1. - D : 2004 - 2005
.:SÁLFRÆÐIVERKEFNIN:.
Það vantar ennþá nokkur verkefni frá hópunum
í sálfræðinni. Best væri ef allir færu yfir síðunu og sæu þá hvort að þeirra
hópur er búinn að skila eða ekki. Ég hef ekki mætt nógu vel sjálfur í þessa
tíma þannig að ég er ekki alveg með þetta á hreinu, þess vegna hvet ég ykkur
til að senda mér póst ef að þið sjáið að eitthvað er ekki eins og það á að
vera.
.:LAG BEKKJARINS:.
D, D, D er' Druslurnar og Dónar
D, D, D er dónabekkurinn
Allt sem er D D finnst mér vera fallegt
Því að það er besti bekkurinn - D!!!!
.:SVÖR ÚR INNGANGNUM:.
Þá eru komin inn svör fyrir allar spurningarnar. Þessi svör fundust á netinu
og eiga að vera nokkuð góðar. Hins vegar eru nokkrir í bekknum líka búnir að
svara sínum spurningum og væri frábært að fá fleirri svör frá
bekkjarfélögunnum
.:RITGERÐARSPURNINGAR Í INNGANGNUM:.
Búið er að skipta ritgerðarspurningum í Inngang að Uppeldisvísindum á milli nemenda bekkjarins. Hægt er að nálgast skiptinga á síðu Inngagnsis...(nota krækjuna hér að ofan)
.:DRÖG AÐ PRÓFTÖFLU:.
Drög að próftöflunni í desember er kominn inn á netið, hægt er að nálgast hana frá forsíðunni eða sækja hana hér
.:STAÐFEST PARTÝ:.
Þá er það komið á hreint! Partýið verður föstudaginn 8.október hjá hinum magnaða Kristni Þorvaldssyni á Meistaravöllum 13. Verið er að skipuleggja hvort/hvað fólk eigi að taka með sér fyrir partýið. Stay tuned...
.:SPJALLIÐ:.
Jæja þá er kominn í gang spjallveggur fyrir bekkinn. Hann er á annarri síðu, en hægt er að tengjast veggnum með því að smella á "Spjallið" hér til vinstri. Látið gamminn geysa!
.:FÓTBOLTAMÓT:.
Nemendafélagið ætlar að halda fótboltamót föstudaginn 1.okt. 4 eru í hverju liði, og verðar að vera amk 1 frá hvoru kyni. Atli og Eva ætla að vera í forsvari fyrir okkar bekk, en allir eiga að mæta, því að nemendafélagið býður upp á bjór í sturtu að móti loknu
.:BEKKJARPARTÝÝÝÝ:.
Þá er það að komast á hreint hvenær fyrsta bekkjarpartýið verður í hinum rosalega bekk 1.-D. Það verður 99% aðra helgina í Október, þegar við eigum að vera búin að skila af okkur ritgerðinni fyrir Mál- og Ritþjálfun. Það sem núna er verið að deila um er hvort að notast eigi við föstudaginn eða laugardaginn, 8. eða 9. okt. Þið ykkar sem hafið skoðanir á málinu endilega látið heyra í ykkur, við erum við símann núna....