| Anna Melsteð er vefstjóri Ríkisútvarpsins.
Hún hefur verið vefstjóri ruv.is frá því sá vefur var settur á laggirnar
árið 1996. Frá 1998 hefur hún komið á fót Passíusálmavefnum, Íslandssöguvefnum
og Vitanum fyrir Ríkisútvarpið en vef Landssamtaka lífeyrissjóða,
leikhópsins Á senunni og fleirum á eigin vegum. Anna lætur af störfum
sem vefstjóri RÚV 1. júní n.k. og snýr sér þá að eigin rekstri á sviði
margmiðlunar. Anna hefur verið gestafyrirlesari hjá Endurmenntunarstofnun
Háskóla Íslands og hún situr einnig í stjórn Margmiðlunarskólans fyrir
hönd Rafiðnaðarsambands Íslands.
Lærði
á tölvur í VÍ og kenndi á tölvunámskeiðum
fyrir börn og unglinga
Ég er fædd í Reykjavík árið 1965 og næstyngst fimm systkina. Systkini
mín hafa farið ólíkar brautir en öll höfum við hvert á sinn hátt
tengst tækniheiminum í einhvern tíma. Fjögur okkar starfa í dag
í þeim geira.
Þegar barnaskóla sleppti fór ég í Verslunarskóla Íslands og stundaði
þar nám í 5 ár. Tók e.t.v. félagslífið fastari tökum en námið! Á
mínu fyrsta ári í VÍ var tölvukennsla í fyrsta skipti hluti af föstu
námi. Þetta þótti mikil nýbreytni og gagnaðist okkur ágætlega á
þeim tíma. Þetta átti vel við mig og ég tók að mér stundakennslu
hjá Íþrótta- og tómstundaráði í tölvunámi fyrir börn og unglinga,
í tvo vetur. Í VÍ vaknaði áhugi á ýmsu m.a. ljósmyndun, videótökum,
hljóðvinnslu og öðru sem þótti kannski ekki mjög stelpulegt á þeim
tíma. Ég velti þó ekki vöngum yfir því þá, heldur gerði það sem
hugurinn stóð til.
Nám
í hljóðtækni í Hollandi og Austurríki
Starf
hjá tæknideild útvarpsins
Ég tók að starfa meðfram námi hjá Rás 2 og kynntist mörgum hliðum
fjölmiðlunar á þeim tíma. Þá fór ég að átta mig á því að ég gat
ekki hugsað mér að pikka á ritvél eða færa bókhald í mínu framtíðarstarfi.
Ég ákvað að fara út í eitthvað skapandi, eitthvað tæknilegt og skellti
mér því í hljóðupptökunám. Það var ekki úr neinu að moða hér heima
í þeim efnum og endaði námsleit mín árið 1987 í Hollandi. Ég var
við nám í Sonology í tónlistarháskólanum í Haag í tvö ár en fluttist
svo til Vínarborgar og einangraði hljóðvinnslu enn frekar frá “hljóðfræðum”
og innritaði mig í nám við School of Audio Engineering. Haustið
1991 þegar því námi lauk fluttist ég heim og hóf störf hjá tæknideild
útvarpsins. Þar starfaði ég sem hljóðtæknimaður til 1997.
Á því tímabili fór ég til Danmerkur til námsdvalar með eiginmanni
mínum og kornungum syni. Þar kynntist ég fyrst Internetinu og fannst
frábært hversu vel gekk að fylgjast með fréttum frá Íslandi miðað
við á námsárum mínum nokkrum árum fyrr.
Vefstjóri
hjá RÚV
Þegar heim kom, fór ég á mitt fyrsta HTML námskeið hjá Endurmenntunarstofnun
Háskóla Íslands og sannfærði yfirmenn mína um það að ég gæti búið
til heimasíðu. Ég fékk tækifæri til að sýna hvað í mér bjó í forsetakosningunum
1996. Þá má segja að komið hafi fram fyrsti vísir að fréttamiðli
RÚV á Netinu. Tilraunin þótti takast ágætlega, þótt tæknilega væri
hugmyndinni þröngur stakkur sniðinn. En þetta varð til þess
að ég fékk það verkefni að huga að vef fyrir stofnunina og gerði
það í aukavinnu til viðbótar mínum föstu vöktum í hljóðverum tæknideildarinnar.
Það var mjög spennandi að fá tækifæri til að byggja þetta upp og
eflaust hefði engan órað fyrir því þá, hversu fljótt þetta átti
eftir að hlaða utan á sig. 1997 var svo gerð hálf staða fyrir starfssemina
og 1998 full staða vefstjóra. Ég gerði upp hug minn og ákvað að
taka stökkið inn í upplýsingabyltinguna á Netinu og leggja til hliðar
hljóðvinnsluna, a.m.k. í bili. Ég fór á námskeið í vefsíðustjórnun,
margmiðlun, þrívíddargrafík, verkefnisstjórnun o.fl. o.fl. hjá Rafiðnaðarskólanum
og Endurmenntunarstofnun HÍ. Þar sem RÚV er þátttakandi í alþjóðlegu
samstarfi á borð við Nordvision og European Broadcasting Union hef
ég átt þess kost að sækja fundi og ráðstefnur sem tengjast margmiðlunar-
og internetmálum og haft mikið gagn af.
1998 fóru ávextir vinnuerfiðisins að koma í ljós. Snemma það ár
kom Passíusálmavefurinn út á Vefinn og í kjölfarið fylgdu svo Nóbelsvefur,
Hernámsvefur og Lýðveldisvefur undir hatti Íslandssöguvefs RÚV og
fleiri stofnana. Ég lagði á það mikla áherslu að hlutverk RÚV á
Vefnum hlyti m.a. að vera að miðla menningarefni og nýting safna
stofnunarinnar í þessum tilgangi væri fýsileg og spennandi. Seinna
sama ár óx vefur Ríkisútvarpsins, ruv.is til muna, varð efnismeiri
en nokkru sinni, auk þess sem nýir kaflar bættust við Íslandssöguvefinn.
Gagnvirkur
útvarpsþáttur fyrir börn og menningarborgarverkefnið
Fögnuður
Á síðasta ári sótti ég um styrk til Menningarsjóðs
útvarpsstöðva til að gera gagnvirkan útvarpsþátt fyrir börn. Styrkur
var veittur til verkefnisins og er árangurinn Vitinn,
útvarpsþáttur og vefur fyrir krakka. Árið á undan hafði komið
styrkvilyrði frá Reykjavík menningarborg árið 2000 til að gera "Gleðivefinn
Fögnuð" sem opnaður var 29. febrúar s.l.
|

Mynd frá opnun Fagnaðarvefsins www.ruv.is/gaman í Bæjarbíói
í Hafnarfirði 29. febrúar s.l. og sýnir hópinn á bak við vefinn.
Þeir sem á myndinni eru talið frá vinstri heita: Gunnar Karlson
myndlistarmaður, Böðvar Bjarki Guðmundsson Kvikmyndasafni
Íslands, Konráð Baldursson sem opnaði vefinn, Sigurjón Baldur
Hafsteinsson Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Þorvaldur Óttar Guðlaugsson
grafískur hönnuður, Anna Melsteð vefhönnuður og Jón Karl Helgason
dagskrárgerðarmaður á útvarpinu.
|
Fjölbreytt
dagleg verkefni
Starfið hefur verið skemmtilegt og fjölbreytilegt og fleiri og
fleiri verkefni komið inn á mitt borð sem gaman hefur verið að spreyta
sig á. Minn helsti óvinur í starfi er klukkan, þar sem mér finnst
ég sjaldnast hafa tíma til að sinna starfinu sem skyldi enda byggist
það upp á mörgum ólíkum þáttum, sem ég vona að taki breytingum með
nýju fólki.
Til gamans er hér brot af því sem telst til daglegra verkefna minna:
- Vefsíðugerð bæði með vefsíðukerfi og “handskrifuðu” HTML vefsíðumáli.
- Rýni í það sem stendur á bak við vefinn eins og ákv. forritunarmál.
- Ritstjórn vefsíðna í vefsíðukerfi, samþykktarferli, auglýsingagerð
og birting, póstlistaumsjón ofl.
- Vinnsla með hljóð- og myndefni, klippt til, útbúið fyrir Vefinn
og unnið upp úr.
- Tölvupóstsamskipti: Gífurlegt magn af pósti berst frá gestum
RÚV vefisins, viðskiptavinum RÚV, vegna erlendra samskipta, fyrirspurna
um ólíklegustu hluti og starfsmönnum RÚV.
- “Help-desk” þ.e.a.s. aðstoð veitt við vefsíðukerfið, vefinn
ofl. í gegnum síma og póst bæði til starfsmanna og notenda/gesta
vefsins.
- Bakvakt og ef bilun verður hugsanlega þörf til að endurræsa
ákveðinn hluta vefþjónustunnar.
- Samskipti við þjónustuaðila, fjármál þeim tengd.
- Nýjungar á Vefnum.
- Ráðgjöf fyrir stofnunina þegar kemur að Vefnum og margmiðlunarmálum.
- Talnaspeki vefsins.
Nokkrar slóðir:
Ríkisútvarpið
á Netinu http://www.ruv.is
Fögnuður http://www.ruv.is/gaman
Vitinn http://www.ruv.is/vitinn
Vefurinn um Jón Leifs
http://www.jonleifs.is
Íslandssöguvefurinn
http://www.ruv.is/saga
Landsamtök lífeyrissjóða
http://www.ll.is
|