Konur og upplýsingasamfélagið - Reynslusögur
 

 

 

 

 

 

 

 

 
  <-Aftur á forsíðu
Guðrún Magnúsdóttir
Guðrún Magnúsdóttir er forstjóri ESTeam AB og hefur lengi unnið við Gautaborgarháskóla að vísindaverkefnum og við kennslu í tungumálaverkfræði. Hún hefur metið vísindaverkefni fyrir bæði Efnahagsbandalagið og Bandaríkin (DARPA) í tungumálaverkfræði. Hún hefur talað sem "invited speaker" á mörgum alþjóðlegum ráðstefnum um allan heim

Bernskuár á Íslandi

Ég er elst af 7 systkinum, fædd á Gullþórisstöðum í Þorskafirði af 18 ára ógiftri móður, Rebekku Bergsveinsdóttur, kjarnorkukonu og í mörg ár bónda að Hólum í Helgafellssveit. Þrátt fyrir að faðir minn og móðir giftu sig seinna um árið þá fæddist ég inn í kvennaríki af sterkum vestfirskum konum í báðar ættir. Amma mín í móðurætt, Kristín Sveinsdóttir, sem í dag er elsta kona á Íslandi, fædd 1894, og föðuramma mín, Fanney Andrésdóttir eru konur sem mikið hefur gengið á móti en ekkert brotið. 

Ég veit að margar íslenskar stúlkur hafa svipaðan bakgrunn að mörgu leyti, sterkar, sjálfstæðar og þess vegna óöruggar, því ímynd kvenna um allan heim er að takmarkið í lífinu sé maður og börn. Sem táningur er erfitt að velja og við höldum stundum að valið sé annað hvort eða en ekki hvoru tveggja. Sama gildir um drengi, en þeim er frekar ýtt út í að velja nám og vinnu, en okkur sem þeir eiga að sjá fyrir - en þegar við getum séð um okkur sjálfar hverfur þeirra hlutverk. Þessi ímynd kynjanna vona ég að sé að hverfa - ég held við séum öll frekar þreytt á togstreitunni. 

Stofnun fyrirtækis í Svíþjóð

Þegar ég hætti í MR fyrir næstum þremur áratugum án þess að ljúka stúdentsprófi þá man ég að ég hugsaði, hvað er ég að gera? Eyða tíma í að læra, þegar ég enda eins og allar aðrar konur gift einhverjum karli með hóp af börnum... og ég gifti mig. Við 25 ára aldur þá leit ég yfir líf mitt. Ég var í Svíþjóð, án stúdentsprófs, og vildi halda áfram námi.

Það eru margir sem mundu telja það kraftaverk að ég sjö árum seinna byrjaði að kenna (32 ára gömul) við Gautaborgarháskóla og varð tveimur árum seinna brautarstjóri yfir menntabraut í tungumálaverkfræði, með tölvur sem tungumálaverkfæri. 1995 stofnaði ég hugbúnaðarfyrirtæki mitt ESTeam sem nú er með 14 manns í vinnu og hefur samninga upp á ca 3 000 000 dollara í ár. Fyrirtækið vinnur við að hanna hugbúnað fyrir sjálfvirkar þýðingar og að aðlaga hugbúnaðinn fyrir stórar fyrirtækjasamsteypur um allan heim. 


Guðrún í hópi starfsfólks hjá ESTeam

ESTeam var eitt af fyrstu hugbúnaðarfyrirtækjum í Svíþjóð til að ná sölusamningi við Efnahagsbandalagið og einnig eina sænska fyrirtækið í tungumálaverkfræði sem fékk úthlutað vísindaverkefni í samvinnu við evrópskar vísindastofnanir 1999. Í dag ferðast ég um allan heim og er með viðskiptavini bæði í Evrópu og USA. Ég vinn að mestu í Grikklandi, Luxembourg, Belgíu, Hollandi, Þýskalandi, Bretlandi, USA og Svíþjóð.

Þeir sem vinna fyrir mig ferðast mikið og eru í dag búsettir í þremur löndum, Grikklandi, Svíþjóð og Íslandi (Stykkishólmi). Internetið hefur engin landamæri. Verkfræðingarnir mínir (af báðum kynjum) vinna við að hanna hugbúnað, semja í samningaviðræðum og vinna með fyrirtækjum um allan heim. 

Kraftaverk er sama og vilji

Eitt af þeim sviðum sem mest gefa af sér í dag eru tölvur og alþjóðleg samskipti - Internet - upplýsingasamfélagið. Orð, tungumál, upplýsingar, og samskipti - þetta er það sem við Íslendingar erum bestir í . Við höfum í árhundruð skrifað og talað en ekki getað gert nokkuð af viti í iðnaði - hokrað, hungruð og skrifað í blóði - setið á köldum vetrum og hugsað - þangað til bæjarmenningin kom til sögunnar og við gerðum allt til að verða eins og allir aðrir heimsbúar, kaupa hluti og mynda iðnaðarfyrirtæki þegar iðnaðaröldin var að líða undir lok.

Í upplýsingasamfélaginu hafa mörg íslensk hugbúnaðarfyrirtæki þegar sannað hversu dugleg við erum og margir einstaklingar um allan heim sitja á þessu augnabliki við tölvuna sína og eru að hrinda í framkvæmd hugmynd sem kannski á eftir að breyta heiminum sem við lifum í meir en nokkur vél nokkurn tímann hefur gert og ég vona að margir af þessum einstaklingum séu og verði íslenskir. Kraftaverk eru sama og vilji, ef leið þín er auðveld þá hefur þú engu áorkað.