| Laufey Vilhjálmsdóttir er
nemi á tölvunarfræðibraut í Háskólanum
í Reykjavík.
Ég er 31 árs og bý ein með dóttur minni sem er 6 ára. Ég er á 2.
ári í Háskólanum í Reykjavík á tölvunarfræðibraut og útskrifast
í vor sem kerfisfræðingur. Ég er stúdent af tungumálabraut Fjölbrautaskólans
í Garðabæ. Þótt ég væri á tungumálabraut þá tók ég sem flesta valáfanga
í stærðfræði og þá tölvunarfræðiáfanga sem voru í boði því mér fannst
þessir áfangar mjög skemmtilegir. Þar sem ég hef alltaf haft áhuga
á tölvum, tækjum og tækni hefur það verið augljóst að ég myndi mennta
mig í einhverju fagi því tengdu.
Ég byrjaði m.a.í flugnámi og ætlaði í rafvirkjun, en fann mig ekki
í þessum greinum. Mig langaði samt alltaf í tölvunarfræðinámið en
treysti mér ekki því ég taldi það of erfitt. Ég ákvað að prófa að
sækja um kerfisfræðinám og þar sem þetta er 2 ára hnitmiðað nám
fannst mér það gæti hæft mér frekar en lengra nám. Atvinnuhorfur
eru enda mjög góðar og góð laun í boði að loknu námi.
Ég hóf nám haustið 1998 og eins og ég bjóst við er þetta nám mjög
skemmtilegt og áhugavert - ég finn mig vel í þessu námi. Það hentar
alveg jafnt stelpum sem strákum. Það er samt strembið og tímafrekt,
margar helgar og kvöld hafa farið í lærdóm og hefur þetta því tekið
mestallan tíma minn undanfarin tvö ár. Semsagt ekki fjölskylduvænt
nám - enda hefur dóttir mín eytt miklum tíma hjá skyldmennum þennan
tíma. Þar sem mér líkar vel í þessu námi hef ég hugsað mér að fara
í framhaldsnám og klára 3. námsárið. Að því loknu öðlast ég B.S.
gráðu í tölvunarfræði. Ég er því mjög ánægð að hafa farið í þetta
nám og ráðlegg öðrum sem áhuga hafa á þessum fræðum að sækja um
nám í tölvunarfræði.
Það er margt hægt ef viljinn er fyrir hendi!
|