Konur og upplýsingasamfélagið - Reynslusögur
 

 

 

 

 

 

 

 

 
  <-Aftur á forsíðu
Laura Valentino
Laura Valentino starfar hjá Taugagreiningu sem grafískur hönnuður og hannar viðmót á tölvukerfi (GUI designer). Laura hefur einnig unnið sjálfstætt við vefsíðugerð og ýmiss konar grafísk hönnunarverkefni fyrir tölvur.

Myndlistarnám og sjálfsnám á tölvur

Ég er fædd og uppalin í Bandaríkjunum. Þar stundaði ég líka nám og lauk BFA námi í myndlist frá Eastern Kentucky University og MA námi í myndlist frá University of California, Berkeley. Árið 1988 fluttist ég til Íslands. Þar byrjaði ég í grafískri hönnun með því að bjóðast til að gera verkefni fyrir tímaritið Veru. Árið 1992 keypti ég tölvu og lærði í sjálfsnámi að nota helstu myndvinnsluforrit. Árið 1993 eignaðist ég barn og fór að taka að mér myndskreytingar með tölvuunnum myndum.

Heimasíðugerð og myndefni fyrir Internet

Svo var það árið 1995 sem ég fékk aðgang að Internetinu og þá hannaði ég strax persónulega heimasíðu en nýjasta útgáfa er á slóðinni http://this.is/laura. Ég vann "frílans" við heimasíðuhönnun og við að gera grafískt myndefni fyrir Internetið. Sum verkefni fékk ég í gegnum Internetið og frá fólki sem ég hef aldrei hitt heldur eingöngu verið í samskiptum við í gegnum Internetið.

Grafísk hönnun hjá Taugagreiningu

Árið 1996 byrjaði ég að vinna hjá Taugagreiningu. Ég geri þar ýmislegt sem tengist grafískri hönnun svo sem: heimasíðugerð, viðmótshönnun, hönnun á bæklingum og auglýsingum. Auk þess skrifa ég handbækur og bý til leiðbeiningar á vef (online help files).

Vefslóðir

Laura Valentino
Taugagreining www.nervus.is