Aftur á forsíðu
Reynslusögur -
Konur og upplýsingasamfélagið
Inngangur

REYNSLUSÖGUR UM KONUR Í UPPLÝSINGATÆKNISTÖRFUM

Í tengslum við ráðstefnu um konur og upplýsingasamfélagið 14. apríl 2000 höfum við tekið saman frásagnir frá konum sem starfa eða eru í námi sem tengist upplýsingatækni á einhvern hátt. Markmiðið með þessum frásögnum er að kynna góðar fyrirmyndir fyrir stúlkur sem íhuga starfsval og gera konur sem starfa og hafa náð árangri á þessu sviði sýnilegar.

Í þessum frásögnum lýsa konur reynslu sinni og gefa innsýn í við hvað þær starfa og sýna þannig fram á að störf í upplýsingageiranum geta verið fjölbreytt, skapandi og aðlaðandi fyrir bæði konur og karlmenn. Þetta eru stuttar frásagnir og skrifaðar með lesendur í huga sem ekki hafa sérstaka þekkingu á upplýsingatækni. Við vonum að þær höfði til stúlkna sem eru að velja sér námsleiðir, foreldra þeirra, námsráðgjafa eða almennings.

Efst á síðu

Aftur á forsíðu