Johann Vilhjalmsson knivemaker and gunsmith

Johann Vilhjalmsson (born 1955) is an accredited gunsmith and has been custom making knives for many years. He is also a skilled mechanic and an engineer and worked as such before learning gunsmithing at the ICET Leon Mignon - the school for gunsmiths - in Liége in Belgium. After completing three years of study and specializing in stock making and engraving Johann moved back to Iceland in 1996. There he established his workshop and a gun store in downtown Reykjavik. His company was later bought by the Iceland Oil Ltd. and combined with the Ellingsen Outdoors Store. Johann now works as a gunsmith for the Ellingsen company.

Knivemaking has been Johann's special interest and hobby for many years. He has designed  "The Icelandic Hunting Knive" a specialized tool for hunters. The shaft is made from Icelandic reindeer antlers.

Johann designs and makes his knives from scratch. He first makes the blades and hardens the steel in a special oven. The knive shafts are made from esquisit kinds of wood, animal bones, antlers and metals. Some of the knives are engraved, often with traditional Icelandic patterns some of them from the era of the Vikings.

Johann is a member of The Belgian Knivemakers Society (BKS). He has participated in many of their joint exhibitions and won the Silver File Reward in the competition for the Gold File Awards (Lime d'Or) in 1998. Johann received the award for a Sicilian dagger type of knive.


 

 


Jóhann Vilhjálmsson hnífa- ogbyssusmiður

Jóhann Vilhjálmsson (fæddur 1955) er faglærður byssusmiður og hefur smíðað hnífa um árabil. Hann er einnig lærður vélvirki og vélstjóri og starfaði á þeim sviðum áður en hann lærði byssusmíði við ICET Leon Mignon - skóla byssusmiðanna - í Liége í Belgíu. Að loknu þriggja ára námi, þar sem Jóhann sérhæfði sig í skeftissmíði og málmgreftri, flutti hann aftur til Íslands 1996 og opnaði byssuverkstæði og verslun í miðborg Reykjavíkur. Olís keypti síðar fyrirtæki hans og sameinaði Versluninni Ellingsen. Jóhann starfar nú sem byssusmiður hjá Ellingsen í Reykjavík.

Hnífasmíði hefur verið sérstakt áhugamál og viðfangsefni um árabil. Hann hefur hannað "Íslenska veiðihnífinn", sérhæft verkfæri fyrir veiðimenn. Skeftið smíðar hann úr íslenskum hreindýrshornum.

Jóhann hannar og  smíðar hnífa sína frá grunni. Hann smíðar fyrst hnífsblöðin og herðir stálið í sérstökum ofni. Hnífaskeftin smíðar hann úr eðalviði, beini, hornum dýra og málmum. Sumir hnífanna eru skreyttir með málmgreftri, oft með hefðbundnum íslenskum mynstrum frá tímum víkinganna.

Jóhann er félagi í samtökum belgískra hnífasmiða (BKS). Hann hefur tekið þátt í samsýningum þeirra og vann m.a. Silfurþjölina  í keppninni um Gullþjölina árið 1998. Jóhann fékk verðlaunin fyrir sikileyskan rýting.


 

The Icelandic Hunting Knife - De Luxe Version