<-AFTUR Á FORSÍÐU

Ráðstefna um konur og upplýsingasamfélagið

Fyrirhugað er að halda ráðstefnu um konur og upplýsingasamfélagið þann 14. apríl n.k. Að ráðstefnunni standa Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið, Jafnréttisráð, Skýrslutæknifélag Íslands, Rannsóknarstofa í kvennafræðum, Félag tölvunarfræðinga, Jafnréttisnefnd HÍ, menntamálaráðuneyti og Verkfræðingafélag Íslands.

Ráðstefnan er öllum opin og ekkert ráðstefnugjald er innheimt.

Yfirmarkmið ráðstefnunnar er að stuðla að fjölgun kvenna í störfum í upplýsingaiðnaði og aukinni þátttöku kvenna í mótun upplýsingasamfélagsins.

Aðstandendur ráðstefnunnar telja að vinna þurfi markvisst að því að:

  • Auka hlut kvenna í tækninámi – ekki síst í námi í tölvunarfræði, verkfræði og kerfisfræði því þar eru konur í miklum minnihluta.
  • Vekja athygli foreldra og kennara á mikilvægi þess að virkja áhuga stúlkna á upplýsingatækni og skapa stúlkum ekki síðri möguleika en drengjum á heimilum og í skólum.
  • Breyta ímynd upplýsingaiðnaðarins með því að draga fram í dagsljósið að störf á þessu sviði henta konum alls ekki síður en körlum. Draga fram þætti sem höfða til stúlkna og kynna skipulega t.d. í námsráðgjöf og fjölmiðlum.
  • Í boði verði aukið efni á vef sem höfðar sérstaklega til stúlkna og hvetur þær til virkrar þátttöku í upplýsingasamfélaginu.
  • Safnað verði saman áhugaverðum niðurstöðum um kynjafræðilegar rannsóknir sem stundaðar hafa verið á þessu sviði hér á landi og erlendis og þær kynntar.
  • Gerðar verði kynjafræðilegar rannsóknir á þessu sviði hér á landi.
  • Umræða um þátt kvenna í upplýsingasamfélaginu verði aukin.

Í tengslum við ráðstefnuna hefur verið settur upp vefur: http://www.simnet.is/konur þar sem finna má upplýsingar um ráðstefnuna.

Vakin er athygli á því að í tengslum við ráðstefnuna er verið að safna reynslusögum kvenna sem stunda nám eða vinna við upplýsingatækni. Þessar reynslusögur verða settar á vefinn. Einnig er verið að taka saman fjölbreyttar upplýsingar um hlut kvenna á hinum ýmsu sviðum upplýsingasamfélagsins og verða þær upplýsingar einnig tiltækar á vefnum.

Það er von okkar að ráðstefnan og vefurinn sem settur verður upp verði til þess að opna umræðu um þátt kvenna í upplýsingasamfélaginu og hvetji konur til að afla sér menntunar á sviði upplýsingatækni.

<-AFTUR Á FORSÍÐU