| Dóra Fjölnisdóttir
er nemi á öðru ári í kerfisfræði
við Háskólann í Reykjavík.
Ég heiti Dóra Fjölnisdóttir og er 25 ára, í sambúð og barnlaus.
Ég varð stúdent frá MR 1994 af náttúrufræðibraut og er nú að ljúka
öðru ári í kerfisfræði við Háskólann í Reykjavík. Ég var ekki ákveðin
hvað ég vildi gera eftir stúdentspróf og eyddi því tíma í að ferðast
og vinna í ferðabransanum. Haustið 1998 fannst mér vera kominn tími
til að mennta mig frekar. Mér fannst námið við Háskólann í Reykjavík
vera góður kostur þar sem um tveggja ára hnitmiðað nám var að ræða
með góða atvinnu- og launamöguleika að námi loknu.
Ég hef alltaf haft áhuga á stærðfræði og öðrum raungreinum en tek
það fram að ég hafði nánast ekkert komið nálægt tölvum áður og hafði
engan grunn. Ég gerði mér grein fyrir því að þetta yrði mikil vinna
og sú varð raunin, ég hef átt afskaplega takmarkað félags- og fjölskyldulíf
undanfarna tvo vetur því nær allur minn tími hefur farið í námið.
Ég hef fundið mig mjög vel í þessu námi og hef fengið gríðarlegan
áhuga á forritun og öllu sem viðkemur tölvum. Þótt ég hafi í upphafi
einungis ætlað í tveggja ára nám þá hef ég hugsað mér að taka þriðja
árið og klára BS gráðuna í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem
aukagrein. Ég sé ekki eftir því að hafa farið í þetta nám og vil
meina að það sé fyrir alla sem hafa vilja og áhuga, ekki bara tölvunörda.
|