.:9. maí - AÐ MÖRGU AÐ HYGGJA:.
Anna Björk sendi okkur útdrátt úr Að mörgu er að hyggja. Það er engin ábyrgð tekin á stafsetningunni, allt gert í flýti fyrir próf....
Útdráttur úr AMAH
.:5. maí - LITRÓF KENNSLUAÐFERÐANNA:.
Erla Súsanna ákvað að senda úrdrátt úr Litrófi kennsluaðferðanna til að deila með bekknum:) Þetta eru allar kennsluaðferðinar 9 sem við eigum að kunna skil á.
Kennsluaðferðirnar 9
.:2. maí - ÍTAREFNI VIÐ SPURNINGU 10:.
Erla María fékk eitthvað efni sent aukalega til sín um spurningu 10 og ákvað að vera svo góða deila því með okkur.
Spurning 10
.:1. maí - SVÖRIN ÖLL KOMIN:.
Þá er allt komið. Ef einhver vill bæta við eða breyta, sendið bara á mig og ég redda málunum. Gefum okkur eitt gott klapp... ((*KLAPP*))
Svörin
.:1. maí - SVÖR VIÐ STÆRÐFRÆÐISPURNINGUM:.
Hér eru þau verkefni sem voru kominn til Sigrúnar eða mín klukkan 06:04. Ekki örvænta ef ykkar verkefni er ekki komið hér inn, sendið bara verkefnið ykkar aftur og úr þessu verður greitt þegar við vöknum á eftir.
Svörin...vantar svör 6, 9 og 12.
.:28. apr - MUNNLEGT STÆRÐFRÆÐIPRÓF:.
Sigrún skellt saman lista um hverjir eiga að taka hvaða spurningu fyrir stærðfræðina. Tveir eru með sama verkefni. Hægt er að vinna þetta saman og skila einni lausn, eða vinna þetta sitt í hvoru lagi þannig að við fáum tvær útgáfur af sama verkefninu. Vinsamlegast sendið Sigrúnu svörin í síðasta lagi laugardaginn 30. apríl svo við getum öll lært af okkur rassinn á sunnudaginn. Netfangið hjá Sigrúnu er sigmatth@khi.is.
Skipting á verkefnum fyrir stærðfræðina
.:07. feb - NÁMSKRÁRFRÆÐI OG NÁMSMAT:.
Gudda gudd vildi endilega deila íslensku þýðingunni á bókinni í NN með okkur hinum. Skjalið er vistað sem 1 zip skrá. Það eina sem þið þurfið að gera er að opna skránna og draga skjalið úr glugganum.
Íslensk þýðing á kennslubókinni í NN
.:07. feb - STÆRÐFRÆÐI:.
Stúlkur nokkrar úr bekknum fundi líka þessar ágætu glósur á íslensku úr kennslubókinni í stærðfræði. Skjölin eru öll vistuð sem 1 zip skrá. Það eina sem þið þurfið að gera er að opna skránna og draga skjölin úr glugganum.
Stærðfræðiglósur á íslensku
.:06. feb - ENDURVAKNING:.
Þá er síðan vöknuð á nýjan leik með vetrar / vor brag yfir sér. Þeir sem vilja nálgast eitthvað af því sem var á síðunni fyrir jól geta smellt á hlekk hér til vinstri sem heitir "Haust 2004". Skipulag síðunnar verður með öðru móti en á síðustu önn. Í stað þess að hafa margar undirsíður tileinkaðar hverju námskeiði þá verður allt á þessari forsíðu og líka með dagsetningu þannig að þið vitið hvenær ég set inn hina og þessa hluti.