![]() |
|
Bombax er litla barnið mitt. Hann sýnir óspart að hann elskar fólkið sitt og gerir ekki upp á milli okkar hér á bæ. Hann sækir í ást og umhyggju og er mikið hjartagull.
Bombax hefur líka þetta kæruleysislega yfirbragð eins og Bebis og sést aldrei reiðast. Hann er mikill pabbi og tók virkan þátt í kettlingauppeldinu. Erlin er líklega fyrsta ástin hans og stundum á hann það til að vera full ástleitinn við hana. Birna setti honum aftur strax línurnar um að maður abbast ekki upp á hvaða prinsessur sem er!
Enn er Bombax mjög prúður hvað merkingar varðar og er auðveldur í umgengni þrátt fyrir að vera á hápunkti unglingaskeiðsins. Innan fjölskyldurnnar sýnir hann fulla virðingu og hefur ekki reynt að trana sér fram fyrir tær hinna æðri í valdastiganum. Aftur lætur hann engann vaða yfir sig og lætur sér fátt um finnast þó hann hafi komið yngstur inn í hópinn.
Bombax gotið mitt lukkaðist mjög vel og sýndi fram á að ég gat fengið inn í Eldibrandslínurnar sitthvað af því sem ég leitast eftir að fá. Vegna þess hve þröngur kostur okkar er hér og línurnar einsleitar þá hef ég hugsað mér að nota Bombax ekki almennt í ræktun heldur er hann fyrst og fremst ætlaður mínum eigin línum. Aftur til að hafa eitthvað gagn af því að flytja inn högna þá verður maður að sjá hvað högninn getur borið á móti mismunandi læðum og þess vegan gæti farið svo að ég velji eina og eina læðu á móti honum sem mér finnst að gæti bætt við nýju á móti honum.