| Gyða Guðjónsdóttir
er nemandi á þriðja ári í tölvunarfræði
við Háskóla Íslands. Hún er kennaramenntuð
og hefur unnið við netráðgjöf og notendaþjónustu
hjá Íslenska menntanetinu.
Leiðin
í gegnum námið
Þegar ég var í grunn- og menntaskóla, þá hafði ég engan sérstakan
áhuga á námi. Ég var bara meðal námsmaður sem lærði ekki meira en
hann þurfti og reyndi að sleppa eins auðveldlega út úr náminu og
ég gat.
Ég lauk stúdentsprófi úr stærðfræðideild frá Menntaskólanum
í Reykjavík vorið 1994 og byrjaði sama haust í Kennaraháskóla Íslands.
Þá var eins og allt breyttist, ég fékk mikinn áhuga á öllu sem var
verið að kenna enda var þetta nám alveg einstaklega fjölbreytt og
skemmtilegt. En fljótlega áttaði ég mig samt á því að ég myndi aldrei
sætta mig við þessi lágu laun miðað við þá vinnu sem fer í að undirbúa
kennslu. Ég ákvað samt að klára skólann því að námið átti einstaklega
vel við mig og ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að leggja fyrir
mig.
Fram að þessum tíma var ég haldin tölvufóbíu. Ég reyndi að forðast
tölvur eins og ég gat og fannst alveg ferlegt ef skila þurfti
ritgerðum sem ekki mátti handskrifa…
Ég valdi stærðfræði og líffræði sem aðalfög í KHÍ og var það kennarinn
í stærðfræðinni (Anna Kristjánsdóttir) sem vakti áhuga minn á tölvum
almennt. Hún lét okkur læra að nota tölvupóst í gegnum unix skel
og sendi okkur reglulega tilkynningar. Á svipuðum tíma kynnist ég
irkinu sem var líka í skel og þá opnaðist fyrir mér alveg nýr heimur.
Netið og allt sem tengist því og tölvum heillaði mig. Ég valdi öll
þau valfög í KHÍ sem ég gat er tengdust tölvum og netinu á einhvern
hátt. Eitt af þeim var heimasíðugerð (með html ritli) sem Salvör
Gissurardóttir kenndi.
Tölvukennsla
og vinna hjá menntanetinu
Á síðasta árinu í KHÍ byrjaði ég að kenna á tölvur í Ísaksskóla.
Á svipuðum tíma sá ég auglýsta stöðu hjá Íslenska menntanetinu sem
fólst í því að aðstoða fólk sem átti í vandræðum með að tengjast
netinu. Það eina sem ég kunni var það sem ég hafði lært við að tengjast
Netinu heima, en samt hikaði ég ekki við að sækja um og fékk stöðuna.
Ég kunni rosalega vel við mig hjá Ísmennt og var í skýjunum yfir
að vinna við tölvur og Netið.
Ég kláraði KHÍ vorið 1997 og sem lokaverkefni gerði ég heimasíðu
fyrir líffræðivalið innan KHÍ. Ég er núna í tölvunarfræði við Háskóla
Íslands og lýk því námi núna árið 2000.
Frítíminn
Mestum hluta míns frítíma eyði ég fyrir framan tölvuna.
Ef ég þarf að tala við systkini mín eða vini þá sendi ég þeim frekar
tölvupóst en að hringja. Ef ég þarf að vita e-ð eða spyrja einhvern
þá er Netið yfirleitt fljótlegasta leiðin og nýti ég mér það.
Fjölskyldan
Foreldrar mínir höfðu áhyggur af mér þegar ég byrjaði að nota Netið.
Ég var á netinu um 8 tíma á dag..og símreikningurinn hækkaði...
En þessi fíkn stóð yfir í stuttan tíma og núna er notkun mín á Netinu
mun markvissari, þó svo að ég eyði miklum tíma fyrir framan tölvuna
almennt.
Framtíðarsýn
Framtíðin er björt og spennandi og á eftir að koma "endalaust"
á óvart. Ég ætla að fara að vinna þar sem tölvunarfræðinámið nýtist
mér en það væri óskandi ef ég gæti einnig nýtt þekkingu mína á kennslusviðinu
í þessari vinnu.
Vefslóð
Gyða Guðjónsdóttir
www.gyda.net
|