Konur og upplýsingasamfélagið - Reynslusögur
 

 

 

 

 

 

 

 
  <-Aftur á forsíðu
Helga Kristín Gunnarsdóttir
Helga Kristín Gunnarsdóttir stundar nú nám í leiklist í London. Hún hefur verið blaðamaður á veftímaritinu deCode og vefhönnuður hjá Gæðamiðlun og OZ.

Blaðamaður á veftímariti lærir að forrita

Ég heiti Helga Kristín Gunnarsdóttir og er 23 ára, borin og barnfæddur Reykvíkingur, eina stelpan af þremur systkinum. Þessa dagana er ég búsett úti í London þar sem ég stunda nám í leiklist við Arts Edicational School of Acting í London.

Kynni mín af Internetinu hófust fyrir fjórum árum eftir að ég hafði lokið námi við Menntaskólann við Sund. Ég var ekki alveg ákveðin hvað ég vildi gera eftir skólann en þegar vinkona mín Arndís Kristjánsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri veftímaritsins deCode, bauð mér vinnu hjá þeim sem blaðamaður þá sló ég til. Til að byrja með skrifaði ég einungis greinar og tók viðtöl fyrir deCode en vegna mikils vinnuálags á vefarana okkar þá fór ég að læra að forrita HTML undir tilsögn Jóhannesar Bjarnasonar aðalvefara deCode. Mér reyndist auðvelt að læra þetta sem kom mér á óvart þar sem ég hafði ávallt talið tölvuna vera hálfgerðan óvin minn.

Vinna við að setja upp vefi

Eftir að deCode lauk rekstri hóf ég störf hjá Gæðamiðlun ehf. Þar hannaði ég og setti upp mína fyrstu heimasíðu, eftir það fór ég að setja upp vefi fyrir fyrirtækið og viðskiptavini. Frá GM fór ég svo til OZ.COM þar sem ég vann eitt skemmtilegt ár með góðum hóp við að upp vefi fyrir OZ.COM.

Það var sem sagt fyrir hálfgerða slysni að ég fór að vinna við vefsmíði en ég hef alltaf haft gaman að því að búa til vefsíður og gert nokkrar fyrir sjálfa mig, mest vinnan fer þó í að uppfæra mína eigin vefsíðu sem getur orðið býsna tímafrek. Þessi fjögur ár sem ég hef unnið við vefinn hefur safnast inn í hausinn á mér ýmis konar þekking á tölvum og fleiru sem mér hefði aldrei getað dottið í hug að ég myndi vita, hlutir sem poppa upp þegar maður þarf á þeim að halda. Ég gæti ekki ímyndað mér í dag að vera án þessara þekkingar.

Nám í leiklist - Gerir heimasíður fyrir skólann og fær borgað með lægri skólagjöldum

Á meðan ég var að vinna hjá GM og OZ var ég að reyna að fá inni í leiklistarskólum úti í Bretlandi, þar lá minn aðaláhugi og fyrir ári síðan komst ég svo inn í Arts Educational skólann í London þar sem ég hóf nám fyrir 6 mánuðum og líkar mjög vel. Að sjálfsögðu gat ég ekki komist af án þess að hafa tölvu svo ég keypti eina þegar ég kom hingað. Ég stefndi að því að vinna til hliðar við skólann sem vefhönnuður og útvega mér þannig pening fyrir þeim miklu skólagjöldum sem ég þarf að borga næstu þrjú árin. Svo ánægjulega vildi til að skólinn bauð mér að vinna heimasíðu fyrir skólann. Ég er að vinna að henni einmitt núna og fæ borgað með lækkuðum skólagjöldum.

Að hafa aðgang að Internetinu er gríðarlega mikilvægt fyrir leikara í dag og hefur einfaldað vinnu þeirra mikið í staðinn fyrir að eyða heilu dögunum á bókasafninu og kaupa bækur í búðum fyrir offjár er hægt að finna mikið af þessum upplýsingum á netinu. Það er jafnvel hægt að lesa öll verk Shakespeare á netinu sem og verk annarra þekktra höfunda.

Að hafa þá kunnáttu og reynslu sem ég hef á bak við mig getur komið sér mjög vel í framtíðinni. Ef ég hefði aðeins komið til London til að vinna þá hefði ég getað haft allt upp í 4 milljónir kr. á ári í tekjur, ekki slæmt það en ég kaus frekar að læra til iðju þar sem atvinnuleysi er daglegt brauð; jæja, ég hef þó alltaf eitthvað annað til að grípa í.

Vefslóðir

Helga Kristín Gunnarsdóttir  www.islandia.is/~helgakr/index.htm

Gæðamiðlun ehf   www.gm.is
OZ.COM