toppur
ForsíðaBærinnSaganÁbúendurKirkjanMyndir
             
  Ekki er til þess vitað að kirkja hafi verið á Keldum áður en Jón Loftsson reisti kirkju sína skömmu fyrir 1200 og líklegast er að kirkjan hafi staðið á sama stað síðan í meira en 800 ár og strax verið búin góðum gripum frá þeim Oddaverjum. Í keldnakirkju hafði lengi verið helgiskrín úr gulli frá pápísku en Danir náðu því eins og fleiri munum úr kirkjunni en hluti þessara muna er varðveittur í Danska Þjóðminjasafninu. Ætla má að merkasti gripur kirkjunnar sé altaristaflan sem sýnir síðustu kvöldmáltíðina. Sjá má enn merki þess að þjóðin var kaþólsk en í kirkjunni eru tvö líkneski sem standa sitthvoru megin við altaristöfluna og eru af Jósef og Maríu með Jesúbarnið        
   
Smellið á til að fá stærri mynd
   
Kirkjugólfið
 
    Talið er að fyrsta kirkjan hafi verið timburkirkja því tekið er fram að kirkjan hafi verið "smíðuð". Búast má við að ending svona húsa hafi verið nokkrir tugir ára þegar vandað var til verksins. Kirkjan sem stóð á Keldum 1780, var búin að endast í um 140 ár og það var ó venju langur endingartími. Þá var hún orðin ónýt 1797. Þó árferðið væri ekki sem best var samt byggð sex stafgólfa kirkja, þessi kirkja entist í 40 ár. Guðmundur Brynjólfsson byggði kirkju 1839 en 1874 fékk kirkjan þá umsögn prófastsins að kirkjan væri að falli komin. Ári síðar eða 1875 þurfti sá barnmargi maður Guðmundur Brynjólfsson, að ráðast í kirkjubyggingu í annað sinn þó að hann hafi líklegast haft í nógu að snúast. Nú byggði hann kirkju sem var tíu stafgólf, öll af tvöföldu timbri með krossbundinni öflugri grind, kirkjan var öll tjörguð. Hér var vel að verki staðið og betri ending tryggð með því að kirkjan var klædd að utna með járni 1898.  
  Smellið á til að fá stærri mynd  
 
Kirkjan á keldum
 

Árið 1957 fór fram veruleg viðgerð á kirkjunni. Sýnist hún geta átt langan aldur fyrir höndum. Útliðið er hefðbundið, kirkjan hvítmáluð með rauðu þaki, turninn einfaldur með samskonar þakgerð og kirkjan, klukkurnar í kirkjunni eru frá miðöldum. Kirkjan er fagurlega máluð að innan og sýnir næmni listamannsins er skreytti kirkjuna.
Enn er reglulega haldnar guðþjónustur í kirkjunni og er henni þjónað frá Odda.