![]() |
|
Birna mín fékk gælunafnið búbbuskott því hún þótti hafa svo fínt mont-skott þegar hún var kettlingur. Birna lítur mjög stórt á sig og er frekjudollann á heimilinu. Hún ræður og það dirfist enginn að troða henni um tær! Meira að segja strákarnir tipla í kringum hana.
Birna er úr Vetrarheimsleggnum og rekur ættir til Seven Up og Vintergæk í móðurlegg. Í föðurlegg er hún auðvitað Eldibrandsdóttir eins og Erlin.
Ég hreifst af Birnu því það var einvher sharmi við hana. Hún var svo brött og fyrirferðamikil !!! Þær systur voru allar miklar fegurðardísir og hafa Blíða og Birna oft att kappi saman á sýningum þar sem þeir hafa unnið á víxl.
Síðustu sýningar hafa þó ekki gengið sem skyldi vegna skaphita hjá fröken-Fix. Eins ákveðin dama og hún, lætur ekki bjóða sér upp á hvað sem er og sýningar eru eitt af því sem hún hefur mikla andúð á. Hins vegar er Birna mjög gæf og elskuleg stelpa sé ekki verið að misbjóða henni. Hún er mikill grallari og elskar að nota vald sitt til að atast í Jósí og Erlin þegar hún er í stuði.
Birna á eitt got frá árinu 2004 svo nú fer að koma tími á næsta got enda er ég mjög spennt að prófa Bombax á móti því sem hún hefur fram að færa.