Konur og upplýsingasamfélagið - Reynslusögur
 
 
  <-Aftur á forsíðu
Hilda Torfadóttir
 

Hilda Torfadóttir er tölvukennari við Síðuskóla á Akureyri. Hún er menntuð sem tal- og sérkennari og stundar núna framhaldsnám í upplýsingatækni. Hilda er einn af stjórnendum í Kidlink sem er alþjóðlegt tölvusamskiptaverkefni fyrir börn.

Læknaritari, sérkennari og veðurathugunarmaður á Hveravöllum

Ég er fædd og uppalin í vesturbænum í Reykjavík. Elst fjögurra systkina. Foreldrar mínir voru bæði úr sveit, mamma úr Flóanum, en pabbi fæddur í Dölunum. Ég tók landspróf úr Kvennó og stúdentspróf af stærðfræðibraut MR 1963. Eftir stúdentspróf réði ég mig sem læknaritara við Kleppsspítalann og var í nokkur ár eini ritarinn þar.

Þetta var á margan hátt skemmtilegt og lærdómsríkt en eftir 5 ár var mig farið að langa til að breyta til. Ég fór í Kennaraskólann, lauk kennaraprófi og framhaldsnámi í sérkennslu - og gifti mig. Þegar ég hafði kennt í 2 ár tókum við okkur upp og áttum vetursetu sem veðurathugunarmenn á Hveravöllum. Að henni lokinni hélt ég til Noregs til frekara náms og skildi eiginmanninn eftir heima. Næstu árin á eftir kenndi ég á Vopnafirði, Reykjavík, Eiðum, Laugum og nú síðustu 15 árin á Akureyri.

Tölvukennsla og Kidlink

Ég sinnti mínu fagi, tal- og sérkennslu, þangað til örlögin leiddu mig inn í tölvukennsluna. Fyrst snerist kennslan að mestu um að kenna nemendum að vélrita, en fljótlega sá ég að það gekk ekki og fór að sækja námskeið hjá Íslenska menntanetinu í vefsíðugerð og fleiru. Þrátt fyrir það fann ég til vanmáttar og leitaði mér aðstoðar hjá Láru Stefánsdóttur sem þá var ráðgjafi hjá Skólaþjónustu Norðurlands eystra og leiddi hún mig til fundar við Kidlink, sem er alþjóðlegt sjálfboðaliða samskiptaverkefni og er óhætt að segja að það hafi breytt lífi mínu.

Ég hellti mér út í það og opnaði íslenska deild í listagallerýinu hjá Kidlink með myndum sem nemendur mínir teiknuðu á Paint forritinu, sem er í öllum PC tölvum. Um vorið tóku 10. bekkjar nemendurnir þátt í spjallrásahátíð Kidlink og voru á irkinu í heilan sólarhring. Svo tók ég ásamt Eygló Björnsdóttur kennara í Eyjum við stjórn á íslensku verkefnunum og höfum við Eygló búið til nokkur verkefni á íslensku og ensku (Virtual Vacation, sem er hluti af Who am I og I Have a Dream, sem er enn í vinnslu).

Aldrei of seint að byrja!

Þegar hér var komið sögu var auglýst framhaldsnám við KHÍ í tölvu- og upplýsingatækni og ég sótti. Nú hef ég verið við nám í tvö ár og næsta vetur hef ég fengið námsleyfi og hyggst ljúka meistaraprófi árið 2001 um leið og einkasonurinn, sem er við nám í vélaverkfræði í Vancouver í Kanada. Þegar ég er spurð hvernig ég nenni að læra á þessum aldri bendi ég á föðursystur mína sem var að skrifa doktorsritgerð þegar hún lá banaleguna, en hún lést á 80. aldursári. Það er aldrei of seint að byrja á því sem mann langar til að gera og mikið er ég fegin að ég sló til og breytti um stefnu.

Vefslóðir

Hilda Torfadóttir

Kidlink Krakka- gallery

Kidlink verkefni

Kidlink Hver er ég?

Virtual Vacation