|
| Vorum boðin í tvöfalt 35 ára afmæli hjá Halla og Láru á Látrum. Vorum þar í tvær nætur og skoðuðum m.a. Látrabjarg. Hittum síðan Óla og Hólmfríði og færðum okkur yfir á Tálknafjörð. Gistum þar í tvær nætur og kíktum á það markverðasta í nágrenninu, aðallega syðri strönd Arnarfjarðar. Næst keyrðum við á Þingeyri og gistum þar í tvær nætur. Helstu afrekin voru að keyra fyrir nesið á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Heldur fór veðrið að versna en við kíktum þó út á Ingjaldssand á leiðinni til Ísafjarðar. Þar var stoppað í búð og Djúpið síðan brunað eins og það lagði sig. Við fengum síðan inni í húsi hjá ættingjum Óla nálægt Skjaldfannadal. Á leiðinni í bæinn fórum við gamla þjóðveg nr. 1 upp Langadal upp á Þorskafjarðaheiði. |
|
|
|
| ||||
|
|
| Síða | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | |
| Heimasíða Maríu og Nökkva | Gert með JAlbum & Chameleon |