|
Lára Stefánsdóttir stýrir tölvudeild
Menntaskólans á Akureyri sem er þróunarskóli
í upplýsingatækni. Hún hefur verið
tölvukennari og tók þátt í að
stofna Íslenska menntanetið og starfaði þar.
Lára hefur stýrt mörgum alþjóðlegum
verkefnum á sviði tölvusamskipta m.a. Kidlink og
haldið fyrirlestra og námskeið víða um
heim.
Fyrstu
kynni af tölvum
Ég kynntist tölvum fyrst 1981, þá var ég að vinna hjá Söluumboði
LÍR við innflutning og pantanir á raflagnaefni. Engin forrit virkuðu,
drifin ofhitnuðu svo það þurfti að kaupa sérstakar viftur til að
blása á þau og disklingarnir voru hlemmistórir. Við réðum forritara
og hann lagaði forritin en mér þótti vinna
hans rándýr þó hann væri skemmtilegur og lagaði flest forritin –
að lokum. Ég varð að segja honum hvað forritið átti að gera, bíða
síðan eftir að hann lagaði það og enn lengri bið eftir keyrslu til
að sjá hvernig forritið virkaði. Því fannst mér að á meðan
beðið væri eftir keyrslunni hefði blessaður forritarinn ekkert betra
að gera en kenna mér forritun.
Stofnun
Íslenska menntanetsins
Ég tók síðar próf í Tölvuháskóla VÍ, uppeldis- og kennslufræði
í HÍ, diplómupróf í KHÍ í uppeldis- og menntunarfræðum og er að
vinna að rannsókn á þeim breytingum sem eiga sér
stað í menntun þegar upplýsingatækni er notuð. Ég kenndi í Fjölbrautaskólanum
við Ármúla 1988-1993 og sá um tölvukerfið.
Árið 1990 heillaðist ég af Internetinu eftir að Pétur Þorsteinsson
færði mér netfang að gjöf, eins og hann væri að færa mér fjársjóð.
Ég hafði engan áhuga á því til að byrja með en þegar möguleikarnir
komu í ljós var ekki aftur snúið. Þarna var hægt að kynnast og vinna
með fólki víða að úr heiminum. Ég tók því þátt í því með honum og
tveimur öðrum að stofna Íslenska menntanetið sumarið 1992. Við tengdum
þá yfir 90% af skólum en það þýddi ekki að svo margir kennarar eða
jafnvel skólar notuðu það yfirleitt.
Stjórnandi
í Kidlink
Fyrirlestrar
og námskeið
Kidlink samskiptaverkefnið á Internetinu er gríðarlega gott fyrir
nemendur og kennara og byrjaði ég að stjórna þemaverkefnum hjá þeim
árið 1992 og fór síðan í yfirstjórn 1995. Þar lærði ég að stjórna
alþjóðaverkefni á neti með fólki frá mismunandi menningarheimum
og það leiddi til mikilla vangaveltnakostaði um hvað hlutirnir
þýða í raun og veru á mismunandi stöðum.
Mikill áhugi var á því sem var að gerast á Íslandi í tengslum við
Internetið og menntun og því jókst gríðarleg ásókn í að fá fyrirlestra
og ráðgjöf héðan. Ég hef því flutt fyrirlestra og haldið námskeið
víða um heim, í Suður og Norður Ameríku ásamt Evrópu.
Árið 1995 tók ég þátt í undirbúningi og stofnun Norræna skólanetsins
sem Norðurlandaþjóðirnar stóðu að.
Flutti
í dreifbýlið
Eins og svo margir sem vinna mikið á Netinu þráði ég að flytja
í dreifbýlið sem tókst sumarið 1996 þaðan sem ég gat haldið áfram
að vinna sjálfstætt. Eftir fimm ár við að kenna kennurum, halda
fyrirlestra og veita ráðgjöf var viskubrunnurinn eiginlega tómur.
Einnig vildi ég vinna með fólki í því samfélagi sem ég bjó. Ég tók
við tölvudeild Menntaskólans á Akureyri sem er þróunarskóli í upplýsingatækni.
Þar er gríðarlega áhugasamt og duglegt fólk á sviði upplýsingatækni
og samstarf við þau fyllir tankana svo sannarlega hratt aftur.
Vefslóð
Menntaskólinn á Akureyri
www.ma.is
|