg Árnadóttur. Dagskrá hófst um kl. 13 við Holt með ávarpi Hjálmars fyrir hönd nefndarinnar. Við tóku leikir fyrir yngstu börnin og síðar um daginn knattspyrnuleikur Ytriármanna og Syðriármanna. Spennan var engu minni en 2000 og höfðu Syðriármenn loks sigur í vítaspyrnukeppni. Um kvöldið var varðeldur á túninu fyrir neðan Syðri-Á og loks dansleikur í skemmu Árna Helgasonar. South River Band lék fyrir dansi frá klukkan 22 til 02 um nóttina. Söngtextum var varpað á stórt tjald í skemmunni, svo og gömlum ljósmyndum frá Kleifum sem skannaðar hafa verið í tengslum við útgáfu bókar um sögu byggðarinnar á Kleifum.
Myndir frá Kleifamótinu 2003.
Nefndin 2000:
Ásgrímur Guðm. Konráðsson, Ytri-Á Smárahlíð 12e, 603 Akureyri 8979129 rosmund@mi.is
Helgi Þór Ingason, Syðri-Á Fannafold 134, 112 Reykjavík 5877340 / 8957340 helgi.thor.ingason@simnet.is
Ólafur Sigurðsson, Árgerði Sunnubraut 8, Keflavík 4213387 oli.sig@visir.is
Sesselja Pálsdóttir, Búðarhóli Brekkutanga 32, Mosfellsbæ 5666887 sesselja.palsdottir@isbank.is
Sigurður Hólm Guðbj.son, Ytri-Á Hrísmóum 1, Garðabæ 5656829 siggi@akarlsson.is
Nefndin 2003:
Agla Huld Þórarinsdóttir, Búðarhól Hlíðarhjalla 14, 200 Kópavogi 5547072 aht@eimskip.is
Tryggvi Aðalbjörnsson, Ytri-á (n) Bröttuhlíð 4, 603 Akureyri 4625898
Viðar Konráðsson, Ytri-á (u) Lyngholt 11, 400 Ísafirði 4564650 / 8534511 afi@snerpa.is
Hjálmar Kristmannsson, Árgerði Hvassaleiti 64, 103 Reykjavík 5534537 argerdi@mmedia.is
Jóna Björg Árnadóttir, Syðri-á Hlíðarvegi 54, 625 Ólafsfirði 4662254 / siguring@ismennt.is
Nefndin 2006:
|
Næsta Kleifamót 2009
Bókin um hina stórmerkilegu sögu Kleifanna er komin út. Til sölu hjá átthagafélaginu.
Nánar

Syðri-Ár-bandið SOUTH RIVER BAND heimasíða |