| Takako Inaba Jónsson er forstöðumaður
tölvusviðs Byggðastofnunar.
Starfið
Starfið er mjög margbreytilegt. Fyrir utan að sjá til þess að tölvurnar
gangi snurðulaust þarf ávallt fylgjast með því hvað er að gerast
á upplýsingasviðinu hverju sinni, t.d þegar Internetið kom til sögunnar
og stofnunin ákvað að hafa heimasíðu og tölvupóst var hafist handa
við að gera allt innanhúss. Nú er öðruvísi farið að og slík þjónusta
oft keypt utan frá. Starfinu fylgja mikil samskipti við fólk innanhúss
og utan og maður er bæði þiggjandi og gefandi í svona starfi og
aldrei er lognmolla.
Bakgrunnur
Ég er fædd og uppalin í Japan. Það er hrein tilviljun að ég fór
að vinna á tölvusviði. Ég útskrifaðist sem stærðfræðingur frá háskóla
í Tokyo 1971 en aðalfag mitt var stærðfræðileg rökfræði sem er grunnfagið
fyrir tölvur. Eftir námið buðust mér nokkur störf og ég hóf
vinnu hjá hugbúnaðarfyrirtæki sem stundaði aðallega þróunarstarf
og rannsóknir. Það fyrirtæki var í eigu japansks og bandarísks risafyrirtækis,
Japan Univac ( núna Unisys). Ég var eitt ár í deild sem átti að
þróa skjalaleitarhugbúnað (document retrieval system) og tók
síðan þátt í verkefni annarrar deildar við að endurhanna og
skrifa þýðanda (ALGOL) í tvö ár. Eftir það vildi ég breyta til.
Þótt starfið sjálft væri skemmtilegt var ég ekki alveg búin að ákveða
hvað ég vildi gera að ævistarfi. Auk þess hafði ég verið mikill
bókaormur frá því ég mundi eftir mér og hafði lesið allskyns bókmenntir
og sögur. Meðal annars hafði ég mikinn áhuga á norrænni goðafræði
og Íslendingasögum og sótti þess vegna um inngöngu í Háskóla
Íslands 1974 og lauk BA prófi í íslensku fyrir erlenda stúdenta
þaðan 1977. 1976 byrjaði ég að vinna hjá erfðafræðinefnd H.Í við
uppbyggingu gagnagrunns sem nefndin notaði síðan í rannsóknir sínar.
Ég vann fyrir nefndina í 5 ár. Árið 1983 byrjaði ég að vinna hjá
Framkvæmdastofnun ríkisins sem var seinna skipti í Byggðastofnun
og Framkvæmdasjóð Íslands. Í dag vinna ég hjá Byggðastofnun (www.bygg.is).
Fljótlega eftir að ég byrjaði þar fór ég að vesenast í öllu sem
tölvuvinnslu snerti og fór að bæði endurhanna og skrifa lánakerfi
og reka tölvukerfi stofnunarinnar sem er orðið mitt aðalstarf.
Kostir
þess að starfa á tölvusviði
Fagið er mjög alþjóðlegt og hefur engin landamæri. Fagið er ókynbundið
og enginn gerir athugasemd við það hvort maður er kona eða karl,
Japani eða Arabi. Heilinn á að starfa rétt en útlit eða kyn skiptir
engu máli. Það ríkir létt andrúmsloft í kringum fagfólkið og engir
fordómar að heitið geti. Fólkið er í eðli sínu mjög forvitið
um allt sem er nýtt og horfir alltaf til framtíðar. Tölvusvið er
ekki bara forritun en mér finnst forritun eiga mjög vel við konur
þar sem þær geta verið mjög nákvæmar og smámunasamar á jákvæðan
hátt. Maður þarf ekki að vera tölvunörd til að starfa á upplýsingasviði
a.m.k. er ég enginn tölvunörd og er ennþá sami bókaormurinn.
Vefslóð
Byggðastofnun
|