Konur og upplýsingasamfélagið - Reynslusögur
 

 

 

 

 

 

 

 
  <-Aftur á forsíðu
Sigrún Guðjónsdóttir
Sigrún Guðjónsdóttir er arkitekt og stundaði nám í Þýskalandi. Lokaverkefni hennar þar var hönnun á þrívíðum háskólaheim fyrir Netið. Sigrún vinnur núna í Sviss við forritun og hönnun á sviði upplýsingaarkitektúrs.

Arkitektúrnám í Þýskalandi

Ég er fædd 1971 og ólst upp á Seltjarnarnesi. Ég var í Menntaskólanum í Reykjavík og valdi Eðlisfræðideild I þar sem ég hafði heyrt að það væri erfiðasta brautin. Eðlisfræðideild I er ekki erfiðari en aðrar deildir en eflaust meiri vinna og ég hafði gaman af því að vera ein af þessum sex stelpum sem voru með 12 strákum í bekk. Því miður er það nú svo að stelpur hugsa sig oft tvisvar (og jafnvel oftar) um hvort þær geti eitthvað, strákar gera það yfirleitt ekki, þeir bara gera hlutina og þannig var það með krakkana í bekknum, stelpurnar völdu þessa braut að vel íhuguðu máli en strákarnir höfðu varla hugsað út það hvort þetta væri of erfitt fyrir þá enda kom í ljós að stelpurnar voru að meðaltali með betri einkunnir en strákarnir.

Ég ákvað snemma eða 12 ára gömul að verða arkitekt og var enn á þeirri skoðun eftir stúdentspróf. Til þess að nema arkitektúr þarf maður (enn) að fara til útlanda og þess vegna íhugaði ég oft að læra eitthvað annað eins og byggingarverkfræði eða tölvunarfræði. En ég vildi gera eitthvað skapandi og ákvað því að freista gæfunnar og fara til útlanda í nám. Ég lærði arkitektúr í Karlsruhe í Þýskalandi, það var rosalega gaman að læra þetta fag og fyrstu árin var ég staðráðin í að verða arkitekt.

Áhugi á tölvum og hönnun fyrir Netið

Eftir þrjá vetur í námi fór ég að vinna á arkitekastofu á sumrin og fór fljótt að vinna á tölvur þar. Ég hafði lært smávegis á tölvur í vali í grunn- og menntaskóla en var búin að gleyma öllu. En þarna um sumarið kom það fljótt aftur og ég var mjög fljót að læra á öll nauðsynleg forrit og hafði voða gaman af. Eftir þetta fyrsta sumar á arkitektastofu varð nokkurs konar vendipunktur í námi mínu, ég valdi öll námskeið sem ég gat í sambandi við tölvur, gerði hönnunarverkefnin mín á tölvu, keypti mér mína fyrstu tölvu og fór að nota Netið. Það jók enn áhuga minn á tölvum og hönnun fyrir Netið og ég valdi verkefni og námskeið á þessu sviði. Síðasta ár mitt í námi var mér boðið að vera vefari fyrir grafíska deild tölvunarfræðiskorar háskólans í Karlsruhe og í framhaldi af því var mér boðið að gera lokaverkefni við tölvunarfræðiskor sem yrði svo viðurkennt sem lokaverkefni í arkitektúr.

Þrívíður háskólaheimur fyrir Netið

Lokaverkefni mitt var þrívíður háskólaheimur fyrir Netið og þetta verkefni hefur breytt öllu hjá mér. Þá komst ég að því að ég hafði miklu meiri áhuga á að hanna og forrita fyrir Netið en fyrir raunveruleikann og Netið var sá heimur sem ég gat nú ekki hugsað mér að vera án. Ég lærði að meta tölvupóst og þá sérstaklega fréttahópana. Án fréttahópanna hefði ég aldrei getað gert verkefnið eins og það varð því ég hafði engan við háskólann sem gat hjálpað mér og alla mína hjálp fékk ég frá ókunnugum af Netinu. Strax að enduðu lokaverkefninu var mér boðin staða við tölvunarfræðiskor háskólans í Karlsruhe þar sem ég átti að halda áfram með hönnun háskólaheimsins. Ég komst ekki langt áfram með hönnun eða forritun þá sjö mánuði sem ég vann við háskólann því ég var sífellt að kynna háskólaheiminn á ýmsum ráðstefnum vítt og breitt um Þýskaland og víðar en sú reynsla hefur verið mér dýrmæt.

Framúrstefnulegur upplýsingaarkitektúr

Síðastliðið sumar var ég í Vín að kynna verkefnið mitt og sá þá kynningu frá ETH (Eidgenössische Technische Hochschule) í Zurich. Verkefnin á sviði upplýsingaarkitektúrs sem prófessor CAAD-deildar sýndi voru mjög framúrstefnuleg og ég varð yfir mig hrifin. Nokkrum mánuðum síðar var mér boðið að koma til Sviss og ég er núna í eins árs postgraduate-námi í upplýsingaarkitektúr. Heima á Íslandi var ég búin að sækja um meistaranám í tölvunarfræði við Háskóla Íslands þegar mér var boðið þetta nám í Zurich svo síðan í janúar er ég að læra við tvo háskóla og þegar ég lýk námi mínu hér í október mun ég halda áfram að læra á Íslandi til að taka MS í tölvunarfræði.

Fjölmörg atvinnutilboð!

Í febrúar komst ég í úrslit í margmiðlunarsamkeppni með lokaverkefnið mitt og þeir sem komust í úrslit fengu eigin sýningarbás á margmiðlunarráðstefnu í Karlsruhe. Á þessari ráðstefnu fékk ég um 20 atvinnutilboð frá fyrirtækjum út um allt Þýskaland og grískur prófessor bauð mér til Grikklands til að halda fyrirlestur um verkefnið mitt. Ég var/er eiginlega á leiðinni til Íslands í einhverja skemmtilega vinnu og til að ljúka meistaranámi en nú veit ég ekki alveg hvað ég á að gera, möguleikar mínir hér eru nærri endalausir.

Fyrirtækin sem eru búin að bjóða mér vinnu eru á mjög mismunandi sviðum innan Internet-geirans svo það er frekar spurning hverju ég hef áhuga á eða hvað þau borga. Þessi fyrirtæki eru mjög spennt fyrir fólki sem hefur marglitan bakgrunn og þar með eru atvinnumöguleikar mínir miklu meiri en ég hafði reiknað með. Ég veit ekki alveg hvert stefnir hjá mér en framtíðin er björt og í augnablikinu einbeiti ég mér að námi mínu hér í Sviss sem er einmitt á því sviði sem ég hef mestan áhuga á: hönnun og forritun á sviði upplýsingaarkitektúrs.

Vefslóð

Sigrún Guðjónsdóttir   www.sigrun.com